Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ólafía er eitt af 14 meintum fórnarlömbum dr. Skúla: „Í rauninni sveltur hún til dauða á níu dögum“

Ólafía með börnum sínum
Ólafía með börnum sínum Mynd: aðsend

Ólafía Kristný Ólafs­dóttir var harðdugleg og ljúf kona sem var dáð og elskuð af sínu fólki. Dóttir hennar lýsti henni meðal annars sem ljósbera og náttúru­afli. Í nóvember 2019 lagðist Ólafía Kristný inn á göngu­deild Heilbrigðis­stofnunar Suðurnesja með ólæknandi krabba­mein í brisi. Hún var sett á lífsloka­meðferð án þess að hún eða hennar nánustu aðstand­endur voru látnir vita. Var henni neitað um vökva og næringu í æð þrátt fyrir beiðni aðstand­enda. Níu dögum síðar var hún látin. Sérfræðingurinn í meðferð hennar var dr. Skúli Tómas Gunnlaugsson.

Mannlíf hefur fjallað ítarlega um mál Skúla Tómasar frá því að lögreglan hóf rannsókn á því í fyrra. Hægt og bítandi hafa meint fórnar­lömb meintra mistaka Skúla fjölgað en í dag er lögreglan að rannsaka andlát níu sjúklinga Skúla auk fimm annarra sem tókst að bjarga frá ótíma­bærum lífsloka­meðferðum. Lögreglan segir að málið eigi sér ekki fordæmi á Íslandi.

Var ráðlagt að fara í göngutúr og skipta um matarræði

Mannlíf talaði við dóttur Ólafíu Krist­nýjar, Lindu Rós Eðvarðs­dóttur sem sendi skýrslu fyrir hönd aðstand­enda Ólafíu, til land­læknis, þar sem kvartað var undan meðferðinni á móður hennar. Ólafía var rétt orðin 63 ára er hún lést rétt fyrir miðnætti þann fimmta desember 2019. Átti hún fimm börn og einn stjúpson.

Linda Rós

Fjórtán sinnum á fimm mánuðum hafði hún farið til læknis á HSS, vegna verkja sem hún var með en læknanemi hafði séð að blóð­sykurinn hefði hækkað óeðlilega hjá henni. Þrátt fyrir það var hún ekki send í frekari skoðun heldur gefið það ráð að fara í göngutúra, taka íbúfen og borða einföld kolvetni. Þegar hún fékk því loksins í gegn að fara í myndatöku kom í ljós að hún væri með fjórða stigs krabba­mein í brisi og við tók lyfja­meðferð. Að sögn Lindu brást líkami hennar illa við lyfja­meðferðinni á Land­spítalanum og var bún því flutt með sjúkrabíl til Kefla­víkur. Að sögn Lindu viðurkenndu Skúli og yfir­læknirinn að það hafi verið mistök að setja hana í lyfja­meðferð þann daginn, það hafi ekki verið fylgst nógu vel með blóðinu í henni. Þegar Ólafía er komin á HSS eru aðstand­endur boðaðir á fund. „Og við erum kölluð á fjölskyldu­fund þar sem þeir tala um að krabba­meinið hafi dreift úr sér og að þeir ætli að hætta meðferð. Þegar ég spyr þá hvort hún komist heim af spítalanum svöruðu þeir því til að þeir ætli að sjá til, kannski verður það hægt. Mér fannst þeir virka nokkuð vongóðir, svona hvernig þeir töluðu, þeir Skúli Tómas og yfir­læknirinn. En þeir neita að gefa henni næringu og vökva.

Ólafía og Linda á góðum degi.

Eftir lyfja­meðferðina var hún mjög þjáð en þeir eru ekkert að gefa henni næringu eða vökva. Við þurftum að biðja um það. Fyrst var ekki mikið um svör en svo er okkur sagt að vökvinn myndi bara setjast utan á líffærin hennar. Og við vorum bara „Ha? ok“. En svo heimtuðum við bara að hún fengi næringu og afi kallaði annað hvort Skúla eða yfir­læknirinn, morðingja, að hann væri að drepa hana með því að gefa henni ekki næringu.“ Eftir tvo daga fór Ólafíu að líða aðeins betur og gat borðað smá sjálf. „En þrátt fyrir það að henni leið orðið betur gáfu þeir henni ekki næringu og vökva í æð. Hún fékk bara morfín,“ sagði Linda Rós og hélt áfram: „Í rauninni sveltur hún til dauða á níu dögum. Hún hætti að geta borðað aftur en þeir neituðu að gefa henni næringu og vökva í æð. Þeir héldu henni eiginlega sofandi bara frá fyrsta degi.“

Blaða­maður Mannlífs: En hvernig voru læknarnir í viðmóti? Var erfitt að fá upplýsingar frá þeim og þurftuð þið að ganga á eftir því?

Linda Rós: „Við erum mörg systkynin, við erum fimm, plús einn stjúpbróðir og það var alltaf talað við sitthvort okkar og við látin bera upplýsingar óformlega á milli okkar skilurðu? Og við rifumst alveg stundum. Sumir vildu að hún fengi næringu í æð en ég vildi til dæmis hlusta á læknana því ég hélt að þeir vissu hvað þeir væru að segja.“ Eigin­maður Ólafíar er heyrnar­laus en hann fékk aldrei túlk þegar upplýsingar bárust um meðferð og líðan Ólafíar. „Maðurinn hennar mömmu er heyrnar­laus en hann fékk aldrei túlk. Og ég bað um það tvisvar en hann fékk ekki túlk. Og þar sem hann heyrði ekki í hryglu­hljóðinu í mömmu, áttaði hann sig ekki alveg á ástandinu, hann hélt að hún væri bara í hvíld. Þannig að þegar hún dó, var það rosalega áfall fyrir hann.“

Sjúkraskýrslan stenst ekki skoðun

Linda segir að þegar þau hafi séð Evu Hauks­dóttur, sem er dóttir eins af meintum fórnar­lömbum dr. Skúla, tala um málið í fjöl­miðlum, hafi þau ákveðið að biðja um sjúkarskýrsluna frá HSS. „Þá eru þeir að ljúga í sjúkra­skýrslunni. Þeir sem sagt setja hana á líkna­meðferð á degi tvö og í sjúkra­skýrslunni er spurt við hvern er talað varðandi það en þar stóð bara „óskráð.“ Af því að við vorum aldrei látin vita. Svo stendur líka í sjúkra­skýrslunni að það hafi verið haldnir margir fjölskyldu­fundir og að allir hafi verið rosa sáttir. En ég meina, það var enginn sáttur.“

Aðspurð um kveðju­stundina segir Linda að þau hefðu ekki náð að kveðja hana. „Okkur var bara sagt að hún hefði óskað eftir því að vera haldið sofandi en hún hafði aldrei sagt okkur frá því.“

Kærði greiningarferlið

Linda segir ómögulegt að vita hvað móðir hennar hefði getað lifað lengi með krabba­meininu en að læknarnir sem sáu um hana á HSS hefðu klárlega flýtt fyrir andláti hennar. En þau systkinin eru líka ósátt við greiningar­ferlið. „Ég kærði greiningar­ferlið. Af því að í janúar fer hún til einhvers læknanema og fór fastandi í blóðprufu hjá honum, sem sýndi hækkandi blóðsykur,“ sagði Linda en þarna var móðir hennar sárþjáð og leitaði því til lækna, óafvitandi að hún væri komin með krabba­mein. „En í staðinn fyrir að rannsaka þetta betur er henni sagt að vinna með einföldum kolvetnum og fara í göngutúra. Og þetta stendur í lækna­skýrslunni. Hún þurfti að berjast fyrir því að krabba­meinið yrði greint, ég held hún hafi bara farið sjálf í Domus Medica og beðið um myndatöku. En svo hverfa tvær til þrjár vikur úr lækna­skýrslunni. Það vantar að það hafi komið í ljós að hún væri með krabba­mein í júní og þangað til hún hefur lyfja­meðferðina. Og hún sagði okkur að læknarnir sem hún leitaði til á HSS, hefðu verið með tárin í augunum þegar þeir voru að segja henni frá krabba­meininu, af því að þeir vissu upp á sig sökina. Þannig að það var ekki bara þessi líknandi meðferð sem okkur var ekki greint frá eða útskýrt heldur var það líka greiningar­ferlið sem við erum ósatt við. Hún fór til Domus Medica sem svo sendu niður­stöðurnar til Kefla­víkur en læknarnir á HSS hringja ekki í hana og segja henni frá niður­stöðunum. Hún ákvað að hringja bara að sjálfs­dáðum á sjúkra­húsið á Akranesi og biðja þá um niður­stöðurnar. Þeir sögðu henni að fara beint á bráða­móttökuna. Og þetta stendur allt í sjúkra­skránni.“

Reið og sár

Fjöl­skyldan er auðvitað afar ósátt með meðferðina á Ólafíu en Linda segir að þetta hafi haft gríðarleg áhrifa á þau öll. „Við upplifðum öll alvarlega áfallasteituröskun. Sum okkar misstu vinnuna, bróðir minn fór í Virk og maðurinn hennar mömmu fór í hjarta­aðgerð tveimur mánuðum eftir andlátið. En við vorum ekkert að fatta þetta strax, okkur leið skringi­lega með þetta og vorum að spá í að fá sjúkra­skýrsluna en gerðum aldrei neitt í því fyrr en Eva kom fram í fréttum.“

Manneskjan á bak við tölfræðina

Nafn Ólafíu er nú í rann­sóknar­skýrslum um manndráps­rannsókn lögreglunnar ásamt átta öðrum nöfnum en hvaða manneskja er á bakvið nafnið?

„Hún var bara ótrúlega ljúf og sterk. Hún átti blóma­búðina í Glæsibæ, Dalíu og var með hana í 10 ár og vann alla daga þar ein, frá níu til sex, sjö á kvöldin. Þannig að hún var harðdugleg en hún var samt öryrki. Hún var dugleg að tala við fólk sem aðrir nenntu ekki að tala við, gaf þeim alltaf tíma, var góð við þau og þekkti þau öll með nafni og gaf þeim sígó, skilurðu? Hún var sem sagt með stórt hjarta og var ótrúlega listræn, bæði í blóma­búðinni og að gera málverk og teikningar. Hún teiknaði listaverk á gler. Hún eignaðist sex börn en eitt þeirra dó úr heilahimnu­bólgu 9 mánaða gamalt.“

Linda Rós sagði að lokum að móður hennar sé afar sárt saknað af fjöl­skyldu og vinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Hvetur fólk til að eiga reiðufé.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto