Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ljósmyndarinn Óskar Hallgrímsson er í fremstu víglínu: „Það er þjóðarmorð í gangi í Úkraínu“

„Þetta er stærsta árás sem gerð hefur verið á Úkraínu síðan í byrjun stríðs en þetta er annars það sem er að gerast í þessu stríði alla daga,“ segir Óskar Hallgrímsson ljós­myndari um árásir Rússa á ýmsa staði í Úkraínu fyrr í vikunni. Óskar er kvæntur úkraínskri konu og hefur búið í Úkraínu undan­farin ár og hefur frá því að stríðið hófst farið víða og myndað afleiðingar þess. „Þetta er það sem ég er að sjá alla daga. Almennir borgarar eru skotmörk og virðast nánast eingöngu vera skotmörk því miður.“

Stór sprengja sprakk í vikunni á brúnni yfir Kerch-sund sem er á milli Rússlands og Krímskaga. Brúin er mikilvæg fyrir rússneska herinn, en um hana fara meðal annars hergögn fyrir rússneska hermenn sem berjast í Úkraínu, og er talið að auknar árásir í vikunni séu svar Pútíns við sprengjunni á brúnni.

Þetta voru ein­göngu borg­ara­leg skot­mörk.

„Pútin varð að gera eitthvað af því að hann er í rauninni ekki að sigra neins staðar og það eina sem hann hefur eftir eru hryðju­verk og kjarnorku­árás af því að hann vinnur ekki á vígvellinum. Hann hefur í hvert skipti sem Úkraína vinnur hernaðar­legan sigur ráðist á borgaralegt skotmark. Hann hefði getað notað þessi 80 flug­skeyti á hernaðarleg skotmörk en hann gerði það ekki. Þetta voru eingöngu borgaraleg skotmörk; fjölbýlishús og allt þar fram eftir götunum. Þannig að þetta var mjög dýrt fyrir hann. Þetta voru mikilvæg flug­skeyti sem segir að stoltið sé miklu stærra heldur en taktískur heili af því að þetta þjónar þannig séð engum taktískum tilgangi fyrir Pútin annað heldur en að hræða. Þetta stýrir stríðinu sjálfu ekki neitt. Akkúrat ekkert.“

Óútreiknanlegt rugl

Óskar hefur upplifað og séð margt síðustu mánuði.

„Í mínu daglega lífi er ég heima hjá mér í Kyiv og þá upplifi ég ekkert stríðið þannig séð. Ég var ekki heima þegar árásirnar voru gerðar í vikunni en konan mín var heima. Það hafði ekki verið gerð árás í Kyiv í marga mánuði og ekki svona stór síðan stríðið hófst. Ég elti hins vegar stríðið uppi þannig séð en ég fer inn í borgir og bæi sem eru annaðhvort nýfrelsaðir eða undir árás. Ég var til dæmis í vikunni í bæ sem er undir árás.

Þetta er nátt­úr­lega hættu­legt og maður þarf að koma sér í gegnum ýmis­legt.

Lífið er mjög fjöl­breytt þegar ég er að vinna. Það er mikið af óútreiknanlegu rugli sem maður þarf að ganga í gegnum þegar maður vinnur sem ljós­myndari í stríði af því að ég er ekki að berjast. Þetta er nátt­úrlega hættulegt og maður þarf að koma sér í gegnum ýmislegt. Það er margt sem maður þarf að gera á bak við tjöldin varðandi upplýsinga­öflun til að tryggja öryggi sitt og vita að maður sé að fara á einhvern stað sem er frétt­næmur og að maður hafi aðgengi að staðnum. Það er oft sem maður lendir í því að geta ekki gert það sem maður ætlaði sér að gera eða manni er snúið við á einhverjum stað eða þá að verkefnið tekst ekki. Það er enginn sem skipuleggur hvernig stríð hegða sér. Maður verður einhvern veginn að læra að vinna með því.“

Óskar hefur ljós­myndað um víða ver­öld. Hann býr í Úkraínu.

Hinn mannlegi harmleikur

Óskar hefur upplifað mikið af hörmungum og hefur hann meðal annars verið á svæði þar sem sprengjur sprungu og segir hann að þá hafi þurft að aka hratt í burtu og að fólk hafi andað frekar hratt.

„Ég fór fyrir nokkrum vikum að fjölda­gröf í borginni Izyum með um 450 líkum og var verið að grafa fjölda­gröfina upp. Það var hræðilegt. Um 50.000 manns bjuggu í borginni og eru um 90% hennar eyðilögð.

Þessi mannlegi harm­leikur er eiginlega það versta sem ég hef upplifað í þessu stríði. Það er það sem fer mest í mig. Ég á erfitt með að hitta einhvern sem er búinn að tapa öllu, er fórnar­lamb glæps og sérstak­lega kynferðis­ofbeldis. Og þegar óvissa er um framtíð fólks. Þetta finnst mér vera erfiðast af öllu saman sem og að sjá heimili fólks sem var drepið eða sem fólk hefur þurft að yfirgefa og sjá eymdina sem fylgir því. Þetta er samansafn af þúsund sögum sem maður hefur orðið vitni að og sem er það erfiðasta í þessu öllu saman.“

Það eru jarð­sprengjur út um allt.

Óskar þarf að hafa margt í huga öryggisins vegna. Þegar blaða­maður sendi honum skilaboð og spurði hvort hann væri til í viðtal skrifaði hann: „Ég er rosalega mikið ekki með símann út af öryggis­ástæðum, en ef ég má senda þér voice memo þá er það ekkert mál.“ Úr varð að spurningar voru sendar í Messenger og hann sendi svo skilaboð á hljóðskrám. „Rússar geta fylgst með símum fólks, farsíma­neti þess og trakkað hvar það er þannig að maður þarf að hafa það í huga þegar maður er að vinna. Margir Rússar hafa verið drepnir út af því að þeir hafa verið í símunum sínum og þá vita Úkraínu­menn hvar þeir eru. Þeir klúðra þessu algjör­lega.“

Óskar er annars í skotheldu vesti og með öryggis­hjálm þegar hann er að vinna á átaka­svæðum. Hann fór á námskeið til að læra hvað ætti að hafa í huga og svo er hann með sjúkra­búnað sem er sérstak­lega hannaður fyrir vígvöll. Svo þarf hann að hafa í huga hvar hann stígur niður. „Það eru jarð­sprengjur út um allt.“

Þjóðarmorð

Óskar er spurður hvernig andlega líðanin sé eftir að hafa orðið vitni að öllum þessum hörmungum.

Það sprungu nýlega sprengjur nokkur hund­ruð metra frá heim­ili mínu.

„Andlega líðanin er ágæt þannig séð. Ég er búinn að vera lengi í þessu; þetta eru sjö mánuðir. Maður lærir einhvern veginn að díla við þetta allt saman. Þegar ég á erfiða daga þá get ég orðið pirraður út í samstarfs­félaga mína. Það sem hefur mest áhrif á mína andlegu líðan er að áhuginn á stríðinu hjá fólki heima á Íslandi og víðar í Evrópu virðist vera búinn að detta niður. Ég er ekki að segja að fólki gæti ekki verið meira sama en áhuginn er augljós­lega að dvína og að fólk láti sig skipta að það er þjóðar­morð í gangi í Úkraínu. Ég er tengdur þessu og þetta skiptir mig máli. Ég hitti í gær fólk sem er búið að tapa aleigunni og það sprungu nýlega sprengjur nokkur hundruð metra frá heimili mínu. Það held ég að sé erfiðast fyrir mig. En andlega heilsan er samt fín. Ég er heppinn að eiga góða konu og við erum góðir félagar þegar kemur að þessu og við styrkjum hvort annað. Margir samstarfs­félagar mínir og vinir eru að ganga í gegnum það sama og ég og það er gott að eiga þá að þegar þetta er mjög erfitt. Ég viðurkenni það.“

Óskar hefur lært ýmisleg um sjálfan sig undan­farna mánuði. „Ég hef lært hvernig ég höndla lífið og tilveruna undir frekar miklum streitu­aðstæðum. Ég er búinn að læra að ég er góð manneskja í grunninn. Ég hef séð að það sem pirraði mig áður skiptir mig engu máli í dag; mér gæti ekki verið meira sama. Það er svo margt sem maður lærir að meta þegar maður er í þessum aðstæðum. Ég er mjög þaklátur fyrir hitt og þetta sem ég hefði ekki getað ímyndað mér og ég er þakk­látari fyrir hluti sem ég var þakklátur fyrir. Það er búið að hjálpa mér mikið að eiga maka og vera í góðu sambandi. Við erum gott teymi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning