Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sonur Hjalta í lífshættu eftir fangavist: „Hringt í mig og mér sagt að sonur minn væri á gjörgæslu“

Hjalti Úrsus
Hjalti Úrsus Mynd: Skjáskot úr heimildarmyndinni Fall risans

Hjalti Úrsus talar við Hildi Maríu Sævars­dóttur um mál sonar síns, Árna Gils Hjalta­sonar, sem sat saklaus í fangelsi á sínum tíma í 277 daga, en hann hafði verið dæmdur í Héraðs­dómi Reykja­víkur til fjögurra ára fangelsis­vistar fyrir tilraun til manndráps árið 2017. Lands­réttur sýknaði svo Árni Gils í fyrra.

Árni Gils lést daginn eftir að viðtalið var tekið. Hér fyrir neðan er brot úr viðtalinu.

Árni losnaði úr fangelsinu og segir Hjalti Úrsus að hann hafi verið alltaf svo skrýtinn eftir það. „Ég hélt þetta væri andlegt. Hann losnaði í desember og í mars/apríl fór ég með hann upp á geðdeild Land­spítalans. Þá hringdi geðlæknir í mig sem sagðist hafa mælt súrefnis­upptökuna í Árna og að það væri eitthvað óeðlilegt í honum eftir fangelsis­vistina. Þetta var á laugar­degi, en ég fór með hann á föstudegi. Á sunnu­deginum var hringt í mig og mér sagt að sonur minn væri kominn á gjörgæslu­deild og að ekki væri vitað hvort hann myndi lifa af. Það var búið að tengja í hann alla hugsanlega víra; nýrnavél og öndunarvél og búið að setja gat í barkann á honum.“ Hjalti Úrsus segir að það hafi tekið sjö mánuði fyrir son hans að komast á fætur aftur og að Árni hefði verið í 21 dag á gjörgæslu­deild.

Hjalti Úrsus er spurður hver sé staðan á Árna.

„Hún er bara mjög góð. Hann er að fara í bílprófið núna og við erum að kanna hvort hann geti farið í létta vinnu. Og hann er kominn með eigin íbúð og þetta er allt á réttri leið. Hann er búinn að vera á Reykja­lundi í endur­hæfingu, þannig að þetta er allt á réttri leið finnst manni.“

Eigum við ekki að segja að það sé bjart fram undan?

Fær Árni sálfræði­þjónustu?

„Hann mun örugglega þurfa hana. Meðan á þessu öllu stóð var hann meira og minna inni á geðdeild Land­spítalans. Þau unnu krafta­verk. Hann var stundum í mjög langan tíma þar. Þau sáu hve veikur hann var. En núna, sérstak­lega eftir sýknu­dóminn, er engin innlögn. Eigum við ekki að segja að það sé bjart fram undan?“

Árni Gils Hjaltason lést tveimur dögum eftir að viðtalið var tekið.

Minning hans lifir.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá