Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Katrín um launamistökin: „Finnst sann­gjarnt að við endurgreiðum það“

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir Mynd: RÚV

Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, telur eðlilegt að þeir embættis­menn sem fengu ofgreidd laun frá ríkinu síðustu þrjú árin endur­greiði hluta þeirra. Hún bendir á að um sé að ræða hvað hæst launuðu einstaklingana hjá hinu opinbera. Þetta kemur fram á Vísi.

Undan­farið hefur verið fjallað um ofgreiðslu launa ákveðinna starfs­manna ríkisins, sem höfðu fengið launa­hækkanir. Fjársýsla ríkisins komst að þeirri niður­stöðu á dögunum að mistök hafi verið gerð í útreikningum launa­hækkananna og því hafi þessir aðilar fengið ofgreidd laun síðustu þrjú ár. Um er að ræða ýmsa embættis­menn, ráðherra og forseta Íslands.

Dómarar tilheyra þessum hópi og hefur mikillar óánægju gætt úr herbúðum þeirra. Þeir hafa til að mynda sagt aðgerðina ólögmæta og að þeir muni leita réttar síns í málinu.

„Ákvörðunin er í andstöðu við gildandi lög um launakjör dómara og með henni er vegið að rétti borg­aranna til rétt­látrar máls­meðferðar fyrir sjálf­stæðum og óvilhöllum dómstóli. Aðgerðirnar fela í sér atlögu framkvæmda­valdsins að dóms­valdinu sem ekki á sér hliðstæðu í íslenskri réttar­sögu,“ segir til að mynda í yfir­lýsingu Dómara­félags Íslands vegna málsins.

Bjarni Bene­dikts­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, furðaði sig á orðum félagsins. „Málstaður þeirra sem mótmæla því að nú eigi að leiðrétta ofgreidd laun er býsna aumur. Ég vænti þess að þeir vilji bera fyrir sig að hafa tekið við of háum launum undan­farin ár í góðri trú,“ skrifaði hann til að mynda á Facebook eftir að Dómara­félagið gaf frá sér sína yfir­lýsingu.

Kjartan Bjarni Björg­vins­son. Mynd/skjá­skot RÚV

Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður Dómara­félagsins, sagði á Facebook að málið snerist um réttláta máls­meðferð. Hann sagði að ef fjármála­ráðherra fengi leyfi til þess að grípa inn í og lækka laun dómara myndi það stefna sjálf­stæði dómstól­anna í hættu.

„Það snýst miklu frekar um þetta: Fólkið í landinu ætti ekki að þurfa að hlusta á að það sé flókið fyrir efsta lag ríkisins, æðstu embættis­mennina, að skila því sem ofgreitt var úr opinberum sjóðum. Annað væri hrikalegt fordæmi og er ekkert minna en siðferðis­brestur,“ sagði fjármála­ráðherra.

Alls voru það 260 embættis­menn sem fengu ofgreidd laun á tíma­bilinu. 215 gegna enn starfi sínu og verða krafðir um endur­greiðslu á mismuninum milli ofgreiddu launanna og hinna réttu. Það mega þeir gera yfir tólf mánaða tímabil.

Katrín Jak­obs­dóttir,

Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, telur sann­gjarnt að embættis­menn endur­greiði launin. Hún er sjálf meðal þeirra, auk fjármála­ráðherra.

„Þegar í ljós kemur að þessi laun hafa verið of­greidd þá finnst mér sann­gjarnt að við endur­greiðum það þó að mis­tökin séu ekki okkar heldur þeirra sem greiða út launin, þá finnst mér það sann­gjarnt,“ segir hún í samtali við Vísi.

Hún bendir einnig á að um sé að ræða æðstu embættis­menn þjóð­félagsins, sem hafi hæstu launin.

Ofgreiddu launin sem um ræðir nema samtals um 105 milljónum króna yfir þetta þriggja ára tímabil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá