Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Harmleikurinn á Óshlíðarvegi – Bilun í stýri, föst bremsa og efasemdir aðstandenda

„19 ára gamall piltur af Barða­strönd lézt í bílslysi aðfara­nótt sunnu­dagsins. Hann var farþegi í bíl, sem fór út af Óshlíðar­vegi í blindbeygju.“

Svo hefst frétt í Vísi, mánudaginn 24. september árið 1973. Ungi maðurinn sem lést þessa nótt hét Kristinn Haukur Jóhannesson. Hann var á leiðinni frá Bolungarvík til Ísafjarðar með tveimur félögum sínum, eins og segir í frétt Vísis.

Í fréttinni segir að þegar bíllinn hafi komið í blindbeygjuna á Óshlíðar­veginum hafi hann farið út af. Bíllinn valt þá niður 60 til 70 metra langa snar­bratta grjót­skriðu og staðnæmdist ekki fyrr en í flæðar­málinu.

Slysið varð eftir dansleik

„Pilturinn sem lézt, kastaðist út úr bílnum á miðri leið niður skriðuna. Félagar hans tveir slösuðust lítillega. Þeim tókst að komast upp á veginn aftur og tilkynna slysið til lögreglunnar á Ísafirði,“ segir í frétt Vísis. Sá sem ók bílnum þessa nótt var ungur maður, en hinn farþeginn ung kona. Samkvæmt fréttum höfðu þau borist með bílnum niður snar­bratta hlíðina alveg niður í fjöru og gekk erfiðlega að klifra upp hana. Þau tilkynntu síðan um slysið frá Hnífsdal.

Slysið varð á milli klukkan 5 og 6 um morguninn. Bifreiðinni, sem var raunar leigu­bifreið, hafði verið ekið til Bolungarvíkur eftir dansleik í Hnífsdal og var á leið til Ísafjarðar þegar hún lenti utan vegar.

Kristinn Haukur Jóhannesson var frá Innri-Miðhlíð á Barða­strönd en hafði verið í vinnu á Bolungarvík. Hann fæddist árið 1954 og kjör­foreldrar hans voru þau Jóhannes Hjálmar Sveinsson, bóndi í Miðhlíð innri og Anna Soffía Össurar­dóttir Thoroddsen.

Kristinn Haukur Jóhann­es­son

Tvö slösuðust lítið – stýrið ekki í sambandi

Leigu­bílstjórann og ungu konuna sakaði lítið sem ekkert. „Leigubílstjórinn, sem er þaulvanur bílstjóri, segist álíta, að annað framhjólið á bílnum hafi festst af einhverjum sökum og bíllinn við það henzt út í kantinn, stoppað þar augnablik, en oltið síðan um, við það að farþegarnir köstuðust út í hliðina,“ segir í frétt Tímans um málið.

Á miðvikudeginum eftir slysið birtist frétt í Vísi þar sem sagði eftir­farandi:

„Stýrið á bílnum sem fór út af Óshlíðar­vegi á sunnu­daginn, var úr sambandi. Þegar farið var að skoða bílinn, kom þetta í ljós. Aftur á móti mun ekki vera hægt að segja með fullri vissu, hvort það hafi verið bilun í stýri, sem olli því, að bíllinn fór út af.

Ökumaður bílsins er leigubílstjóri og hefur ekið þennan veg í mörg ár. Ekki hefur enn verið hægt að yfirheyra hann til hlítar vegna taugaáfalls, sem hann hlaut.“

Föst bremsa og efasemdir

Í frétt Vísis segir að Kristinn hafi ekki verið spenntur í öryggis­belti, né heldur ökumaðurinn eða unga konan sem einnig var farþegi. Talið var að Kristinn hefði kastast út úr bílnum um miðbik hlíðarinnar og lent undir bílnum. Hann hafi sennilega látist samstundis.

Síðar kom einnig fram að hugsanlega hefði bremsan í bílnum festst með þeim afleiðingum að bíllinn lenti út af veginum.

Samkvæmt heimildum hafði fjöl­skylda Kristins alltaf efasemdir um atburðinn sem olli dauða hans og niður­stöður rann­sóknarinnar á sínum tíma. Þeim hafi til að mynda fundist bíllinn of heillegur til þess að rökrætt væri að hann hefði oltið niður hlíðina með þeim hætti sem hinir aðilarnir tveir lýstu.

Rannsókn tekin upp að nýju

Nú, þegar 49 ár eru liðin frá slysinu, hafa orðið nýjar vendingar í málinu. Aðstand­endur Kristins fóru þess á leit við yfirvöld að rannsókn málsins verði tekin upp að nýju. Það var samþykkt með dóms­úrskurði og fyrir helgi voru jarðneskar leifar Kristins grafnar upp í þeim tilgangi að varpa ljósi á það með hvaða hætti hann lést fyrir tæplega hálfri öld. Réttar­læknir mun reyna að greina áverkana og skera úr um það hvort þeir hafi raun­verulega hlotist í bílslysi, eða hugsanlega með einhverjum öðrum hætti.

Lögreglu­stjórinn á Vestfjörðum sagði í samtali við RÚV að enn hefði enginn verið yfir­heyrður í tengslum við málið, en vildi ekki tjá sig að öðru leyti. Í tilkynningu vegna málsins segir að þrátt fyrir að langur tími sé liðinn frá atburðinum séu taldar líkur á að hægt verði að upplýsa nánar um tildrög andláts Kristins. Ekki er vitað hve langan tíma rann­sóknin muni taka.

Bílstjórinn ósáttur vegna rannsóknar

Blaða­maður Mannlífs hafði samband við leigu­bílstjórann sem ók bifreiðinni þessa örlaga­ríku nótt. Hann er á níræðis­aldri og búsettur á Ísafirði. Hann var ósáttur með að taka ætti rann­sóknina upp að nýju.

„Þá er semsagt verið að ýja að því að þetta hafi verið morð,“ sagði hann í samtali við blaðamann. „Þetta er bara bull. Það er verið að búa til eftir 50 ár glæpamál úr því sem er löngu búið að fara í gegnum. Þetta er furðulegt.“

Aðspurður hvort hann gæti sagt blaða­manni eitthvað um atburði þessarar nætur og það hvernig hann myndi eftir slysinu og tildrögum þess var hann ómyrkur í máli:

„Nei, ég hef annað að gera en að standa í svona fávita­hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá