Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Neitar að hafa reynt að tæla til sín ungar stúlkur: „Þetta er alveg hræðilegt!“

Austurbæjarskóli
Aust­ur­bæj­ar­skóli

Eldri maður var í gær sakaður um að reyna að tæla unga stúlku upp í bílinn sinn við Austur­bæjarskóla. Maðurinn neitar stað­fastlega.

Í gær birti maður nokkur ljósmynd af bílnúmeri á Facebook og bað vini og kunningja sína sem búa í kringum Austur­bæjarskóla að hafa augun opin fyrir þessum bíl. Segir hann ökumann bílsins hafa reynt að tæla stelpu úr fimmta bekk upp í bílinn sinn. „Vinir og kunningjar í kringum Austó! Þessi bíll er að reyna að lokka ungar stúlkur til sín! Úr 5. bekk!! 10 og 11 ára!! Höfum augun opin fyrir þessum viðbjóð! Endilega deila áfram.“

Skiljanlega urðu viðbrögðin gríðar­lega sterk og hófst leit að bílstjóranum en með hjálp internetsins var hægt að finna bæði fullt nafn og símanúmer mannsins. Reyndist hann vera karlmaður í eldri kantinum. Sá svaraði færslunni: „Dettur ekki í hug að tæla einhverjar stelpur! Lagði í 5. mínútur fyrir utan Sund­höllina og fór ekki einu sinni út úr bílnum.“

Uppruna­maður færslunnar svaraði bílstjóranum: „Það er þá bara frábært mál og við erum eitthvað að misskilja börnin okkar… ég reikna þá með að þú hafir líka augu og eyru opin fyrir svona viðbjóð! Takk kærlega fyrir það.“

Bílstjórinn svaraði svo í tvígang: „Já það skal ég gera.“ og „Já þetta er viðbjóður enda er ég sjálfur búinn að hringja í lögregluna.“

„Frábært,“ svaraði uppruna­maðurinn þá.

Ekki voru allir þeir sem skrifuðu athugasemd við færsluna, sátt við þessa aðferð uppruna­mannsins en þeim fannst full gróft að birta mynd af bílnúmeri hjá meintum barna­níðingi: „Þú verður að gefa betri skýringu fyrir því af hverju þú ert að hengja hann út sem kynferðis­afbrotamann. Hver tók myndina? Af hverju? FYRST þú ert að leika löggu, verður þú að vera nýja starfi þínu vaxinn,“ skrifaði einn ósáttur.

Uppruna­maðurinn svaraði um hæl: „Ég hef ekkert hengt neinn sem afbrota­mann en ég hafði samband við manninn… eftir nokkrar sögur frá krökkum og foreldrum… hef aldrei kallað hann kynferðis­afbrotamann… þú gerðir það! Ég mun fylgjast vel með áfram og aumingjar eins og þú geta móðgast heima hjá ykkur fyrir hans hönd.“

Annars staðar svarar uppruna­maðurinn konu sem finnst hann ganga of langt með birtingu bílnúmersins: „afhverju eru margar myndir af þessum bíl og margar sögur frá okkar börnum tengd þessum bíl… er hann bara svona óheppinn að vera á vitlausum stað.. löggan veit af þessu en getur ekkert gert fyrr en eitthvað alvarlegt gerist! Skal frekar biðjast afsökunar og pósta útum allt þegar við hættum að fá fréttir af þessu bílnúmeri.“

Mannlíf hringi í bílstjórann og spurði hann út í málið og hvort það sé ekki erfitt þegar bílnúmer manns birtist með færslu sem þessari. Maðurinn tók illa í símtalið en svaraði þó: „Jú, það er bara hræðilegt!“ Endurtók hann einnig sína hlið, hann hafi bara lagt bílnum við Sund­höllina í fimm mínútur og ekki reynt að tæla neina upp í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning