Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Það er skammarlegt ef við erum með börn hér á skólaaldri og getum ekki verið með þau í skóla“

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra

Mennta- og barnamála­ráðherra, Ásmundur Einar Daðason, segir það ekki koma til greina að flótta­börn komist ekki í skóla, en sveitar­félög hafa kallað eftir fjármagni til að sinna þeim, eins og kemur fram í frétt RÚV.

Á Íslandi eru aðeins fimm sveitar­félög af sextíu og fjórum, sem taka við fólki á flótta; hefur aðgerðar­stjóri yfir móttöku þeirra kallað eftir að fleiri sveitar­félög stígi inn í.

Formaður Sambands íslenskra sveitar­félaga sagði í fréttum í vikunni að fjármagn sem eigi að fylgja flótta­fólki, frá stjórn­völdum, sé óskýrt og að ríki og sveitar­félög verði að koma sér saman um hvernig eigi að fjármagna fjölgun barna í skólum; það séu börn sem tala jafnvel ekki íslensku.

Segir Ásmundur Einar að ríkis­stjórn og sveitar­félög ræði nú um samræmda móttöku:

„Það er eitt sem kemur að minnsta kosti ekki til greina, það er að þessi börn fái ekki notið náms. Okkur sem stjórn­völdum, þá meina ég bæði ríki og sveitar­félög, ber skylda til þess að einstaklingar sem hér eru fái nám og við munum ekki láta það liðið að það gangi ekki eftir, en við erum í samtali um þessi mál. Það er skammarlegt ef við erum með börn hér á skóla­aldri og getum ekki verið með þau í skóla, þar þurfum við að grípa inn í, það samtal er í gangi en það er ekki komin lending í þau,“ sagði Ásmundur Einar sem var spurður hvenær hann búist við lendingu í málinu:

„Það verður að gerast mjög fljótlega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning