Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Illugi hvetur Katrínu til að sýna hugrekki: „Gambítur Katrínar og Svandísar mistókst herfilega“

Illugi Jökulsson.
Illugi Jök­uls­son.

Illugi Jökulsson gagnrýnir forsvars­konur Vinstri grænna harkalega í nýrri færslu á Facebook þar sem hann segir tilraun þeirra til að hemja Sjálfstæðis­flokkinn hafi misekist.

Illugi Jökulsson fjölmiðla­maður og samfélags­rýnir skrifaði í gær færslu á Facebook og hlekkjaði við hana frétt. Í fréttinni reynir Katrín Jakobs­dóttir að útskýra fylgistap flokksins í skoðana­könnunum en nú mælist flokkurinn hennar ekki með nema rúmlega sjö prósent fylgi. Kveðst Illugi trúa því að í byrjun hafi þær Katrín og Svandís Svavars­dóttir, trúað því að hægt væri að temja Sjálfstæðis­flokkinn til góðra verka.

„Sko. Ég trúi því alveg að þegar Katrín ákvað að fara í stjórn með Sjálfstæðis­flokknum 2017, þá hafi hún trúað því í einlægni — og tekist að telja Svandísi trú um það líka (það þurfti ekki að sannfæra Steingrím J.) — að þetta yrði gæfuspor og henni myndi í krafti þess persónu­valds sem hún sjálf og svo margir aðrir trúðu að hún byggi yfir, þá myndi henni takast að hemja Sjálfstæðis­flokkinn og temja hann til góðra verka. Já, ég get alveg ímyndað mér að hún hafi trúað því, þótt eiginlega allir aðrir sæju þegar í hendi sér að fyrir vinstra fólk í landinu og alþýðu manna var þetta frá upphafi feigðarflan og myndi enda með ósköpum (samanber margfræg orð Drífu Snædal um að það yrði hlut­skipti VG að éta skít upp á hvern einasta dag),“ skrifaði Illugi í byrjun færslunnar.

Í næstu orðum hvetur Illugi forsætis­ráðherrann til að sýna pólitískt hugrekki og viðurkenni að tilraun hennar til að ráða við Bjarna Benediktsson, hafi mistekist og það herfilega.

„En nú þarf Katrín að sýna að hún hafi til að bera pólitískt hugrekki, þótt hún reyndist ekki hafa persónu­vald til að ráða við Bjarna Benediktsson (sem haft hefur betur á öllum sviðum), þá hafi hún nú kjark til að viðurkenna að þessi tilraun hennar MISTÓKST. Fylgis­hrun VG er ekki spurning um erfið­leika flokksins í samskiptum við kjósendur sínar, heldur mistókst þessi gambítur Katrínar og Svandísar — og hann mistókst herfilega.“

Í lokaorðum sínum segir Illugi Katrínu hafa „sorglega litla pólitíska virðingu eftir“ en vonar að hún geti enn bætt úr því.

„Og að sjá hana reyna að herða sig upp í gömlu lummuna sem lélegir pólitíkusar nota alltaf þegar illa árar — við-höfum-bara-einmitt-núna-verið-að-fást-við-svo-erfið-mál-en-strax-og-við-náum-að-koma-því-betur-til-skila-hvað-við-erum-frábær-þá-mun-allt-breytast, það er eiginlega fyrir neðan hennar virðingu. En eftir þessi hörmulegu ár með Bjarna, þá á Katrín raunar sorglega litla pólitíska virðingu eftir. — En vonandi getur hún enn bætt úr því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá