Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ugla Stefanía svarar Sigmundi fullum hálsi: „Illa ígrunduð yfirhylming og vanþekking“

Ugla Stefanía og Sigmundur Davíð.
Ugla Stefanía og Sig­mundur Davíð.

Ugla Stefanía Kristjönu­dóttir Jóns­dóttir, kynja­fræðingur og baráttu­kona fyrir réttindum trans­fólks gagnrýnir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, harkalega vegna ummæla sem hann viðhafði í þættinum Sprengis­andi á Bylgjunni. Hún segir málflutning hans bera vott um „vanþekkingu og vanþóknun“ á réttinda­baráttu hinsegin fólks.

Þing­mennirnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Helga Vala Helga­dóttir voru gestir Heimis Karls­sonar í þættinum Sprengis­andi á Bylgjunni í gær. Þar ræddu þau þátt Alþingis í réttinda­baráttu hópa, umburðar­lyndi í samfélags­umræðu og þróun íslenskrar tungu. Sérstak­lega var rætt um breytta heimsmynd og þróun í málum hinsegin fólks, til að mynda með lögum um kynrænt sjálfræði.

Ugla Stefanía, sem er fyrrum formaður Trans Ísland, skrifaði færslu á Facebook eftir þáttinn þar sem hún gagnrýnir orðræðu Sigmundar Davíðs harðlega. Hún segir hann hafa farið „með allskonar fleipur um lög um kynrænt sjálfræði“ og talað „ítrekað niður til réttinda­baráttunnar, eða aktívisma, og mikilvægi hennar í tengslum við laga­setningar.“

Hún minnist sérstak­lega á ummæli Sigmundar um að hópar aktívista hafi skrifað lög um kynrænt sjálfræði og að löggjafinn hafi afsalað sér völdum til þeirra.

Mikil vinna ýmissa sérfræðinga að frumvarpinu

„Þetta er auðvitað stórkost­lega mikil þvæla — og líka gríðarleg vanvirðing við það starf sérfræðinga og fagfólks sem kom að smíðum frumvarps um kynrænt sjálfræði.

Sá hópur sem kom að smíðum þessa frumvarps var fólk úr gras­rótinni, lögfræðingar, kynja­fræðingar, félags­fræðingar, siðfræðingar, þingfólk, og spreng­lært fólk og aðrir sérfræðingar í málefnum hinsegin fólks,“ segir Ugla Stefanía.

Hún áréttar að vinnan við frum­varpið hafi tekið hátt í fjögur ár. Ríkt samráð hafi verið haft „við allar helstu stofnanir, hagsmuna­félög, kven­réttinda­félög og önnur mann­réttinda­samtök.“ Hún segir að það að Sigmundur Davíð smætti vinnu þessara hópa niður í „hóp aktívista“ lýsi „engu nema vanþekkingu og vanþóknun hans á réttinda­baráttu hinsegin fólks.“

Hún lýsir því að um leið og frum­varpið hafi farið í hendur ráðuneytis og til afgreiðslu á Alþingi hafi það verið komið úr höndum þessara hópa. Þá hafi tekið við nefnda­vinna, umræður í þinginu og loks atkvæða­greiðsla. Hún bendir á að í meðförum þingsins hafi margt breyst í frum­varpinu.

Hún segir að í atkvæða­greiðslu taki þingfólk meðvitaða ákvörðun um frum­varpið út frá því ferli sem hafi átt sér stað og áliti sérfræðinga. Nær allt þingfólk hafi kosið með frumvarpi um kynrænt sjálfræði, að Miðflokknum undan­skyldum.

Segir Sigmund seint geta talist kvenréttindafrömuð

Ugla segir þær stað­hæfingar að lög um kynrænt sjálfræði stangist á við réttindi kvenna úr lausu lofti gripnar. Það hafi haft víðtækan stuðning allra helstu mann­réttinda­samtaka, til að mynda Kven­réttinda­félags Íslands.

„Það hlýtur að teljast vandræðalegt fyrir SDG að gera sig út fyrir að vera verndari kven­réttinda — en kynja­halli hafði ekki verið meiri í hans ríkis­stjórnartíð en síðan 1999, þar sem eingöngu þrjár af níu ráðherrum voru konur. Þess má geta að hann kaus líka á móti rýmkunar til þungunar­rofs á sínum tíma, og getur því seint talist vera mikill kven­réttinda­frömuður, þótt fátt sé nefnt,“ segir Ugla Stefanía.

„Sú tilraun til að grafa undan réttinda­baráttu trans fólks og hinsegin fólks með vísun í kven­réttindi er því lítið annað en illa ígrunduð yfir­hylming og vanþekking á þessum mála­flokkum. Svona taktík er sambærileg þeim aðferðum þegar réttindum öryrkja og eldra fólks er etjað gegn innflytjendum og hælis­leitendum. Þessar aðferðir eru því mjög lævísar og slóttugar, og til þess gerðar að grafa undan réttinda­baráttu frekar en að vernda fólk.

Ég held það væri því betra að miðlar eins og Bylgjan myndu frekar ræða við raun­verulega sérfræðinga sem búa yfir þekkingu á mála­flokkum. Slíkt myndu skapa mun betri og málefnalegri umræður um þessi málefni sem eru til þess að upplýsa og fræða — í stað þess að hræða og afvega­leiða,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá