Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Anna fór í störukeppni við skrímsli: „Lengi lék vafi á hvort okkar myndi sigra“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Anna Kristjáns­dóttir skrifar um baráttu sína við skrímsli á Tenerife, sem hún kallar reyndar vorboðann ljúfa.

Eins og alþjóð veit heldur Anna Kristjáns­dóttir úti dagbókar­færslum sem hún birtir á Facebook á hverjum degi. Í færslu dagsins segir hún frá baráttu sinni við lítið „skrímsli“ sem mætti óumbeðið á heimili hennar í Paradís. Færslan er drep­fyndin að vanda en hana má lesa hér að neðan:

„Dagur 1344 – Vorboðinn ljúfi.

Ég sat á settinu í fyrra­kvöld og rétt búin að ljúka mér af þegar ég heyrði þennan dómadags­hávaða frá útidyra­hurðinni, hún lyftist upp næstum af hjörunum og undan hurðinni kom skríðandi þetta skaðræðis skrýmsli sem engu virtist vilja eira. Mér brá ekki lítið, hljóp fram á gang og hvessti augum á skrýmslið sem hvessti augunum á móti mér og þarna var störu­stund dauðans og lengi lék vafi á hvort okkar myndi sigra. Þetta var hræðileg stund og ég óttaðist, ekki aðeins um líf mitt og heilsu, heldur einnig um æru mína.Eftir að manndráps­augun höfðu barið hvert á öðru um stund í þeirri von að hitt myndi detta niður dautt, gafst skrýmslið upp, snéri við og hörfaði til baka, útidyra­hurðin lyftist og skrýmslið skreið þar undir og fram á ganginn í sameigninni og lét sig hverfa. Það er kominn tími til að útidyra­hurðin hjá mér fái að blotna hressilega svo hún nái að þrútna nógu mikið til að litlir kakka­lakkar nái ekki að skríða undir hana.Þetta var þá bara pínu­lítill kakka­lakki, vorboðinn ljúfi sem gerir engum mein og er hvers manns hugljúfi.Eða hvað?Þetta er annar kakka­lakkinn sem ég sé innan sameignarinnar þetta árið og er ekki frá því að kakkalakkarnir séu óvenjusnemma á ferðinni í ár sem er einkennilegt miðað við fimbulkulda vetrarins sem hefur ríkt hér í vetur. Hinn kakka­lakkinn var öllu stærri og með vængi og hafði lent í miðjum stiganum bakdyramegin, en hafnaði á bakinu og slíkt kann ekki góðru lukku að stýra og því harmdauði öðrum ættingjum sínum.Það stefnir í gott kakkalakkaár þetta árið, en af gefnu tilefni fylgja engar myndir þessari frásögn.—–Ég mætti á Íslendinga­hitting á Mónikubar í gær, afsakið Lewinski bar. Það var svo sannarlega tilefni til í þetta sinn því Sverrir og Kolla voru þar, en Sverrir Gunnlaugsson var skips­félagi minn á henni Vestmannaey VE um fimm ára skeið árin 1974-1980, 1. stýri­maður og afleysningaskipstjóri, virkilega góður félagi, Siglfirðingur að uppruna, en hefur búið í Vestmanna­eyjum frá því nokkru fyrir gos, en ef frá er talinn tíminn sem þau hjónin bjuggu í ráðsmanns­bústaðnum á Bessa­stöðum vegna gossins og síðan um tíma í kaupfélags­blokkinni í Hafnar­firði, hafa þau hjónin búið í Vestmanna­eyjum. Kolbrún er hinsvegar eðal Vestmanna­eyingur.Þau hafa átt íbúð hér í Paradís í mörg ár, en hafa ekki komið hingað lengi vegna veikinda Kollu, en eru loksins komin hingað og varð það fagnaðar­fundur. Þess má geta að þrátt fyrir ítarlegar umræður um menn og málefni, fékk enginn Eyjamaður né kona hiksta vegna orða okkar. Það er ekki í eðli hvorki Sverris né Kollu að tala illa um nokkra persónu og ekki þorði ég að véfengja góð orð þeirra.Það er á hreinu að við munum hittast oftar næstu tvær vikurnar áður en þau fara heim aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt