Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ragnheiður Þóra Ólafsdóttir í Grindavík: „Er ekki örugglega að fara að gjósa fyrir kvöldmat?“

Ragnheiður Þóra Ólafsdóttir
Ragn­heiður Þóra Ólafs­dóttir

„Ég náði klukku­tíma svefni aðfara­nótt mánudags; sú nótt var afleit. Hún var sú versta,“ segir Ragn­heiður Þóra Ólafs­dóttir, íbúi í Grindavík, um áhrif jarð­skjálftanna. „Þetta er óþægileg upplifun; þetta var stöðugur hrist­ingur og við finnum nátt­úrlega fyrir öllum skjálftum sem eru yfir tveir á Richter af því að upptökin eru svo nálægt okkur. Þetta kvöld og þessa nótt voru enda­lausir skjálftar og flestir á milli þrír og rúmlega fjórir á Richter að stærð.

Mér finnst óhuggulegt að vakna við harðan skjálfta. Mér finnst best að vera á vappinu; vera bara á hreyfingu sjálf af því að þá finn ég ekki eins mikið fyrir þessu. Eina nóttina í fyrra held ég að ég hafði náð um 9000 skrefum; þá var ég bara á ferðinni á meðan allir strákarnir mínir og maðurinn minn sváfu. Þeir veltu sér bara á hliðina þegar skalf og náðu að sofna aftur.“

Ragn­heiður, eigin­maður hennar og yngsti sonur þeirra voru í heita og kalda pottinum í sund­lauginni í Grindavík þegar stóri skjálftinn reið yfir á sunnu­daginn. „Við vissum bara ekki hvaðan á okkur stóð veðrið; við héldum að kaldi potturinn myndi fara á hliðina og sund­laugin breyttist í öldulaug. Svo tæmdust báðir heitu pottarnir á auga­bragði. Svo kom í ljós að vatns­lagnir og tengingar höfðu gefið sig í skjálftanum og pottarnir tæmdu sig beint í kjallarann og kom slökkviliðið til að tæma hann.“

Versta til­finn­ingin teng­ist því hvað getur gerst.

Jú, jörð hefur skolfið mikið undan­farin misseri á svæðinu. „Við erum nátt­úrlega orðin þokkalega vön hérna í Grindavík. En versta tilfinningin tengist því hvað getur gerst. Það er alltaf verið að segja manni að húsin séu vel byggð og maður veit það alveg en versta tilfinningin er þegar hugurinn ber mann aðeins lengra heldur en maður á að fara með hann. Það er kannski erfiðast í þessu.“

Ragn­heiður segir að mesta óvissan hvað sig varðar tengist yngsta syni hennar sem er 14 ára. „Hann er ekki með bílpróf og mér finnst það vera óþægilegt en þegar ég fór í vinnuna í morgun hugsaði ég með mér hvað myndi gerast ef það kæmi stór skjálfti og fara að gjósa og það þyrfti að rýma og hann væri einn heima.“

Einhvern krúttlegan stað

Ragn­heiður segir að þegar byrjaði að gjósa við Fagradals­fjall í fyrra eftir langt skjálfta­tímabil þá hafi þau verið svo fegin að vera laus við þessa jarð­skjálfta og hún viðurkennir að hún hafi verið svolítið smeyk við þá. „Ég horfið á gosið út um eldhús­gluggann hjá mér; ég horfði á gosið þegar ég var að vaska upp og mér fannst það vera pínu óþægilega nálægt en núna þegar jarð­skjálftarnir eru byrjaðir aftur þá hugsar maður að nú megi fara að gjósa. Það er lausnin fyrir okkur. Þetta voru hjá mér þrjár svefn­lausar vikur í fyrra áður en byrjaði að gjósa; ég var orðin rangeygð af svefn­leysi. Ég var orðin lang­þreytt og núna hugsar maður „fínt, er ekki örugglega að fara að gjósa fyrir kvöldmat?“ Við viljum einhvern krútt­legan stað eins og hitt gosið var á. En við megun ekki fara með hugann of langt af því að ef það myndi gjósa á bak við Þorbjörn þá værum við nátt­úrlega ekki í góðum málum.“

Ragn­heiður segir að þrátt fyrir allt séu Grind­víkingar tiltölu­lega rólegir. „Hér hafa allar eignir selst. Það er ótrúlegt; við héldum nefnilega þegar byrjaði að gjósa í fyrra að við yrðum í verð­lausum eignum og að enginn myndi vilja vera hér en raunin varð önnur. Það seljast öll hús og það virðist ekki vera neinn bilbugur í fólki að koma hingað og vera hérna.“

Þá fer maður kannski að spá í að það væri kannski betra að vera ein­hvers staðar ann­ars staðar.

Ragn­heiður fæddist og ólst upp í Grindavík. „Það hefur aldrei hvarflað að mér að flytja héðan en þegar maður les það sem haft er eftir vísinda­mönnum að við séum að fara inn í eitthvað svakalegt tímabil, jafnvel tugi ára, þar sem þetta verður svona þá fer maður kannski að spá í að það væri kannski betra að vera einhvers staðar annars staðar.“

Síminn, fötin og bensínið

Ragn­heiður er spurð hvað hún hafi lært af því að upplifa þessa skjálfta undan­farin misseri og svo gosið við Fagradals­fjall.

„Maður þarf að taka svolítið til í hausnum. Þegar maður var orðinn svona svefnlaus í fyrra og úrvinda af þreytu þá fór maður að hugsa kolvitlaust og mikla allt fyrir sér og maður hafði sig ekki í neitt. Maður þorði ekki að fara út úr bænum ef eitthvað myndi gerast og synirnir væru heima. Þetta voru alls konar hugsanir. Maður þarf samt að reyna að hafa þetta sem eðlilegast þó þetta sé á bak við eyrað en það sækja að manni hugsanir sem maður er pínu smeykur við. En aðal­atriðið er að halda haus og reyna að hafa þetta sem eðlilegast. Í fyrra svaf ég alltaf með símann inni hjá mér sem ég gerði annars aldrei, var með föt við rúmið mitt og passaði alltaf upp á að það væri nóg bensín á bílnum. Ég er ekki farin að gera þetta aftur en ég mun alltaf passa upp á að það sé nóg bensín á bílnum þannig að ég geti komist í burtu en öðru er ég tiltölu­lega róleg yfir; ef ég kæmist með fjöl­skylduna mína þá væri mér nokkuð sama um restina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið