Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Að eltast við eltihrelli – I Am A Stalker á Netflix

Upp á síðkastið hafa þættirnir I Am A Stalker á Netflix átt hug minn allan en það eru heimildar­þættir sem fjalla um svokallaða elti­hrella. Má jafnvel segja að ég sé kominn með þá á heilann. Svona til að vera í stíl við innihald þeirra.

Hver þáttur fjallar um einn elti­hrelli og mál hans. Tekið er viðtal við elti­hrellinn sjálfan sem og fórnar­lömb hans og aðra sem tengjast málinu á einhvern hátt. Þá er einnig farið vel yfir hvert mál og stundum eru alvöru myndbands­upptökur frá málinu sýndar. Sem sagt, þetta eru afar vandaðir þættir, mikið í þá lagt greini­lega og mikil rannsóknar­vinna á bakvið hvern þátt.

Það sem mér finnst hins vegar áhuga­verðasta við þættina er innsýnin sem maður fær inn í huga elti­hrellanna. Ekki misskilja mig, þeir eru gríðar­lega óhugnanlegir og stór­hættulegir en mikið helvíti er heillandi að skyggnast inn í huga þeirra. Svona utan frá að minnsta kosti.

Í einum þættinum var fjallað um mál manns sem hafði átt ægilega bágt en hann hafði fyrir algjöra slysni keyrt yfir son sinn og lést sonurinn. Fullur af sektar­kennd fór hann að misnota eiturlyf og áður en varði var hann farinn að beita konu sína ofbeldi. Hún flúði með tveggja ára son þeirra í annað ríki í Banda­ríkjunum og við tók hrotta­legur eltihrella­tímabil sem endaði á tja, ég ætla ekki að skemma neitt fyrir væntanlegan áhorfanda. Þarna var ég búinn að fatta, að ég hélt, að maðurinn hefði orðið svona illa bilaður við að verða valdur að dauða sonar síns og sárvorkenndi honum. En svo kom annað í ljós, hann hafði elti­hrellt aðrar kærustur áður þannig að hann var búinn að vera bilaður ansi lengi.

Í Banda­ríkjunum berast yfir þrjár milljónir tilkynninga á ári hverju um elti­hrella. Ekki veit ég töluna hér á landi en einhvern veginn efast ég um að ástandið hér sé eitthvað mikið betra, svona miðað við höfðatölu auðvitað. Eltihrellamál hafa reglulega ratað í fjölmiðla í gegnum tíðina en nú er algengara að finna frásagnir af slíku á samfélags­miðlunum og það sem maður hefur séð er alls ekkert svo ólíkt því sem sést í þessum þáttum. Þetta er saga af þráhyggju, eignarhalds­fíkn og algjöra veruleika­firringu, svo eitthvað sé nefnt. Og það er afar athyglis­vert að horfa á. Svona utan frá að minnsta kosti.

Fjölmiðla­pistill þessi birtist í nýjasta tölublaði Mannlífs sem fæst ókeypis í Bónus og Hagkaupum á Höfuð­borgar­svæðinu og nágrenni. Þá er einnig hægt að lesa blaðið í rafrænni útgáfu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis