Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Í fyrsta sinni áfangaheimili fyrir konur í Reykjavík: „Boðið skjól og öryggi“

Séð inn í íbúð hjá einum íbúa áfangaheimilisins. Mynd/skjáskot. Vefur Reykjavíkurborgar
Séð inn í íbúð hjá einum íbúa áfanga­heim­il­is­ins. Mynd/skjá­skot. Vefur Reykja­vík­ur­borgar

Reykja­víkurborg var að opna fyrsta áfanga­heimilið fyrir konur og er það til húsa að Njálsgötu í Reykjavík. Í húsinu eru þrettán einstaklings­íbúðir, ein starfsmanna­íbúð og sameiginlegt rými.

„Opnun áfanga­heimilisins er mikil­vægur liður í því að bæta þjónustu við heimilis­lausar konur í Reykjavík. Þeim boðið skjól og öryggi þar sem þeim er mætt á þeirra forsendum,“ segir Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri á vef Reykja­víkurborgar.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri afhendir Guðrúnu Þorgerði Ágúst­dóttur blóm­vönd í til­efni opn­unar áfanga­heim­il­is­ins. Mynd/skjá­skot. Vefur Reykja­vík­ur­borgar

Uppbygging þjónustu við heimilis­lausa í Reykjavík hefur á undan­förnum árum verið frekar sniðin að þörfum karla en kvenna, líkt og fram kemur í stefnu Reykja­víkurborgar um málefni heimilis­lausra með miklar og flóknar þjónustu­þarfir.

Unnið með áfallamiðaða hugmyndafræði

Markmiðið er að veita einstaklingum sem hætt hafa neyslu öruggt heimili, stuðning og aðhald meðan þeir aðlagast samfélaginu á nýjan leik. Á vef Reykja­víkurborgar segir að á áfanga­heimilinu verði unnið eftir áfalla­miðaðri hugmynda­fræði með náinni samvinnu við Miðstöðvar velferðar­sviðs og viðkomandi meðferðar­aðila.

Heimilið er tíma­bundið húsnæði og hugsað til þess að leysa bráðan húsnæðis­vanda þeirra sem hafa átt við áfengis- og annan vímuefna­vanda að stríða og eru í virkri endur­hæfingu eftir meðferð.

Guðrún Þorgerður Ágústs­dóttir, félags­ráðgjafi, er forstöðu­kona áfanga­heimilisins, en hún hefur unnið með einstaklingum sem hafa glímt við áfengis og vímuefna­vanda. Guðrún starfar einnig sem forstöðu­maður áfangaheimilsins Brautin, sem er fyrir karla sem lokið hafa áfengis- og vímuefna­meðferð.

Áætlaður kostnaður vegna reksturs áfanga­heimilisins verði allt að 25 milljónir króna á ári og er þá miðað við að forstöðu­maður sé í dagvinnu og félags­ráðgjafi í hálfu starfi.

Í Reykjavík er nú starfrækt níu áfanga­heimili sem ýmist eru rekin af félaga­samtökum eða af Reykja­víkurborg. Áfanga­heimilin rýma um  það bil 200 einstaklinga og eru Njáls­gatan og Brautin rekin af Virkni­húsi. Reykja­víkurborg telur reynsluna af áfanga­heimilinu Brautinni sýna að afar mikilvægt sé að tryggja að til staðar séu einstaklings­áætlanir um virkni og bata, samhliða því að tryggja öruggt húsnæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið