Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Stefán fer ekkert einn eins og hann gerði“

„Þetta eru Stefán Hrafnkelsson hugbúnaðar­verk­fræðingur, fyrr­verandi stofnandi og framkvæmda­stjóri Betware og konan hans Anna Ólafía Sigurðar­dóttir sérfræðingur í hjúkrun á Land­spítala og klínískur dósent við Háskóla Íslands. Stefán greindist 58 ára með Alzheimer vorið 2017. Þeirra mottó er „Ég er enn ég, mitt mottó er að lifa lífinu og gleyma ekki gleðinni“. Þetta er þeirra saga.“

Svo hefst færsla frá Alzheimersamtökunum en þar er farið yfir hvaða afleiðingar það hefur haft fyrir Stefán að greinast með Alzheimer. Þrátt fyrir að sjúk­dómurinn komi í veg fyrir að hann geti gert margt þá lifir hann þó ágætu lífi.

„Stefán hafði fundið fyrir vaxandi minnis­tapi og minnkandi færni um nokkurra ára skeið. Greiningar­ferlið hjá Stefáni var langt og erfitt en þegar hann fékk loksins Alzheimer greiningu fann hann fyrir létti. Fyrir fjöl­skylduna var þetta mikið áfall. Þetta er erfiður sjúkdómur sem hefur áhrif á alla innan fjöl­skyldunnar, ekki bara hinn veika,“ segir í færslu samtak­anna.

Einna erfiðast fyrir Stefán sé að hann á erfitt með tal. „Það sem Stefáni hefur fundist vera erfiðast er að geta ekki tjáð sig nægilega vel enda er málstolið mikið. Það hefur verið erfitt að horfa á ástvin sinn í blóma lífsins missa færni við að framkvæma einfalda hluti. Stefán fer ekkert einn eins og hann gerði, álagið á nánustu fjöl­skyldu hefur aukist til muna. Hann þarf meiri aðstoð við daglegar athafnir eins og að klæða sig, útbúa mat og fleira. Þetta er langhlaup og sorgar­ferlið er mjög langt.

Fjöl­skyldan hefur farið hratt vaxandi síðustu ár, barnabörn bæst í hópinn og við höfum einsett okkur að standa þétt saman og umvefja hvert annað af ást og kærleik. Stefán á einstakt samband með sínum barna­börnum þar sem hann getur leikið við þau án þess að þurfa að tjá sig mikið. Við eigum líka mörg systkini og vini sem hafa stutt okkur í gegnum veikindin sem hefur verið mjög dýrmætt.“

Þrátt fyrir þetta þá hefur honum gengið vel að takast á við sjúk­dóminn. „Það hefur gengið vel hjá Stefáni og við höfum getað eytt miklum tíma saman. Við fjöl­skyldan nýtum hans styrk­leika sem mest og njótum lífsins. Hann tekur þátt í okkar daglega lífi, hann hleypur, spilar golf og ferðast með okkur, ótrúlega jákvæður og glaður.  Stefán hefur farið í Hlíðabæ sem er dagþjálfun fyrir einstaklinga með heila­bilun frá árinu 2019. Þar hittir hann vini sína og hefur hann verið mjög ánægður alla daga. Þar er frábært starfs­fólk og einstak­lega fjöl­breytt starf sem hentar vel þeim einstaklingum sem hafa greinst ungir með heila­bilun.“

Minni fordómar gegn Alzheimer-sjúklingum hefur skipt sköpum. „Opin umræða um sjúk­dóminn hefur hjálpað okkur mikið. Við fjöl­skyldan og vinir stofnuðum hlaupa­hópinn Gleymum ekki gleðinni og styrktum þannig Alzheimersamtökin í nokkur ár í gegnum Reykja­víkur­maraþonið. Þrátt fyrir að minnið látið undan síga þá er mikilvægt að gleyma ekki gleðinni.

Alzheimersamtökin hafa unnið mjög gott starf. Þegar Stefán greinist með Alzheimer var vel tekið á móti okkur í samtökunum og fengum við strax góðan stuðning. Frumkvöðla­hópurinn var stofnaður fyrir nokkrum árum sem samanstendur af ungum einstaklingum með Alzheimer og mökum þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning