Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Hafsteinn fór tvisvar sinnum holu í högg í sömu vikunni: „Þetta er bara fáránlegt“

Hafsteinn hæstánægður með árangurinn
Haf­steinn hæstá­nægður með árang­ur­inn Mynd: Facebook-skjáskot

Hafsteinn Gunnarsson kylfingur í Gólf­klúbbnum Leyni á Akranesi fór tvisvar sinnum holu í höggi í sömu vikunni, geri aðrir betur!

Undan­farið hefur kylfingnum Hafsteini Gunnars­syni í Gólf­klúbbnum Leyni á Akranesi gengið einstak­lega vel á golf­vellinum. Skessu­horn fjallaði um þetta á dögunum en Hafsteinn fór tvisvar holu í höggi í sömu vikunni. Á mánudaginn í síðustu vikur fór hann holu í höggi á 18. holu í Garða­velli er hann tók „létta 8 á móti vindi, hátt boltaflug sem lenti um tvo metra frá holu og rúllaði svo bara í. Geggjað!“ eins og Hafsteinn lýsti þessu á Facebook. Fimmtudaginn í sömu viku skellti hann sér svo í golf í blíðskapar­veðri á Garða­velli og gerði sér lítið fyrir og fór aftur holu í höggi. „Þetta er auðvitað ótrúlegt en ég fór aftur holu í höggi í dag! Núna var það á 8. holu á Garða­velli, 6 járn á móti örlitlum vindi. Þetta er ekki hægt,“ skrifaði Hafsteinn á Facebook.

Skessu­horn heyrði hljóðið í Hafsteini en hann var frekar hátt uppi og var ekki alveg að trúa þessu eins og það er orðað hjá miðlinum. „Þetta er bara fáránlegt, maður var bara að hugsa í bæði skiptin: Er þetta pottþétt í? en þetta er stórkostleg tilfinning. Maður trúði þessu ekki alveg þarna í seinna skiptið.“ Aldrei áður hafði Hafsteinn farið holu í höggi á ferlinum en hefur verið nálægt því tvisvar sinnum.

Aðspurður hvenær hann ætli að fara þriðju holuna í höggi svaraði hann hlæjandi: „Fyrsta sem ég ætla að gera er að kaupa mér lottómiða fyrir kvöldið og ætli maður taki ekki bara helgina í það að ná holu í höggi, það yrði eitthvað!“

Eftir þessa frábæru golfviku er Hafsteinn nú orðinn tvöfaldur félags­maður í Einherja­klúbbnum en tveir félags­menn í Leyni hafa fyrr í sumar komist í þennan eftir­sótta félags­skap. Sá fyrri er Svein­björn Brandsson sem sló „drauma­höggið“ eins og Skessu­horn orðar það, á þriðju braut um miðjan maí og sá seinni er Lárus Hjaltested sem var á 8. braut en áfanganum náði hann í byrjun júní. Líkurnar á að golfarar fari holu í höggi á Garða­velli í sumar eru því tals­verðar, miðað við þennan árangur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp