Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Ekkjan Sigrún braust úr fátæktargildru og lagði aleiguna í nýju íbúðina: „Ég læt ekki knésetja mig“

Sigrún Þorsteinsdóttir Holt,.
Sigrún Þor­steins­dóttir Holt,.

„Aleiga mín er í þessari íbúð. Ég læt ekki koma svona fram við mig,“ segir Sigrún Þorsteins­dóttir Holt, sem festi kaup á nýrri úbúð við Dalsbraut í Njarðvík. Hún segir að við afhendingu hafi komið í ljós fjölmargir og alvarlegir gallar sem ekki fáist lagfærðir þrátt fyrir kröfur hennar þar um.

Sigrún varð ekkja fyrir nokkrum árum. síðan hefur lífs­barátta hennar verið hörð. Hún hefur verið föst á leigu­markaði. Með tilkomu hlutdeildaarlána varð henni kleift að eignast sína eigin íbúð og losna úr fátæktar­gildru leigjandans. Hún átti að fá íbúðina, sem kostar 36.1 milljón, afhenta 31. janúar. Afhendingin dróst til 15 febrúar en þegar til kom var hún ekki tilbúin til þess að flyja inn þar sem fjöldi galla mætti henni.

Parketið á íbúð Sigrúnar.

„Mig dreymdi um að losna frá baslinu og eiga eitthvert líf. Ég var að greiða 225 þúsund krónur á mánuði í leigu en greiðslu­byrðin vegna íbúðarinnar er miklu lægri,“ segir Sigrún sem beið þess í ofvæni að flytja inn. En þá tók við að hennar sögn áfallið vegna aðkomunnar.

„Þetta er fúsk. Frá afhendingu er allt búið að koma í ljós sem á ekki að vera að nýrri eign. Allir gluggar hornskakkir, illa málað, parket á gólfi laust á öllum samskeytum, gæti flett því af með naglaþjöl. Skápar og eldhús­innréttingin rispuð . Hurða­húnar allir lausir og ekki einu sinni líkír þeim sem ég skoðaði í sýningar­íbúð. Og útihurðin lekur það mikið að í annað skipti á viku þurfti að negla fyrir hana Ég hef ekki getað flutt inn,“ skrifaði Sigrún á Facebook og óskaði eftir ráðgjöf í glímu sinni við fasteigna­salann.

Sigrún sagði í samtali við Mannlíf að Guðmundur Ingi Jónsson hjá Miðbæjar­fasteignum hefði tekið kvörtunum sínum illa. Hann hefði boðið henni 200 þúsund krónur afslátt af pareketinu en síðan hótað sér lögmanni. Sigrúnu sárnar viðrögð hans ekki síst í því ljósi að Guðmundur Ingi sé frændi sinn.

VIð svala­hurð­ina.

„Ég læt ekki knésetja mig. Viðgerðirnar kosta milljónir. Þetta er ofbeldi. Ég er búin að stöðva greiðslur til fasteigna­sölunnar þar til þetta kemst í lag,“ segir hún.

Guðmundur Ingi hjá Miðbæjar­fasteignum, stað­festir að hafa átt í samskiptum við Sigrúnu vegna málsins. Hann segist ekki hafa séð sér annað fært en að koma samskiptunum í það form að hafa lögmann með í ráðum. Samskiptin við Sigrúnu hafi engan veginn verið boðleg. Hann hafi viljað gera allt til þess að tryggja sættir en hann hafi ekki upplifað annað eins. Þannig sé ný útihurð á leiðinni og það hafi staðið tilað lagfæra eitt og annað. Sigr´æun hafi svo skipt um læsingar á dögunum og ekki hafi verið hægt að komast inn til lagfæringa. Aftur á móti sé parketið á ábyrgð Sigrúnar sem ekki hafi viljað fá aðra tegund á sínum tíma þegar verktakinn lagði það til. Slæm reynsla af þeirri gerð í fyrri íbúðum hafi orðið til þess að vilji var til að hætta við notkunina.

„Ég hef aldrei lent í öðru eins með viðskiptavin,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá