Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Lands­liðs­konur í ný störf

Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á yfirvöld vegna óvissu í sjávarútvegi – Lýsir þungum áhyggjum

Bæjarskrifstofa Fjarðabyggðar Mynd / Fjardabyggd.is
Bæj­ar­skrif­stofa Fjarða­byggðar Mynd / Fjar­da­byggd.is

Bæjarráð Fjarða­byggðar sendi bókun til fjár­mála,- atvinnu­vega- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra þar sem það lýsir yfir þungum áhyggjum vegna boð­aðra hækk­ana á veiði­gjöldum og auknum kvóta til strand­veiða.

Í bókun bæj­ar­ráðs­ins segir meðal ann­ars að hækkun veiði­gjalda muni auka kostnað útgerða á Aust­fjörðum ofan á tals­verðar hækk­anir sem urðu um ára­mótin. Þar segi einnig að fyr­ir­hug­aðar hækk­anir muni bitna á fjár­fest­ingum fyr­ir­tæki og draga úr afkomu þeirra.

Skorar bæj­ar­ráðið á yfir­völd að hafa sam­ráð við hags­muna­að­ila og fram­kvæma grein­ingu
á áhrifum boð­aðra breyt­inga á rekstur fyr­ir­tækja og sam­fé­lög sem byggja afskomu sína á sjáv­ar­út­vegi.

Hér má lesa bók­un­ina í heild sinni:

Bæjarráð Fjarða­byggðar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna óvissu sem nú ríkir í sjáv­ar­út­vegi í kjöl­far boð­aðra hækk­ana á veiði­gjöldum, einkum á upp­sjáv­ar­veiðar, ásamt þeim áhrifum sem boðuð aukn­ing á kvóta til strand­veiða kemur til með að hafa á aðra kvóta. Fjarða­byggð er sveit­ar­fé­lag sem byggir að stórum hluta á sjáv­ar­út­vegi og óvíða kemur meiri afli á land en þar og vel­gengni grein­ar­innar er und­ir­staða efna­hags­legrar og félags­legrar stöðu sam­fé­lags­ins.

Áhrifin á sjáv­ar­út­veg­inn og sveit­ar­fé­lagið:

– Hækkun veiði­gjalda mun auka kostnað útgerða á Aust­fjörðum ofan á umtals­verðar hækk­anir sem urðu um ára­mótin og veikja þannig fjár­hags­lega getu þeirra.

– Hækkanir á veiði­gjöldum koma ofan á óstöð­ug­leika sem þegar hefur ríkt í grein­inni, m.a. vegna loðnu­brests, skerð­inga á raf­orku og óvissu um mark­aðs­að­stæður.

– Fyrirséð er að slíkar hækk­anir muni bitna á fjár­fest­ingum fyr­ir­tækja, draga úr afkomu þeirra og veikja sam­keppn­is­stöðu þeirra á alþjóða­mörk­uðum. Þessar aðstæður hafa einnig afleidd áhrif á atvinnustig og tekjur sam­fé­lags­ins sem þegar hafa dreg­ist saman veru­lega vegna loðnu­brests á liðnu ári. Hefur það haft veru­leg áhrif á tekjur sveit­ar­fé­lags­ins Fjarða­byggðar eins og víðar um land.

Áskorun til stjórn­valda: Bæjarráð Fjarða­byggðar hvetur stjórn­völd til að grípa til eft­ir­far­andi aðgerða:

  1. Samráð við hags­muna­að­ila: Stjórn­völd þurfa að hefja sam­tal við útgerðir, sveit­ar­fé­lög og aðra hags­muna­að­ila sem byggja á sjáv­ar­út­vegi til að eyða óvissu og kynna áform sín á mál­efna­legan og skýran hátt.
  2. Heild­rænt mat á áhrifum: Mik­il­vægt er að fram­kvæma grein­ingu á áhrifum boð­aðra breyt­inga á rekstur fyr­ir­tækja og sam­fé­lög sem byggja afkomu sína á sjáv­ar­út­vegi.

Með þessu móti má tryggja að ákvarð­anir um sjáv­ar­út­veg styðji við sjálf­bæra nýt­ingu auð­linda, efna­hags­legan stöð­ug­leika og byggða­þróun í sam­fé­lögum eins og Fjarða­byggð.

Bæjarráð Fjarða­byggðar leggur því ríka áherslu á nauð­syn þess að stjórn­völd bregð­ist við með ábyrgum hætti og hefji sam­talið. Íslenskur sjáv­ar­út­vegur er enn ein af grunn­stoðum sam­fé­lags­ins hér á landi og að henni þarf að hlúa en ekki veikja.      

Bókun þessi er send á fjár­mála,- atvinnu­vega- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, þing­menn kjör­dæm­is­ins og fjöl­miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Landið

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Tuttugu ár eru liðin frá því að vatni úr fossaröðinni í Fljótsdal var veitt inn í Hálslón
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu