Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Guðjón Þórðarson í „bölvuðu basli“

„Þetta eru erfiðir dagar, vikur og mánuðir“

Guðjón Þórðarson opnar sig um veikindin
Guðjón Þórð­ar­son opnar sig um veik­indin Mynd: Skjáskot/RÚV

Guðjón Þórðarson, einn reynslu­mesti knattspyrnu­þjálfari þjóðarinnar, glímir við mikinn heilsu­brest þessi misserin. Guðjón greindist með Parkinson-veiki árið 2023 og þjáist auk þess af alvarlegum bakvandamálum. Hann fylgist þó enn náið með íslenskum fótbolta og lýsir yfir ánægju með nýjan leikstíl lands­liðsins, þótt hann hafi áhyggjur af ákveðnum þáttum.

Í viðtali hjá RÚV opnar Guðjón sig um erfiða baráttu við veikindi. Hinn 71 árs gamli þjálfari, sem stýrði karla­landsliðinu á árunum 1997–1999, segir síðustu mánuði hafa verið þunga en veikindin hafa skert hreyfi­getu hans verulega.

„Ég hef nú verið betri. Þetta eru erfiðir dagar, vikur og mánuðir. Það er tvennt sem hefur verið að hrjá mig. Annars vegar Parkinson sem ég greindist með árið 2023 og síðan hef ég verið með bakvandamál. Þetta leiðir niður í fætur og ég missi mátt,“ segir Guðjón, sem hefur þurft að styðjast við göngu­grind og hjólastól. Markmið hans sé þó skýrt: að hressa upp á líkamann og komast aftur í golf.

Agi og skipulag framar öllu

Í viðtalinu rifjar Guðjón upp landsliðs­árin sín þar sem hann innleiddi strangan aga. Hann stoppaði áfengis­neyslu stjórnar­manna í hádegismat með leik­mönnum og hélt fast í skipulags­handbókina þegar leikmenn vildu bregða sér af hóteli.

Aginn skilaði sér á vellinum, meðal annars í hinu fræga 1-1 jafntefli gegn heims­meisturum Frakka haustið 1998. Guðjón bindur endi á sögu­sagnir um að jöfnunar­mark Ríkharðs Daðasonar hafi verið tilviljun. „Þetta var upplagt og æft,“ segir Guðjón, en uppskriftin var að trufla franska mark­vörðinn Fabien Barthez í háum boltum.

Eftir þann leik átti sér stað eitt eftir­minnilegasta atvik íslenskrar íþrótta­sögu þegar Ingólfur Hannesson, frétta­maður RÚV, kyssti Guðjón í beinni útsendingu. Guðjón rifjar það upp með bros á vör og segir það vera frægasta koss sem hann hafi fengið, þótt hann hefði frekar viljað sleppa honum.

Hrifinn af Arnari en áhyggjur af vörninni

Guðjón fylgist enn vel með boltanum og lýsir yfir ánægju með Arnar Gunnlaugsson, sem tók við lands­liðinu fyrr á þessu ári (2025). Hann hrósar Arnari fyrir að færa boltann hraðar í gegnum liðið en bendir á að vörnin sé áhyggju­efni.

„Það er verkefni fyrir íslenskan fótbolta að búa til miðverði og djúpar sexur fyrir Ísland. Það gerist ekki á þeim árum sem Arnar verður við völd,“ segir Guðjón og bætir því við að þetta sé samfélagslegt verkefni. Þá gerir hann ríkar kröfur til líkamlegrar hreysti leikmanna í dag og segir ólíðandi að sjá lands­liðsmenn leggjast niður með krampa á 60. mínútu.

Guðjón hefur alið af sér marga af helstu þjálfurum landsins, en auk Arnars má nefna Rúnar Kristinsson, Heimi Guðjónsson og Óskar Hrafn Þorvaldsson. Hann segist njóta þess að fylgjast með sínum gömlu mönnum á hliðar­línunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“