Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Eiginkona Tómasar heitins laus úr haldi: Lýsir því að manndrápið hafi verið sjálfsvörn hins grunaða

Eiginkona Tómasar heitins Waagfjörð losnaði úr gæslu­varðhaldi í gær og er ekki lengur grunuð um að eiga aðild að mann­drápinu. Faðir hennar segir í samtali við Mannlíf að hún hafi gengið í gegnum mikla erfið­leika vegna heimilis­ofbeldis og margsinnis slasast undir þeim kringum­stæðum. Áður hefur komið fram að sambúð Tómasar heitins Waagfjörð og eiginkonu hans hafi verið stormasöm. Miðað við lýsingar föður hennar þá er það líklega vægt til orða tekið.

Tómas var stunginn til bana á Ólafs­firði um síðustu helgi en kona hans var handtekin ásamt þremur öðrum. Hún er nýkomin úr gæslu­varðhaldi og átti enga hlutdeild í sjálfum verknaðinum, að sögn föðurs hennar. Hann hefur eftir dóttur sinni að gerandinn hafi verið í sjálfs­vörn. Dóttir hans segir að Tómas fhafi fyrst beitt hnífi í átökunum. Vinur eigin­konunnar, sem nú er í haldi, skarst í leikinn, með þeim afleiðingum að Tómas hlaut stungusár sem dró hann til dauða. Vinur eigin­konunnar var að sögn vopnlaus.

Hún er nýkomin úr gæslu­varðhaldi. Faðir hennar hefur eftir henni að þetta hafi verið sjálfs­vörn. Að hans sögn tók Tómas fyrst upp hníf en vinur sambýlis­konunnar skorist í leikinn, með þeim afleiðingum að Tómas hafi hlotið stungusár sem dró hann til dauða.

Lokaði á tengdasoninn

Faðir konunnar segir að þau hafi byrjað að draga sig saman í upphafi síðasta árs og gift sig um jólin Hann segir að fyrst um sinn hafi honum þótt Tómas bera af sér góðan þokka. Það hafði þó ekki enst lengi. Hann hafi hætt að vilja eiga við tengdason sinn samskipti eftir að Tómas hringdi í hann og sagði honum að dóttir hans væri látin. Þá reyndist hún vera á spítalanum á Akureyri með slæma áverka. Faðir hennar segist ekki átta sig á því hvað hann var að fara með þessu en það hafi virkað á hann sem illkvittið og sjúkt grín.

Faðir konunnar er búsettur erlendis og segir það það hafa verið erfitt að geta ekki skorist í leikinn á einhvern hátt. Hann hafi þó reynt margt og meðal annars ítrekað haft samband við lögregluna hér heima. Eitt skipti hafi hann þó látið hringja í Neyðarlínunar hér heima en þá hafi dóttir hans tjáð honum að hún væri fótbrotin eftir mann sinn. Hann segir að lögreglan hafi farið á vettvang en þá hafi þau reynt að hylma yfir hvernig hún brotnaði. Lögreglan hafi því lítið getað gert. Faðir hennar segir eina mögulega ástæðu fyrir þessu, Tómas hafi þrýst á hana og sagt að ef hún segði frá þá færi hann beint á Litla-Hraun, þar sem hann var á skilorði.

Faðir konnar segir að þó hafi hún á þessu eina ári fengið marga alvarlega áverka. Auk fótbrots hafi hún hlotið rifbeins­brot og einnig gat í lungað. Hann segir að þetta hafi allt verið skráð til bókar á spítalnum á Akureyri. Faðir hennar segir að ofbeldið hafi, líkt og er svo algengt, byrjað sem andlegt ofbeldi. Því næst hafi hann reynt að taka yfir öll fjármál konunnar. Hann segir dóttur sína nýlega hafa reynt að flýja aðstæðurnar. Hún hafi komist inn á geðdeild á Akureyri og leið að eigin sögn vel þar. Faðir hennar er þó ósáttur með að Tómas hafi fengið að hafa samband við hana þar en afleiðingar þess voru að hún fór aftur til hans með þeim ósköpum sem nú hafa komið á daginn.

Hann segir dóttur sína bera sig vel í dag eftir atvikum. Hún sé komin heim til sín á Ólafs­firði og er vinkona hennar hjá henni. Tómas lést á heimili umræddrar vinkonu svo báðar er í skiljanlega í áfalli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning