Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frá Kópavogi til Síerra Leóne

Besta sunnudags­kvöld haustsins

Styrktartónleikar Barnaheilla
Styrkt­ar­tón­leikar Barna­heilla Mynd: Barnaheill

Tónlistar­fólkið Mugison, Ellen Kristjáns­dóttir, KK, Ragn­heiður Gröndal, Pétur Ben og Hipsumhaps koma fram á tónleikum Barna­heilla í Salnum í Kópavogi, sunnu­daginn 6. september kl. 20:00, til að safna fyrir nýjum grunn­skóla í afskekkta þorpinu Macca í Síerra Leóne.

Tónleikarnir eru loka­hnykkur á árlegri haust­söfnun Barna­heilla – Save the Children fyrir alþjóðleg verkefni samtak­anna. Söfnunin hefst fimmtudaginn 27. ágúst og lýkur með tónleikunum sunnudags­kvöldið 6. september.

Miða­verðið rennur óskert til að fjármagna skóla­byggingu í Macca, og mun gjörbylta lífi og framtíð barna í þorpinu sem fá nú tækifæri til menntunar.

Barnaheill starfa með börnum í fátækasta héraði Síerra Leóne

Barna­heill, með stuðningi frá utan­ríkis­ráðuneytinu, hafa starfað í Pujehun-héraði frá árinu 2021 með sérstaka áherslu á menntun og að vernda börn gegn ofbeldi. Pujehun er eitt fátækasta og strjál­býlasta hérað í Síerra Leóne. Þar er skortur á heil­brigðis- og mennta­þjónustu, vegir eru afar torfærir og meirihluti íbúa hefur aldrei sótt skóla.

Sjálfstæð úttekt á verkefni Barna­heilla í héraðinu hefur sýnt fram á fram­úrskarandi árangur. Á síðasta ári var því ákveðið að útvíkka verkefnið og fjölga samstarfs­þorpum til að ná til fleiri jaðar­settra barna og skapa þeim betri skilyrði til náms og þroska.

Loksins skóli fyrir börn í Macca

Ákveðið var að ráðast í byggingu skólans í Macca eftir vettvangs­heimsókn Barna­heilla til Síerra Leóne haustið 2025. Þá kom í ljós að enginn skóli væri til staðar fyrir börn í þorpinu, og aðstaða til náms var því óásættanleg.  

Framkvæmdir hófust þegar í byrjun þessa árs og nú er verið að leggja lokahönd á frágang svo börnin geti hafið nýtt skólaár í nýja skólanum. Sérstak­lega hefur verið hugað að aðgengi að byggingunni svo öll börn geti sótt skólann, og einnig var borað fyrir vatni og gerður brunnur sem nýtist öllum íbúum í Macca og nágrenni.

Barna­heill eru afar þakklát tónlistar­fólkinu og öllum sem leggja þessu mikilvæga verkefni lið. Hægt er að kaupa miða á tónleikana á Tix https://tix.is/event/22126/styrktartonleikar-barnaheilla-byggjum-skola-i-sierra-leone.

Tónleikarnir verða haldnir sunnu­daginn 6. september kl. 20:00 í Salnum, Hamraborg 6 í Kópavogi.

Einnig er hægt að styrkja verkefnið með beinum framlögum á banka­reikning 0357-26-2802

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt