Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kolfinna hraunar yfir Ingibjörgu Sólrúnu: „Hreint og beint ógeðsleg“

Kolfinna Baldvins­dóttir, dóttir hjónanna Jóns Baldvins Hannibals­sonar og Bryndísar Schram, reynir að gera lítið úr orðum Ingibjargar Sólrúnar Gísla­dóttur, fyrr­verandi ráðherra. „Merkilegt með Ingibjörgu Sólrúnu Gísla­dóttur, alltaf tekst henni að lenda öfugu megin. Klúðrar öllu sem hún kemur nálægt, veit ekkert um hvað hún er að tala en sparkar samt þegar hentar. Hana vantar betri ráðgjafa,“ segir Kolfinna.

Ingibjörg Sólrún líkir Jóni Baldvini, hennar fyrrum félaga í stjórn­málunum, við rándýr „sem velur bráð sína af kostgæfni.“ Kveikjan að orðum hennar eru dagbókar­færslur Þóru Hreins­dóttur; fyrrum nemanda Jóns Baldvins í Melaskóla árið 1970.

„Jón Baldvin Hannibalsson ekki meir, ekki meir, hugsaði ég þegar ég frétti af þessu máli í síðustu viku og beitti mig eiginlega hörðu til að lesa þessa frásögn. Það er hins vegar skemmst frá því að segja að dagbókar­færslur Þóru Hreins­dóttur, 15 ára nemanda JBH í Melaskóla 1970, eru ótrúlega merkileg heimild um aðferðir JBH við að ná tökum á Þóru og hvaða afleiðingar það hafði fyrir hugar­ástand hennar. Í fram­haldinu ákvað ég að lesa aftur allar þær 23 sögur sem safnað hefur verið saman af kynferðis­brotum og áreiti JBH á áratuga tímabili og í ljós kom ákveðið munstur sem gengur eins og rauður þráður í gegnum allt hans atferli.

JBH hagar sér eins og rándýr sem velur bráð sína af kostgæfni – oftar en ekki einstakling sem er ekki með sterkt bakland – sækir að henni með skipulögðum hætti, sýnir henni áhuga, jafnvel trúnað, vingast við hana og vinnur traust hennar. Þegar traustið er komið er eftir­leikurinn auðveldur,“ sagði Ingibjörg Sólrún.

Kolfinnu finnst skrif Ingibjargar „hreint og beint ógeðsleg.“

„Þær hrannast upp afsökunar­beiðnir ISG, nú ekki bara gagnvart þjóðinni, heldur klofinni fjöl­skyldu. Hún misnotaði sér veikasta hlekkinn i þeirri fjöl­skyldu, henni sjálfri til hagsbóta, ojj segi ég,“ segir Kolfinna og heldur áfram að hrauna yfir Ingibjörgu Sólrúnu: 

„Hún er alltaf of fljót á sér, tilbúin til að ráðast á sína allra nánustu samstarfs­menn, og senda þá í galeiðuna. Ef einhverjum finnst rétt/eðlilegt að draga upp 52 ára gamla dagbók konu sem lést fyrir sex árum á akkurat þessum tíma­punkti, rétt upp hönd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning