Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Glæfralegir ferðamenn komu sér í lífshættu á Kanarí

Minnir á hegðun ferða­manna í Reynis­fjöru

Ótrúleg hegðun ferðamanna
Ótrúleg hegðun ferða­manna Sem betur fer urðu ekki slys á fólki. Mynd: Skjáskot

Strendur Kanarí­eyja urðu nýverið vettvangur hættulegs atviks þegar hópur ferða­manna hunsaði opinberar veður- og öryggis­viðvaranir við sjóinn. Atvikið átti sér stað við vitann Faro de Sardina del Norte í bænum Gáldar á eyjunni Gran Canaria.

Samkvæmt upplýsingum frá samtökunum Canarias 1500 Km de Costa hafði hópurinn farið yfir öryggis­girðingu sem sett hefur verið upp til að halda fólki frá hættu­legum klettum á svæðinu. Þar er fallhæðin yfir 20 metrar og svæðið þekkt fyrir varasamar aðstæður, sérstak­lega þegar sjógangur er mikill.

Minnir atvikið ansi mikið á hegðun ferða­manna í kringum Reynis­fjöru á Íslandi.

Myndskeið sem ljós­myndarinn Paco Ortiz Santana tók sýnir hópinn standa á kletta­syllu þegar kröftug alda skellur á kletta­veggnum. Vatn flæddi yfir sylluna og olli skelfingu meðal þeirra sem þar voru staddir. Engin slys urðu á fólki að þessu sinni, en samtökin vara við því að atvikið hefði auðveldlega getað haft alvarlegar afleiðingar.

Í tilkynningu frá Canarias 1500 Km de Costa segir að slíkt gáleysi setji mannslíf í hættu og geti jafnframt skapað mikla áhættu fyrir björgunar­sveitir og aðra neyðar­þjónustu sem þyrfti að bregðast við við erfiðar og hættulegar aðstæður ef slys ætti sér stað.

Yfirvöld á svæðinu hafa ítrekað hvatt bæði íbúa og ferðamenn til að virða öryggis­merkingar og viðvaranir við strendur eyjanna, enda geti sjórinn verið afar óútreiknanlegur og hættu­legur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu