Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ragnari Þór og fjölskyldu hans bárust alvarlegar hótanir: „Hatrið sigraði mig í dag“

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR

Eins og kom fram í fréttum Mannlífs í dag þá hætti Ragnar Þór Ingólfsson mjög óvænt við framboð sitt til forseta ASÍ. Hann sendi nú rétt í þessu frá sér yfir­lýsingu:

„Kæru vinir. Ég tók nýverið ákvörðun um að bjóða mig fram til forseta ASÍ á þingi sambandsins sem haldið er dagana 10. til 12. október. Markmiðið með framboði mínu var að gera tilraun til að sameina krafta okkar á þessum vettvangi. Sameinast undir merkjum ASÍ og sameinast sem breiðari fylking en áður og nýta þingið sem tækifæri til að slíðra sverðin og snúa bökum saman.

Ég hafði einlæga trú um að við gætum skilið þá eitruðu orðræðu og átök sem hafa einkennt Alþýðu­sambandið síðustu ár eftir á þinginu.

Verkefnin framundan eru risastór og krefjandi. Kjara­samningarnir framundan verða þeir flóknustu og erfiðustu frá hruni. Fyrir síðustu samninga mynduðu nokkur stéttar­félög bandalag og náðum, að mínu mati, mjög góðri niður­stöðu við erfiðar aðstæður. Margþættar kjara­bætur í bland við aðgerðar­pakka stjórn­valda.

Ef okkur tókst þetta í smærri hóp hugsaði ég sem svo, hversu miklu getum við náð ef við stöndum saman sem enn breiðari fylking og á vettvangi ASÍ? Við verðum óstöðvandi og við munum ná gríðar­legum árangri fyrir okkar fólk.

Við vorum byrjuð á þessari vinnu á óformlegum vettvangi ASÍ þar sem saman komu lands­sambönd verslunar­fólks, starfs­greina­sambandsins og iðnaðar­manna. Í þau 14 ár sem ég hef starfað innan hreyfingarinnar hef ég sjaldan fundið jafn góðan anda innan ólíkra hópa. Við vorum að hefja vinnu við það hvernig við gætum sameinast um ólíkar áherslur og var ég afar bjartsýnn fyrir þingið um að okkur tækist raun­verulega að leiða okkur saman.

Síðustu daga og vikur fyrir þingið höfðu litast af ótrúlega ósmekklegri orðræðu og árásum á mína persónu. Ég var ítrekað kallaður valda­sjúkur ofbeldis­maður og sakaður um að ætla að segja upp öllu starfs­fólki ASÍ kæmist ég til valda.

Það er einkar dapurlegt að gjald­fella orðið ofbeldi með þessum hætti. Að stilla upp pólitískum deilum og ágreiningi upp sem ofbeldi eru kaldar kveðjur til þeirra sem raun­verulega verða fyrir ofbeldi.

Ég hef oft talað um mikilvægi samstöðu ólíkra hópa til að ná árangri. Raun­verulegum árangri fyrir okkar félags­fólk og fyrir samfélagið allt. Um það snýst málið. Við erum að vinna fyrir fólkið okkar. Fólkið sem treystir okkur fyrir að bæta lífs­kjörin. Þau öfl sem hafa viljað okkur burt hafa ekki talað einu orði um þetta. Ekki einu orði um fólkið okkar sem getur vart borgað af lánunum sínum eða húsa­leiguna. Eða fjöl­skyldur sem geta lítið orðið gert annað en að kaupa síhækkandi nauð­synjar í 9% verðbólgu og hækkandi vöxtum.

Stjórn­völd hafa svo lítið lagt til málanna annað en auknar álögur ofan á allt saman.

Af hverju í ósköpunum getur umræðan ekki snúist um þetta?

Af hverju þetta taumlausa hatur?

Hvað höfum við eiginlega gert þessu fólki?

Fyrir síðustu kjara­samninga bárust mér og fjöl­skyldu minni alvarlegar hótanir. Hótanir sem hægt var að rekja til þeirrar orðræðu sem var á þeim tíma, þið munið, við vorum stór­hættulegt og kolruglað fólk með sturlaðar kröfur sem leggði hagkerfið í rúst og allt það.

Það kemur fyrir að fárveikt fólk grípur svona hluti. Í gegnum tíðina höfum við fengið okkar skerf af slíku, mis alvarlegu þó. Það er þó eins og stemningin sé að breytast í okkar samfélagi og mál sem þessi koma oftar og oftar upp gagnvart kjörnum fulltrúum.

Á sama tíma höfum við verið að taka þessu áreiti og hótunum af meiri alvöru. Með meiri neikvæðri athygli fylgir aukið áreiti og um síðustu mánaðarmót fór að bera aftur á alvarlegum hótunum. Ég tala ekki mikið um þetta og ég læt alltof sjaldan vita af því.

Guðbjörg konan mín tekur þetta mjög nærri sér, eðlilega því við erum með ung börn á heimilinu. Til að setja í samhengi hvað ég er að tala um á ég mér drauma og markmið. Þeir voru að sameina hreyfinguna fyrir fólkið okkar og fólkið í landinu. Ná árangri og breyta til hins betra. En fyrir þeim er ekki ótakmörkuð innistæða. Sérhagsmuna­öflin sem við erum að berjast á móti eru hrikaleg og mun ósvífnari og skipulagðari heldur en flestir gera sér grein fyrir. Þess vegna byggjast mögu­leikar okkar og árangur á samstöðu. En allt hefur sín mörk og stundum sigrar hatrið eins og segir í textanum.

Hatrið sigraði mig í dag.

Samvinna og samstaða er val, sömuleiðis átök og sundrung. Undan­farið hafa dunið á mér ásakanir um ofbeldi og því slegið upp á forsíðum og með greinar­skrifum, undir­rituðu af fullorðnu fólki. Fólki sem með réttu ættu að kallast félagar mínir. Ég er vændur um að sækjast í völd, öskri og skelli hurðum ef ég fæ ekki mínu fram og vilji reka fólk fyrir engar sakir. Þrátt fyrir að hafa tekist, ásamt stjórn VR, að skapa frábæra stemningu og liðsheild innan VR síðustu 6 ár. Þar hefur samt engum verið sagt upp og starfs­ánægja með því sem best þekkist.

En allt þetta skiptir engu máli.

Sé lygin sögð nægilega oft fer fólk að trúa henni.

Trúa því að þetta sé mögulega satt.

Ég fór inn á þing Alþýðu­sambandsins með háleit markmið og einlæga von um að okkur tækist að snúa bökum saman og hugsa um fólkið okkar, sameinast og berjast fyrir fólkið.

Ég bauð mig fram til að leiða þetta verkefni. Ekki af því að ég er sjúkur í völd heldur vegna þess að ég hafði trú á því að þetta væri hægt, í ljósi þess hversu vel okkur hefur tekist til í VR við að sameina ólík sjónarmið og vinna sem ein heild, ekki meiri eða minni­hluti heldur liðsheild.

Í morgun fékk ég skjáskot af enn einni færslu frá formanni stéttar­félags innan ASÍ, einum af þeim sem hefur talað hvað hæst gegn því að ég og margir fleiri nái kjöri á þingi sambandsins.

Í færslunni er ég enn og aftur sakaður um ofbeldi og markmið mitt sé fyrst og fremst að segja upp öllu starfs­fólki. Þegar börnin mín lesa fyrir­sagnir um að pabbi þeirra stundi ofbeldi og reki fólk fyrirvara­laust eða heyra því hvíslað á förnum vegi, brestur eitthvað.

Ég ræddi þetta við konuna mína yfir kaffi­bolla í morgun, eftir að við lásum nýjustu árásina í minn garð. Árás á mína æru og persónu. Árás á miðju þingi ASÍ sem ég vonaðist til að vera vettvangur sátta. Ákváðum við í sameiningu að þetta væri ekki þess virði. Því miður. Ég skal viðurkenna það að ég átti mjög erfitt eftir að ég tók þessa ákvörðun og var við það að brotna niður. Ekki vegna þess að ég fengi ekki meiri völd, heldur að sjá á eftir tæki­færinu sem við höfðum til að verða ósigrandi.

Ég trúði þessu svo innilega að þetta væri hægt og hvað við ætluðum að ná miklu fram fyrir fólkið okkar. En ég finn líka fyrir miklum létti að vera laus úr þessu sambandi. En allt eru þetta valkostir og ég valdi í dag.

Ég tók ákvörðun um að velja að vinna frekar með öllu því frábæra fólki sem starfar á vettvangi VR.

Ég valdi samheldni og virðingu.

Okkur í VR mun örugglega takast vel til í næstu kjara­samningum þó samnings­staðan gagnvart stjórn­völdum sé ekki lengur til staðar.

Ég mun gera mitt allra besta eins og alltaf fyrir félags­fólk VR. Því lofa ég.

Ég ber engan kala til þess fólks sem var með yfirlýst markmið um að fella okkur á þinginu. Við þau vil ég segja. Nú erum við farin, ekki lengur fyrir. Nú fáið þið tækifæri til að leiða kjara­samninga ykkar félaga og vettvang ASÍ til að styðja við þá vegferð.

Ég óska ykkur alls hins besta. Ég vona að þið nýtið tækifærið vel og náið sem bestum árangri fyrir ykkar fólk, árangri sem nýtist okkur í okkar baráttu.

Baráttu­kveðjur Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning