Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hrafnhildur um dýravelferð á Íslandi: „Af hverju á þetta fólk að fá afslátt á gjörðum sínum?“

Stórhóll Lamb stendur ofan á dauðri á. Mynd tekin um 2009.
Stórhóll Lamb stendur ofan á dauðri á. Mynd tekin um 2009.

Hrafnhildur P. Þorsteins­dóttir hestakona skrifaði ítarlegan pistil á Mannlíf í dag þar sem hún fer yfir ýmis mál tengdum dýraníði og máttleysi Mast og stjórn­valda í mála­flokknum. Mannlíf ræddi við hana nánar um málið.

Hrafn­hildur P. Þor­steins­dóttir

Óhæfir eftirlitsmenn

„Eftirlits­menn á svæðunum á Suður og Vestur­landi eru kynbóta­dómarar sem er óásattanlegt vegna tengsla. Þetta er mjög óþægilegt í öllu falli vegna okkar smæðar. Þetta er öllum hestamennum ljóst. Enginn þorir að tjá sig. Það er deginum ljósara að það þarf fólk sem er ótengt sem annast þessi mál. Í þessum málefnum ættu að vera fólk sem hafa ekki nein tengsl, bara kerfis­fólk. Ískalt,“ segir Hrafnhildur aðspurð um það hvað mætti til dæmis bæta í málefnum dýra á Íslandi.

Vill Hrafnhildur taka fram að langflestir bændur fari vel með dýrin sín.

„Bændur um land allt hafa haft samband við mig vegna þessa og hafa bent mér á bæi sem hafa allt niðrum sig. Nánast allir bændur eru með sitt á hreinu.“

En af hverju heldur Hrafnhildur að þó þetta margir fari illa með dýrin sín?

„Það liggur augljóst fyrir að fólk sem fer illa með skepnur á við andlega erfið­leika að stríða.  Þetta er eldfimt mál en af hverju þurfa skepnur að þurfa að gjalda þess að fólk misþyrmi þeim og það á okkar vakt? Við erum með barnavernarnefnd og fleiri úræði en ekkert sem snýr að velferð dýra. Af hverju á þetta fólk að fá afslátt á gjörðum sínum?“

Blákalt mat

„Mast, þessi stofnun hefur takmarkaðar aðgerðir til sinna ráða. Logandi hrædd við málsóknir. Héraðs­dómur snýr málum Mast niður þegar þeir krefjast þess að fólk fái ekki að halda skepnum áfram,“ segir Hrafnhildur um Matvæla­stofnun Ríkisins sem hefur að undan­förnu fengið á sig mikla gagnrýni vegna þess hversu hægt virðist ganga hjá stofnuninni að leysa dýra­níðingsmál. Bætti hún við: „Dags­sektir virka ekki á níðinga. Það þarf að ráðast í alvöru tiltekt. Af hverju eru neytendur ekki með á vaktinni hvað varðar mjólkur­iðnað. Bú sem ekki hleypa kúm sínum út eiga að mínu mati að verða svipt leyfi umsvifarlaust. Ef þú ætlar að með einbeittum hætti að stunda níðings­hátt þá eru dags­sektir bara hjákátleg viðurlög.“

Hrafnhildur telur að innan Mast leynist óhæfir dýra­eftirlits­menn.

„Mast hefur dýra­eftirlits­mann til margra ára sem hefur verið uppvís af því að sinna ekki skyldum sínum. Honum var treyst fyrir stóð­hestinum Blæ frá Torfunesi á sínum tíma en hann kom frá honum grind­horaður. Það mál rataði í fréttirnar. Þetta er fólkið sem við treystum fyrir að taka út skepnur á bæjum landsins. Sá hinn sami er kynbóta­dómari. Einnig er starfandi kynbóta­dómari á Vestur­landi. Vegna smæðar landsins og tengsla ætti þetta ekki að vera líðandi. Þessir aðilar búa á næstu þúfu við níðingana. Hestamenn eru dauð­hræddir og meðvirkir í þessum málum eðlilega. Í þessi störf ætti að velja utan­aðkomandi fólk sem hefur engar tengingar við bæina. Bara blákalt mat.“

Hnífurinn í kúnni

Þá segir hún einnig að Mast sé ekki eina vanda­málið heldur skorti nógu sterkar laga­heimildir í mála­flokknum.

„Mast hefur ekki nógu sterkar laga­heimildir til þess að svipta fólki skepnum, það kemur í ljós þegar ég hef skoðað gömul mál og ný. Héraðs­dómur dæmir alltaf fólkinu í vil, að halda skepnum áfram þrátt fyrir hræðilega meðferð. Þarna stendur hnífurinn í kúnni. Mast hefur takmarkaðar heimildir. Eftirlits­menn hafa allt of stórt landsvæði að fara yfir. Merkilegt að Sigurður Ingi ráðherra skuli ekki brenna meira fyrir þessi málefni. Hann er dýra­læknir að mennt. Og maður hefði haldið að hann hefði ágæta yfirsýn yfir þessi mál.“

Skepnuhald skal vera leyfisskylt

Eitt af því sem Hrafnhildur telur að myndi hjálpa málleysingjunum er að gera skepnu­hald leyfis­skylt.

„Eftir samtal mitt við framkvæmda­stjóra Bændsamtakanna þá hefur það verið oft rætt að skepnu­hald skulu vera leyfis­skylt. Þetta er einmitt punkturinn sem góður dýra­læknir, Sigurður Sigurðarson hefur bent á í fjölmörg ár en aldrei verið hlustað á. Þeir sem tala gegn því benda á að það muni verða of dýrt og meiri kostnaður lendi á bændum. Þetta ætti ekki að vera svona flókið með laga­setningu og einföldum aðgerðum sem yrðu ekki til þess að gjöld myndu falla á einstaklinga,“ sagði Hrafnhildur og bætti við öðru sem myndi hjálpa: „Í Noregi eru menn settir inn fyrir minni brot gegn dýrum en þetta. Einnig eru þau svipt rétti til að halda skepnur til fimm ára.“

Í huga Hrafnhildar hafa Alþingis­menn alltof mikinn frítíma:

„Ef einhver er með vit í hausnum á Alþingi sér þetta ekki þá er eitthvað mikið að. Það er hægt að þvaðra um hvort ÁTVR eigi að vera opið á sunnu­dögum eða hvort fara þurfi að selja vín í matvöru­verslunum. Ég nota orð Georgs Bjarnfreðarsonar, þetta er fólk sem hefur of mikinn frítíma.“

Að lokum vildi Hrafnhildur koma því á framfæri hver hennar næstu skref eru í barátt­unni fyrir dýra­velferð:

„Ég mun taka mig til að draga saman hvaða bæir hleypa ekki kúnum sínum út að sumri til. Ég er viss um að það muni hreyfa við einhverju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning