Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Þorsteinn segir skammarlega hegðun foreldra á Akureyri einungis toppinn á ísjakanum

„Sumir vilja banna þessi fótboltamót eða banna foreldrum að mæta og ég skil það sjónarmið, sjálfur var ég lengi í fótbolta sem strákur og aldrei saknaði ég þess að foreldrar mínir voru ekki á línunni í hverjum leik.“

Þetta segir Þorsteinn Guðmundsson leikari á Facebook. Hann segir að slæm framkoma foreldra á fótbolta­mótum sé einungis toppurinn á ísjakanum. Það megi gera ráð fyrir því að hegðun þeirra sé enn verri bak við luktar dyr. Þorsteinn bendir á að foreldri sem missir sig á ókunnugt barn sé til alls líklegt hvað varðar sitt eigið barn.

N1 mótið í knatt­spyrnu hefur farið fram á Akureyri undan­farna daga. DV greindi frá því í gær að nokkur dæmi sé um að foreldrar hafi tryllst í hita leiksins, líkt og Birkir Örn Pétursson greinir frá á Twitter.

Þorsteinn segir að flestir sem þurfa að leita til sálfræðinga eigi erfitt samband við foreldra sameiginlegt. „Í ljósi umræðunnar um slæma framkomu foreldra á fótbolta­mótum barna má velta fyrir sér nokkrum hlutum. Allir sálfræðingar kannast við það að nánast allir skjólstæðingar þeirra sem glíma við alvarlegan vanda hafa gengið í gegnum erfitt samband við foreldra sína. Fólk talar um foreldra sem áttu erfitt með að uppfylla hlutverk sitt, stundum vegna þess að það var áfengis­drykkja á heimilum, stundum vegna þess að foreldrar voru ofbeldis­hneigðir eða tilfinninga­kaldir, ástæðurnar eru margar og marg­víslegar. Á þessum fótbolta­mótum sjáum við stundum grilla í toppinn á ísjakanum á þessum vanda­málum. Það foreldri sem missir sig og öskrar fúkkyrði á ókunnug börn fer svo heim með sitt eigið barn í lok mótsins,“ segir Þorsteinn.

Þorsteinn segir þessa hegðun varpa skugga á gleði stund. „Þessi mót eru nefnilega frábært tækifæri sem væri hægt að nýta á jákvæðan hátt. Börnin sem keppa á þessum mótum hafa æft sig mánuðum saman, dómarar og þjálfarar hafa farið í gegnum námskeið … af hverju ekki að nota tækifærið og skylda þá foreldra sem vilja mæta á þessa mót til þess að fara í gegnum foreldra­námskeið? Hefðu í raun ekki bara allir gott af því? Alveg hefði ég haft gagn af góðu foreldra­námskeiði,“ segir Þorsteinn.

Hann segir foreldra­bækling ekki duga. „Ég veit að KSÍ hefur gefið út foreldra­bækling (sem reyndar finnst ekki á heim­síðunni þeirra). Foreldra­bæklingur er fín byrjun en það hlýtur að mega gera betur en það. Sem sagt, það er ekki skrítið að okkur bregði við það að heyra af slæmri framkomu foreldra en trúið mér, þetta er toppurinn á ísjakanum og það væri sannarlega þess virði fyrir þjóð­félagið (jafnvel fjárhags­lega) að koma veita foreldrum sem glíma við hegðunar­vanda meiri stuðning.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá