Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rauði krossinn undirbýr viðbragð vegna sólmyrkvans

Fimm atriði til að hafa á hreinu áður en lagt er af stað að sjá sólmyrkvann.

Sólmyrkvinn sést 12. ágúst
Sól­myrk­vinn sést 12. ágúst Ferðalög sem þessi kefj­ast und­ir­bún­ings Mynd: Daniel Gomez á Unsplash

Rauði krossinn verður í viðbragðs­stöðu um allt vestan­vert land þegar almyrkvi verður á sólu 12. ágúst. Neyðarvarna­teymi félagsins og hópur sjálfboða­liða verða sérstak­lega til taks á Snæfellsnesi og Vestfjörðum, þar sem búist er við miklum fjölda ferða­manna.

Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að undir­búningur hafi staðið yfir í marga mánuði í samstarfi við aðra viðbragðs­aðila. Félagið verður meðal annars með sérútbúnar neyðarvarna­kerrur, rúm, teppi og stórt tjald á sunnan­verðum Vestfjörðum sem hægt verður að reisa hratt ef þörf krefur.

„Mottó Rauða krossins er að vera tilbúinn að bregðast við ef hættu- eða neyðar­ástand skapast og fólk þarf af einhverjum ástæðum á stuðningi okkar að halda,“ segir Aðal­heiður Jóns­dóttir, teymis­stjóri neyðar­varna hjá Rauða krossinum.

Hún bendir á að búast megi við mikilli umferð bæði smærri og stærri ökutækja um svæði sem víða séu viðkvæm og utan alfara­leiða. Þá geti veður, aukin flug­umferð og fjöldi skemmtiferða­skipa við vestur­ströndina einnig haft áhrif á aðstæður.

„Ef slys verða eða annars konar áföll henda verður Rauði krossinn tilbúinn til aðstoðar og getur komið upp fjölda­hjálparstöð í tjaldinu eða hentugu húsnæði gerist þess þörf,“ segir Aðal­heiður.

Rauði krossinn hvetur fólk til að nýta skipulagða áhorfs­staði í heima­byggð sinni þegar kostur er. Um 70 prósent lands­manna munu geta séð almyrkvann frá heima­högum sínum og þurfi því ekki að ferðast langar leiðir.

Jafnframt er fólk hvatt til að undirbúa ferðalög vel, leggja tímanlega af stað og gera ráð fyrir umferðar­töfum.

„Við biðlum til þeirra sem ætla að vera á ferðinni að leggja tímanlega af stað og fara að öllu með gát við þessar óvenju­legu aðstæður svo að sem flest geti notið þessa stórkost­lega sjónar­spils sem almyrkvinn verður,“ segir Aðal­heiður.

Rauði krossinn minnir einnig ökumenn á að hafa viðlaga­kassa í bílnum með meðal annars vatni, nesti, hlýjum fötum, teppi, hleðslu­banka fyrir síma og skyndi­hjálpar­tösku, auk þess að fylla á bílinn áður en lagt er af stað og gleyma ekki sólmyrkva­gleraugunum.

Hér má lesa fimm atriði sem Rauði krossinn bendir fólki á að gera áður en lagt er af stað í ferða­lagið.

  1. Útbúðu viðlaga­kassa í bílinn. Í hann skaltu t.d. setja vatn, nesti, hreinlætis­vörur, teppi, hlý föt, aukaskó, hleðslu­banka fyrir símann og skyndi­hjálpar­tösku.
  2. Fylgstu vel með veðurspá og leið­beiningum frá yfir­völdum, s.s. um umferðar­takmarkanir.
  3. Fylltu á bílinn (eldsneytis­tankinn eða rafhlöðuna).
  4. Leggðu tímanlega af stað og ekki flýta þér heim.
  5. Mundu eftir sólmyrkva­gleraugunum!
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Hvetur fólk til að eiga reiðufé.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto