Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Vopnað rán á Vesturgötu – „Þeir ruddust inn með miklum hávaða og öskruðu“

Mánudags­morguninn 18. desember árið 1995 réðust þrír grímu­klæddir og vopnaðir menn inn í Búnaðar­bankann á Vestur­götu. Þeir komust burt með rúmlega eina og hálfa milljón króna meðferðis.

Þetta er vopnað rán

„Þeir ruddust inn með miklum hávaða og öskruðu: Þetta er vopnað rán. Ég var staddur inni á skrif­stofu minni baka til og áttaði mig ekki alveg á alvörunni í fyrstu.“

Þetta sagði Leifur H. Jósteinsson, útibús­stjóri í bankanum, í samtali við DV sem birtist í blaðinu daginn eftir ránið. Leifur sagðist hafa áttað sig á alvarleika málsins þegar hann sá einn mannanna stökkva yfir afgreiðslu­borðið með hníf í hendi.

Tveir banka­ræningjanna voru vopnaðir hnífum en sá þriðji bar hagla­byssu.

Hélt að um grín væri að ræða

Einn viðskipta­vina bankans þennan morgun, Ólafur G. Björnsson, lýsti upplifun sinni af hinum óhuggulega atburði við DV. Þar sagði hann að ræningjarnir hefðu skipað öllum að horfa niður í gólfið.

„Ég fór eftir því og þess vegna sá ég lítið hvað ræningjarnir aðhöfðust. Þeir voru þó á ferð og flugi og með skipanir til starfs­fólksins,“ sagði Ólafur.

Ólafur sagðist í fyrstu hafa haldið að um grín væri að ræða. Annað hafi þó fljótlega komið í ljós og ekkert annað að gera en að hlýða og hreyfa hvorki legg né lið.

Ránið tók aðeins eina mínútu

Leifur útibús­stjóri vildi meina að greinilegt hefði verið á allri hegðun og athöfnum ræningjanna að þeir hefðu skipulagt ránið vandlega. Þeir hefðu gengið fagmannlega til verks. Leifur sagði sömuleiðis að sér hafi virst maðurinn með hagla­byssuna vera höfuð­paurinn sem stjórnaði aðgerðunum.

Sá maður beið framan við afgreiðslu­borðin á meðan hinir tveir fóru á bak við þau og brutu upp skúffur fjögurra gjaldkera. Úr skúffunum náðu þeir, eins og fyrr sagði, um einni og hálfri milljón króna og létu sig svo hverfa jafn skyndi­lega og þeir höfðu birst. Raunar virðist ránið varla hafa tekið meira en eina mínútu, ef marka má orð útibús­stjórans.

Gjaldkerarnir fengu aldrei ráðrúm til að hringja neyðar­bjöllunum en Leifi tókst það hinsvegar. Einnig var maður að nafni Eyjólfur Einarsson sem hringdi á lögregluna, en hann var hinumegin við götuna og sá þegar ræningjarnir létu til skarar skríða. Eyjólfur sá mennina stíga út úr lítilli Toyotu, einn þeirra með hagla­byssuna í hendi. Hann horfði síðan á eftir þeim inn í bankann og sá því strax að ekki var allt með felldu og hljóp inn til sín til að hringja á lögregluna. Skjót viðbrögð Eyjólfs dugðu þó ekki til – ræningjarnir voru of snöggir. Litlu Toyotuna skyldu þeir eftir í gangi fyrir utan bankann og létu sig hverfa með öðrum leiðum.

Bæði Leifur útibús­stjóri og Eyjólfur vildu meina að ræningjarnir hefðu sennilega verið í kringum tvítugt.

„Af hreyfingum mannanna virtist mér sem þeir væru um tvítugt. Það er þó erfitt að átta sig á slíku enda mennirnir með lambhús­hettur á höfðum og í vinnu­göllum,“ sagði Eyjólfur.

„Þetta voru ungir menn þótt erfitt væri að átta sig á aldri þeirra í samfestingunum og með lambhús­hetturnar. Ég giska á að þeir hafi verið um eða rétt yfir tvítugt. Þeir voru mjög vel þjálfaðir sem sést af því að þeir undu sér yfir afgreiðslu­borðin eins og ekkert væri,“ sagði Leifur.

Starfsfólk fékk áfallahjálp og öryggismál tekin til skoðunar

Starfs­fólk Búnaðar­bankans í Vestur­götu, sem var við störf í útibúinu þegar ránið var framið, fékk áfalla­hjálp í kjölfarið. Hanna Páls­dóttir, aðal­féhirðir Búnaðar­bankans, hafði áhyggjur af starfs­fólkinu og sagði atburðinn hafa valdið því mikilli andlegri áreynslu.

„Það er ólýsanlegt að lenda í þessu. Ég hugsa að það taki langan tíma fyrir starfs­fólkið að átta sig á hvaða varanleg áhrif þetta kann að hafa. Við leggjum því mikla áherslu á að hlúa sem best að fólkinu,“ sagði Hanna í samtali við Morgun­blaðið.

Daginn eftir ránið var útibú bankans í Vestur­götu opið eins og venjulega. Engar sérstakar öryggis­ráðstafanir höfðu verið gerðar. Leifur útibús­stjóri sagðist ekki eiga von á sömu mönnunum tvisvar. Þessi afstaða bankans til öryggis­mála virðist þó strax hafa verið endur­skoðuð, því tveimur dögum eftir ránið var verið að setja upp eftirlits­myndavélar í bankanum. Slíkar mynda­vélar höfðu aldrei áður verið notaðar sem hluti af öryggi­kerfi í útibúum Búnaðar­bankans.

„Aðal­atriðið er að reyna að ná þessum mönnum. Það er vont ef menn komast upp með svona athæfi,“ sagði Sólon Sigurðsson, banka­stjóri Búnaðar­bankans, í samtali við Morgun­blaðið þann 20. desember 1995, þegar verið var að herða gæsluna og setja upp mynda­vélarnar.

Þaulskipulagt og vasklega gengið til verks

Ýmis atriði benda til þess að ræningjarnir þrír hafi undirbúið ránið í Búnaðar­bankanum á Vestur­götu afar vel. Þeir gengu hratt og vasklega til verks, völdu tíma­setningu þar sem minnst var um að vera í bankanum, komu á farartæki sem þeir gátu skilið eftir við bankann og gufuðu svo nánast strax upp án þess að skilja eftir sig neina slóð.

Bíllinn sem þeir komu á, sem skilinn var eftir í gangi fyrir utan bankann, reyndist stolinn og í honum voru engin sönnunar­gögn sem leitt gátu lögreglu á slóð mannanna.

Það eina sem vitni sáu af þremenningunum eftir að þeir yfirgáfu bankann var þegar þeir hlupu niður á Nýlendu­götu. Eftir það virðist enginn hafa orðið þeirra var en spor­hundar lögreglu röktu slóð þeirra þó áfram yfir Garða­stræti. Svo varð slóðin köld – það var hreinlega eins og jörðin hefði gleypt þá. Taldi lögregla að þar hefði önnur bifreið beðið ræningjanna. Toyota-bifreið fannst síðan á Blómvalla­götu. Í henni var einn hnífur sem var talinn hafa tilheyrt einum mannanna.

Fjórir menn grunaðir

Í júlí árið 1996 sagði Hörður Jóhannesson, þáverandi yfir­lögreglu­þjónn hjá Rannsóknar­lögreglu ríkisins, að málið væri „óupplýst ennþá en ekki búið.“ Þá hafði Búnaðar­bankinn sjálfur reynt að halda málinu á lofti með því að heita einni milljón króna fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku ræningjanna.

Það er þó ekki svo að enginn hafi nokkurn tíma verið grunaður um verknaðinn. Þannig voru fjórir ungir menn með réttar­stöðu grunaðra í málinu um nokkurn tíma. Í ljós kom að sömu menn höfðu lagt á ráðin um rán sem svipaði mjög til Búnaðar­banka­ránsins. Rannsóknar­lögregla ríkisins gekk svo langt að lýsa yfir vissu um að fjór­menningarnir tengdust málinu. Allir fjórir sátu þeir um tíma í gæslu­varðhaldi vegna málsins. Þeir voru lögreglu ekki ókunnugir, heldur höfðu þeir áður komist í kast við lögin fyrir bæði fjár- og trygginga­svik. Þeir höfðu reynt að beita blekkingum til að svíkja fé út úr trygginga­félögunum, til að mynda með því að sviðsetja innbrot og bílslys.

Líkindi við Skeljungsránið

Ráninu í Búnaðar­bankanum svipaði mjög til annars ráns, svokallaðs Skeljungs­ráns. Þar voru ræningjarnir líka þrír og vopnaðir hnífum. Þeir voru klæddir á svipaðan hátt og ræningjarnir í Búnaðar­bankaráninu og komu sömuleiðis á vettvang glæpsins á stolnum bíl sem hafði verið stolið nóttina áður.

Allt kom þó fyrir ekki. Þrátt fyrir að rannsóknar­lögregla hafi virst ansi viss í sinni sök voru sannanir á hendur mönnunum fjórum ekki nógu sterkar til að hægt væri að fara með málið fyrir dómstóla. Þeir voru þó ákærðir fyrir ýmis önnur brot, til að mynda framan­greind fjársvik og trygginga­svik. Allir hlutu þeir dóm fyrir þau mál, þó mislangir væru.

„Það liggur fyrir að þessir menn hafa planað svona atburð með mjög áþekkum hætti og raunin varð á Bún­að­ar­banka­mál­inu. Það er enn til rann­sóknar að hve miklu leyti þeirra und­ir­bún­ingur kom við sögu varð­andi ránið. Bankaránið er stað­reynd og þeirra und­ir­bún­ingur er stað­reynd. En urðu ein­hverjir á undan þeim eða hvað?“

sagði Hörður Jóhannesson í samtali við Helgar­póstinn í febrúar árið 1996.

Fjór­menningarnir neituðu ávallt sök í Búnaðar­bankamálinu. Banka­ránið þennan mánudags­morgun í Vestur­götu er óupplýst enn þann dag í dag.

Þessi baksýnisspegill birtist fyrst hjá Mannlífi 13. desember 2021

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis