Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Hverjir þiggja þessa sporslu í dag? Þau Logi, Sigmundur Davíð, Inga Sæland og Þorgerður Katrín“

Frá 45. þingi ASÍ. Mynd/www.asi.is
Frá 45. þingi ASÍ. Mynd/www.asi.is

Samfélags­rýnirinn Björn Birgisson úr Grindavík segist litla sem enga virðingu bera fyrir þeim Loga Einars­syni, formanni Samfylkingarinnar, Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni, formanni Miðflokksins, Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, og Þorgerði Katrínu Gunnars­dóttur, formanni Viðreisnar.

Ástæðan eru auka­greiðslurnar sem þau þiggja fyrir að vera formenn flokka en ekki ráðherrar, greiðslur sem tryggðar voru á valdatíma Davíðs Oddssonar.

Björn gengur svo langt að kalla þessar auka­greiðslur „mútur“ sem hafi átt að liðja fyrir samþykkt á hækkuðum eftir­launum ráðamanna á sínum tíma.

Honum þætti eðlilegast að formennirnir þiggi ekki þessar greiðslur, að minnsta kosti ekki vilji þau hljóta virðingu hans.

„Sá sem hefur sjálfs­virðingu í góðu lagi tekur ekki eða þiggur allt sem að honum er rétt. Það þarf að vega og meta hvað er í lagi að þiggja og hvað er ekki í lagi. Stjórn­málamenn þurfa að takast á við margar freistingar, sérstak­lega þeir sem völdin hafa. Gæta þess að misnota ekkert. Taka ekki við eða þiggja neitt sem hæfir ekki stöðu þeirra – eitthvað sem góð sjálfs­virðing og almanna­rómur telja ekki vera í lagi,“ segir Björn og heldur áfram:

„Að formenn flokka á þingi – sem ekki eru ráðherrar – skuli hafa 673 þúsund krónur algjör­lega aukalega á mánuði, til viðbótar við þing­fararkaupið, eingöngu fyrir að vera formenn flokka sinna – án þess að skila nokkurri vinnu til ríkisins! Vel yfir 8 milljónir á ári!“

Björn telur að það segi margt um Loga, Ingu, Sigmund Davíð og Þorgerði Katrínu að þiggja þessar mánaðar­legu greiðslu. Það segir hins vegar enn meira um þá sem hafna henni, Pírata.

„Þessi sporsla var ekkert annað en mútur. Það fólk sem ekki hefur næga sjálfs­virðingu til að skynja hve óheilbrigt er að þiggja þessa greiðslu – getur ekki ætlast til þess að annað fólk beri virðingu fyrir því. Alla vega geri ég það ekki,“ segir Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning