Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Jón Ásgeir og Skel á fullu: „Þetta var sofandi félag – Gott að allir hafi eitthvað upp úr leiknum“

Mynd / Skjáskot af jonasgeirjohannesson.is.
Mynd / Skjáskot af jonas­geirjo­hann­es­son.is.

Fjár­festirinn Jón Ásgeir Jóhannesson segir að Skel fjár­festingar­félag hafi framkvæmt stóran hlut af áætluninni sem Strengur, meirihluta­eigandi félagsins, lagði upp með fjár­festingu í félaginu.

Hann var spurður um markmið Skeljar til næstu tíu ára í hlaðvarps­þættinum Chess after Dark:

„Markmiðið er að búa til öflugt fjár­festingar­félag, markmiðið er að halda því skráðu, markmiðið er að fá erlenda fjárfesta að félaginu. Ég held að skráning sé mikilvægt atriði í því,“ sagði Jón Ásgeir, sem var kjörin í stjórn Skeljar (þá Skeljungur) árið 2019, eftir að 365, félag Ingibjargar Pálma­dóttur, sem er eiginkona hans, hafði keypt meira tíu prósent hlut í félaginu.

Jón Ásgeir fer fyrir fjár­festingar­félaginu Streng; og gerði yfirtöku­tilboð í Skeljung í árslok 2020, og boðaði þá miklar breytingar; fáir hluthafar tóku tilboðinu; en þó eignaðist Strengur meirihluta í Skeljungi í ársbyrjun 2021.

Hvers vegna Skel?

„Ég þekkti náttúru­lega félagið, við áttum það á sínum tíma inn í Högum. Þarna var félag sem var með sterkan efnahags­reikning að við töldum, og dulið eigið fé í eignum sem þurfti að kreista fram með að láta efnahags­reikninginn svitna. Ná fram því sem hægt var að ná fram. Um þetta snerist planið.“

Kemur fram að innlendri starfsemi Skeljar var skipt upp í þrjú dóttur­félög í fyrra; Orkuna IS, Skeljung IS og Gallon.

Í síðustu ársskýrslu fyrir­tækisins Skeljar, hefur Jón Ásgeir sagt að þegar hann kom inn í félagið fyrir þremur árum hafi andinn þar verið líkur því að mæta á fund í ríkis­stofnun í gamla daga:

„Kannski vantaði skýrari stefnu, vantaði svona eigenda­drifkraft inn í félagið. Þú varst þess hratt mjög áskynja þegar þú komst að félaginu – þetta var sofandi félag. Því gekk ágætlega en það var kominn tíma­punktur að hrista upp í því.“

Í apríl var Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason ráðinn forstjóri Skeljar og Magnús Ingi Einarsson fjármála­stjóri, og Skel gerði kaupréttar­samninga við þá upp á allt að fimm prósenta hlut í félaginu:

„Ég hef sagt að það sé bara þannig í rekstri fyrir­tækja og í öllu öðru, t.d. fótbolta­liðum – menn eru misgóðir. Það er alveg ómögulegt að setja alla undir sama launaþak, sérstak­lega í forstjóra­hlutverkinu, sem er eins og að velja bestu íþrótta­mennina. Þeir kosta mismikið eftir getu,“ sagði Jón Ásgeir sem er klár á því að kaup­réttir, sem tengi saman hagsmuni forstjóra og hluthafa, hafi sannað gildi sitt á stærri mörkuðum.

„Ég er líka talsmaður þess að menn reyni að koma slíkum kerfum á fyrir fleiri heldur en bara topp­aðilana í fyrir­tækjum. Það er gott að allir hafi eitthvað upp úr leiknum.“

Frá þeim tíma er Strengur náði yfirráðum yfir Skel hafa lífeyris­sjóðir minnkað hlut sinn í fyrir­tækinu, og hafa ýmsir einka­fjárfestar komið inn á móti. Aðspurður hvort lífeyris­sjóðir séu smeykir við breytingar á rekstri skráðra félaga, segir Jón Ásgeir að sumir sjóðir hafi í það minnsta ekki ánægju af því að einka­framtak sé mikið:

„Það hefur oft verið þannig, finnst manni, að ákveðnir sjóðir eru ekkert hrifnir af því að einka­framtakið komi inn í skráð félög. Þrátt fyrir að þeir tali um það á tyllidögum að það sé eðlilegt að það komi einstaklings­framtakið og drífi áfram félögin – að lífeyris­sjóðirnir séu í hlutverki meðfjárfesta – þá er það ekki alltaf þannig.“

En hvað varðar síðan góða samsetningu í hlut­hafhópi, segir Jón Ásgeir að það sé mikilvægt að hluthafar hafi sameiginlega sýn á rekstur félagsins; gangi í takt.

„Það er alltaf slæmt ef menn eru ekki sammála um framtíðar­sýnina. Það er enn þá verra þegar menn segja ekki sína skoðun, þá er það enn erfiðara.“

Hann segir einnig að einka­framtakið hafi verið áberandi í skráðum félögum á Íslandi fyrr á öldinni; en eftir hrun hafi þetta orðið að lífeyris­sjóðakerfi með tilheyrandi íhaldi – að lífeyris­sjóðirnir einblíni kannski á aðra þætti í rekstri félaganna.

„Á síðustu árum komið inn einka­fjárfestar – sem betur fer fyrir þessi fyrirtæki – og aðeins hrist upp í þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning