Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ekki hlusta á grátkórinn: „Ég vona að launafólk segi hingað og ekki lengra“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfs­greina­sambandsins og Verkalýðs­félags Akraness, hvetur fólk til þess að hlusta ekki á þær raddir segja að allt fari í bál og brand ef launafólk fái betri kjör. Hann segist á Facebook vonast til þess að almenningur standi með honum gegn elítunni í haust. Markmið hans sé einfalt, að allir geti fram­fleytt sér hér á landi frá mánuði til mánaðar og haldið mannlegri reisn.

„Eins og alltaf þegar kemur að því að kjara­samningar verka­fólks eru við það að renna út þá er grátkór auðvaldsins ræstur út og syngur hátt og skýrt: „ætlið þið að ógna stöðu­leikanum,  valda óðaverðbólgu og stuðla að hærri vöxtum, þið verðið að semja með hófstilltum hætti“.

Já, þessi ramm­falski grátkór auðvaldsins er svo sannarlega tilbúinn að verja hagsmuni þeirra ríku eins og enginn sé morgun­dagurinn.

Á sama tíma og verkalýðs­hreyfingin þarf að sitja undir linnulausum árásum fyrir það eitt að vilja verja lífskjör sinna félags­manna þá raka hræsnararnir til sín launa­hækkunum, starfsloka­samningum og biðlaunum.“

Vilhjálmur nefnir svo nokkur dæmi um launa­hækkanir elítunnar:

  • Starfsloka­samningur við forstjóra Festi kostaði 76 milljónir
  • Biðlaun við bæjar­stjóra Hvera­gerðis og formanns Sambands íslenskra sveita­félaga kostaði 17 milljónir
  • Forstjóri Icelandair hækkaði um 1,8 milljón á mánuði
  • Forstjóri Síldar­vinnslunnar hækkaði um 833 þúsund á mánuði
  • Forstjóri Símans hækkaði um 800 þúsund á mánuði
  • Forstjóri Orkuveitu Reykja­víkur hækkaði um 600 þúsund á mánuði
  • Forstjóri Eimskips hækkaði um 500 þúsund á mánuði
  • Forstjórar 20 félaga í Kaup­höllinni hækkuðu að meðaltali um 444 þúsund á mánuði í fyrra
  • Verkafólk, iðnaðar­menn og verslunar­fólk sem taka laun eftir kaup­töxtum hækkaði um 24 þúsund á mánuði.“

Hann segir að þetta sama fólk kvarti svo undan því að almenningur óski eftir betri kjörum. „Hugsið ykkur hræsnina og svo kemur elítan fram og gagnrýnir verkalýðs­hreyfinguna fyrir að benda á það augljósa að verið sé að þurrka upp allan ávinning af síðasta samningi okkar með vaxta­hækkunum, hækkun á leigu­verði, matar­verði, bensín­verði, fasteigna­gjöldum og nánast allri þjónustu.

Nei, það heyrist ekki múkk í Seðla­bankanum eða stjórn­völdum þegar það stefnir í 200 milljarða arðgreiðslur til handa eigendum stór­fyrirtækja.  Þessum aðilum dettur ekki til hugar að biðja stór­fyrirtæki og fjármála­kerfið að draga verulega úr arðsemis­kröfum sínum og álagningu til að hlífa launa­fólki, neytendum og heimilum,“ segir Vilhjálmur.

Hann vonast því til þess að í haust verði sem flestir sem segi hingað og ekki lengra. „Nei launafólk, neytendur og heimilin skulu áfram þurfa að sætta þessu arðsemis­ofbeldi og ég vona svo innilega að launafólk segi hingað og ekki lengra í komandi kjara­samningum og látið verða að því að sverfa til stáls, ef ekki verður hlustað á kröfur launa­fólks.  Kröfur sem byggjast að draga úr misskiptingu, óréttlæti og ójöfnuði, sem og að allir geti fram­fleytt sér hér á landi frá mánuði til mánaðar og haldið mannlegri reisn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið