Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Lísu rak í rogastans í Fríhöfninni: „Þetta er orðið bara einn stór brandari!“

Lísa nokkur varð aldeilis hissa þegar hún uppgötvaði verð­muninn á vöru sem hana langaði í, annars vegar í Fríhöfninni og hins vegar í Hagkaup. Átti hún greini­lega von á því að varan væri ódýrari hjá fyrr­nefndri versluninni en svo reyndist alls ekki vera.

Lísa bendir á verð­muninn í fjölmennu samfélagi á Facebook, Vertu á verði – eftirlit með verðalagi. Þar birtir hún mynd sem sýnir verð­muninn og segir einfald­lega:

„Fríhöfn v.s. Hagkaup.“
Þessa mynd birti Lísa eftir verð­könnun sína og þar kemur í ljós að snyrti­varan er ódýr­ari í Hagkaup en í Frí­höfn­inni.

Margir meðlimir hópsins býsnast yfir verð­muninum sem Lísa bendir á og flestir þeirra hrauna yfir þjónstu Fríhafnarinnar. Hildur er ein þeirra. „Rándýr búlla!,“ segir hún. Anna er líka hundfúl. „Löngu hætt að versla hjá þeim!,“ segir Anna. 

Sigga líst illa á blikuna. „Það er eiginlega ekkert hægt að versla lengur þarna á betra verði. Þetta er orðið bara einn stór brandari,“ segir Siggi. En Egill veit hvað er til ráða. „Eina leiðin til að hafa áhrif á verðlag í fríhöfnum er að versla ekki þar,“ segir hann.

Fríhöfnin rekur fjórar verslanir með toll­frjálsan varning í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar samkvæmt rekstrar­leyfis­samningi við móður­félagið Isavia. Vörur Fríhafnarinnar eru undan­þegnar virðis­aukaskatti og aðflutnings­gjöldum (tax and duty free), fyrir utan áfengi og tóbak. Þar sem Ísland er utan Evrópu­sambandsins er heimilt að selja vörur á fríhafnar­verði til allra farþega sem fara um flug­völlinn.

Berglind bendir hins vegar á að verðin í Fríhöfninu endur­spegli ekki undanþáguna á sköttum og gjöldum.  „Markaðs­setningin í Fríhöfninni eins og hún leggur sig er núll. Ég skil ekki hvernig þeir halda að þeir græði á því að hafa verð jafnan hátt. Til langs tíma þýðir þetta einfald­lega að fólk leitar annað. Maður er allavega löngu hættur að treysta því að maður geti gert góð kaup þarna,“ segir Berglind.

Og Sesselja veit greini­lega hvað hún er að tala um. „Allt nammi og snyrti­vörur ódýrara í Hagkaup og Bónus. Þegar ég var að vinna þarna sagði ég alltaf túristunum að kaupa frekar nammi í Bónus því það væri ódýrara. Ég versla aldrei sjálf þarna þegar ég fer erlendis eða kem heim….“ segir Sesselja.

Viðbrögð Fríhafnarinnar

Mannlíf innti svara hjá Fríhöfninni vegna þessarar kvörtunar en Þorgerður Þráins­dóttir framkvæmdar­stjóri Fríhafnarinnar segir að verð­lagningin hafi verið mistök, búið sé að setja rétt verð á vöruna.

„Við skoðun hjá Fríhöfninni kom í ljós að um mistök í verð­lagningu er að ræða. Í sölu var áður 50 ml glas af Ma Vie ilmi og þegar gjafa­kassinn kemur í sölu, fyrir stuttu síðan, er fyrir mistök litið svo á að sama vara væri í gjafa­kassanum og hann verð­lagður í samræmi við það.

Í þessum gjafa­kassa sem hér um ræðir er hins vegar 30 ml glas. Verðið hefur verið leiðrétt og er 7.999 kr.

Fríhöfnin þakkar fyrir ábendinguna. Þrátt fyrir að svona mistök séu sjaldgæf þá geta þau gerst því miður og eru leiðrétt um leið og þau uppgötvast.

Við hvetjum viðskipta­vini sem hafa keypt gjafa­kassann á röngu verði að hafa samband við okkur. Verðinu hefur einnig verið breytt á vef Fríhafnarinnar, en það kemur ekki þar inn fyrr en í fyrra­málið. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis