Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi: „Biður fyrir og vonar að hann verði ærlegur þjóðfélagsþegn“

mynd úr myndabanka
mynd úr mynda­banka Mynd: Rattankun Thongbun / Getty Images/iStockphoto

Árið 2012 var hálf­íslenskur drengur dæmdur í lífstíðar­fangelsi í Bretlandi fyrir að hafa orðið 16 ára pilti að bana. Verknaðinn framdi hann í slagtogi með fjórum eldri unglings­piltum. DV fjallaði um málið fyrst miðla hér á landi, en Auður Ösp, blaða­maður tók viðtal við föður drengsins sem birtist í DV árið 2019. Í þessum lið, baksýnis­spegli er unnið út frá heimildum úr málum sem áttu sér stað í fortíðinni. Í þessu erfiða máli skal tekið fram að allar heimildir eru unnar út frá opinberum heimildum. DV fjallaði um málið fyrst og vekur Mannlíf athygli á því út frá þeim heimildum og öðrum heimildum sem hafa komið upp um málið.

Fékk aðeins að heyra í honum einu sinni á átta árum

Drengurinn var einungis 12 ára gamall þegar hann hlaut lífstíðardóm í Bretlandi fyrir að stinga unglings­pilt í hjartað. Áður en hann framdi verknaðinn, árið 2007, hafði hann ánetjast kannabis­efnum og var kominn í slæman félags­skap.

Í febrúar árið 2016 ræddi Auður Ösp, blaða­maður hjá DV fyrst við föður drengsins. Á þeim tíma hafði drengurinn setið í fangelsi í tæp átta ár og hafði faðir hans aðeins einu sinni fengið að heyra í honum í síma.

Í heimildum um málið kemur fram að faðir drengsins eigi tvo syni með konu sem hann kynntist þegar hann bjó í Bretlandi. Upp úr sambandinu hafi slitnaði og fluttist hann aftur til Íslands. Eldri sonurinn kom reglulega í heimsókn til föður síns en sambandið við yngri son sinn var mun stopulla.

.

Í viðtalinu við Auði Ösp segir faðir drengsins að níðst hafi verið á syni hans fyrir að vera svokallað „half caste,“ af blönduðum kynþætti.

„Það var rosalega mikil klíku­myndun í kringum hann. Hann passaði ekki neins staðar inn,“ sagði hann í viðtalinu við DV.

Á sér þá ósk heitasta að geta búið hjá föður sínum

Faðir drengsins segir í viðtali við DV árið 2019 að á þeim tíma sem hann hafi setið inni hafi hann snúið við blaðinu og náð undra­verðum árangri. Faðir hans telur það hafa gert gæfu­muninn að sonur hans hafi verið fluttur í opið úrræði árið 2018, en þar hafi hann loksins fengið tækifæri til betrunar. Faðir drengsins segir að hann eigi sér þá ósk heitasta að geta búið hjá föður sínum á Íslandi í fram­tíðinni og bindur faðir hans vonir við að þeir feðgar muni sameinast á ný.

Í samtali við Vísi nokkrum árum áður, árið 2011 ræddi faðir drengsins um afplánunina í lífstíðar­fangelsinu á Englandi. Hann tjáði blaða­manni að það væri engin lausn að vista unga glæpamenn með full­orðnum afbrota­mönnum. Hann telur ólíklegt að ungir einstaklingar verði að ærlegum þjóðfélags­þegnum eftir slíka dvöl.

Faðir hans hafði sagt við son sinn nokkrum árum fyrir brotið að hann væri ekki í góðum málum. Hann hefði átt í deilum í skólanum og verið kominn í fíkniefni. Þegar ég kvaddi hann, þá kvaddi ég hann með orðunum að hann skyldi fara að taka sig á, annars biði eftir honum útsýni í gegnum rimlana.

Og sú varð raunin, árið 2008 var hann dæmdur í lífstíðar­fangelsi fyrir verknaðinn, einungis 12 ára gamall, með möguleika á reynslu­lausn eftir 16 ár. Í fyrstu var hann vistaður í unglinga­fangelsi, en fjórtán ára var hann fluttur yfir í fangelsi rétt hjá Ipswich sem hýsir fullorðna afbrota­menn.

„Það er hroðaleg tilhugsun. Maður náttúru­lega biður fyrir því og vonar að hann verði ærlegur þjóðfélags­þegn, en ef þú ert búin að vera frá 12-13 ára til 28 ára aldurs í fangelsi út af einhverju sem þú framdir þegar þú varst á þessum aldri… líkurnar eru ekki hans megin.“

Breskir fjöl­miðlar fjölluðu ítarlega um morðið á Kodjo Yenga á sínum tíma. Ljósmynd/Skjáskot af vef BBC.

Málið vakti mikila athygli í Breta­landi og fjölluðu breskir fjöl­miðlar þónokkuð um málið á sínum tíma. Í frétt The guardian kom fram að verknaðurinn hefði verið innvígslu­athöfn í götuklíku.Málið vakti upp umræður um vaxandi gengja­menningu í Lundúnum, hækkandi glæpa­tíðni og neikvæð áhrif þess á unga fólkið. Á þeim tíma sem Kodjo Yenga var drepinn höfðu 26 ungmenni verið drepin af gengjum í London á árinu 2007.

Faðir drengsins segist hafa fengið tauga­áfall þegar hann sá fréttirnar af málinu. Þar sem honum reyndist erfitt að nálgast upplýsingar um framgang málsins og líðan sonar síns þá þurfti hann einkum að reiða sig á upplýsingar frá breskum fjöl­miðlum sem fjölluðu ítarlega um málið.

Heimildir:

Auður Ösp. 24. febrúar 2019. Sonur … afplánar lífstíðardóm í Bretlandi. DV.

David Pallister. 10. maí 2008. Teenage gang members jailed for killing A-level student. The guardian.

Innlent. 14. september 2011. „Börn ekki eiga heima í fangelsum.“ Vísir.

Tobba Marinós­dóttir. 13. Desember 2020. 14 ára sonur … fékk lífstíðardóm -„Tölfræðin er á móti honum. En ég hef fulla trú.“ DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið