Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Inga búin að skrifa undir símabannið

„Börnin okkar eiga rétt á því að skólinn sé staður þar sem þau geta einbeitt sér“

Inga Sæland
Inga Sæland Er mennta- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Víkingur

Inga Sæland, mennta- og barnamála­ráðherra, undir­ritaði í dag reglugerð um notkun síma og snjall­tækja á skólatíma í grunn­skólum og á frístunda­heimilum. Með reglu­gerðinni eru í fyrsta sinn settar samræmdar reglur um símabann í grunn­skólum landsins.

Markmið reglu­gerðarinnar er að auka námsfrið, efla vellíðan og félagsleg tengsl barna og stuðla að jákvæðum skólabrag. Reglu­gerðin kemur í kjölfar laga­breytingar sem Alþingi samþykkti fyrr á árinu.

„Börnin okkar eiga rétt á því að skólinn sé staður þar sem þau geta einbeitt sér, talað saman, leikið sér og notið samveru án stöðugs áreitis frá símanum,“ segir Inga. Hún segir símabann ekki snúast um að snúa baki við tækninni heldur að setja velferð barna í fyrsta sæti.

Samkvæmt reglu­gerðinni verður notkun síma og snjall­tækja, sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla eða frístunda­heimilis, óheimil á skólatíma. Tækin skulu ekki vera aðgengileg nemendum og verða geymd samkvæmt fyrir­komulagi sem hver skóli eða frístunda­heimili ákveður.

Reglurnar taka til alls skóla­tímans, þar á meðal frímínútna, matarhléa, vettvangs­ferða og annarra ferða á vegum skólans. Þær ná einnig til frístunda­heimila og tómstunda- og félags­starfs sem telst hluti af daglegu skóla­starfi.

Undanþágur verða þó heimilar þegar notkun tækis er nauðsynleg vegna heilsu­fars, fötlunar, sérþarfa eða námsþarfa nemenda. Þá verður áfram heimilt að nota síma og snjall­tæki í eigu eða umsjá skóla þegar það þjónar kennslu­fræðilegum tilgangi.

Skóla­stjórar bera ábyrgð á innleiðingu reglnanna í grunn­skólum og forstöðu­menn frístunda­heimila á sínum vettvangi. Nemendur skulu fá tækifæri til að taka þátt í innleiðingunni og taka skal tillit til sjónar­miða þeirra eftir aldri og þroska.

Reglu­gerðin verður birt í Stjórnar­tíðindum á næstu dögum og öðlast þá gildi. Mennta- og barnamála­ráðuneytið hyggst jafnframt gefa út leið­beiningar um framkvæmdina í samráði við Samband íslenskra sveitar­félaga og skóla­samfélagið.

Ráðuneytið mun fylgja framkvæmd reglu­gerðarinnar sérstak­lega eftir frá 1. janúar 2027 og verður hún síðar endur­skoðuð með hliðsjón af reynslu skólanna og þróun rannsókna á þessu sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

Umferðartafir á Reykjanesbraut í Hafnarfirði eru miklar á álagstímum, að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar, sem kallar eftir úrbótum.
  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda