Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sömdu leikrit undir sprengjuregni Rússa: „Sársaukinn er stöðugur“

Úr leikritinu Sírenubókin
Úr leik­rit­inu Sírenu­bókin Mynd: Aðsend

Úkraínskur leikhópur sýnir afar sterkt leikrit á Fringe Festival lista­hátíðinni sem nú stendur yfir í Reykjavík. Leikritið varð til undir sprengju­regni Rúss­landshers.

Kringum­stæður leik­hópsins breyttust á einu auga­bragði þegar Rúss­landsher hóf innrás í Úkraínu en skyndi­lega breyttist leikhús þeirra í loftvarnar­byrgi en þar varð leikritið The Book of Sirens til.

Mannlíf ræddi við eina úr leik­hópnum, hana Anabell Sotelo Ramires.

Anabell

– Hvað kom til að leikritið að veruleika?

„Leikritið Sírenu­bókin (e. The Book of Sirens) varð til í mars 2022 á meðan leikhúsið okkar sem er staðsett í kjallara breyttist í loftvarnar­byrgi fyrir leik­hópinn okkar og nágrannana. Við dvöldum þar í 45 daga í mars og sinntum ýmsum sjálfboða­störfum að degi til og unnum að leik­ritinu á næturnar.

Úr leik­rit­inu

Við byrjuðum að semja þetta verk í lok annarrar viku og ég held að aðal ástæðan fyrir því hafi verið þörf okkar til að endur­heimta sjálfs­virðingu okkar og ná okkur í auka kraft, með þeim aðferðum sem við kunnum. Með því að gera það sem við gerum vel. Það var okkar leið til að melta veru­leikann, atburðina sem voru að gerast. Og eru gerast enn. Að fjar­lægjast þá og líta á hlutina frá öðru sjónar­horni. Það hjálpaði okkur að standa óbugandi frammi fyrir óttanum.“

Anabell hélt áfram:

„Við vorum ekki viss þá hvort leikritið myndi einhvern tímann verið frumflutt en þegar það gerðist að lokum gerðum við okkur grein fyrir því hversu mikilvægt leikritið var. Það var bæði skjal­festing og vitnis­burður um mátt listarinnar til að byggja brýr og vísa leiðina til alsherjar samkenndar. Ég segi alsherjar því í sýningunni minnumst við ekkert á stríðið sem Rússland hóf gegn Úkraínu. Við tölum um seinni heims­styrjöldina og hinar mjög svo kaldhæðnu og sorglegu hlið­stæður sem við tókum eftir á fyrstu vikum innrásarinnar í hegðun beggja ríkjanna í þessum tveimur stríðum.“

Hluti leik­hóps­ins

En um hvað er leikritið nákvæmlega?

„Ég tala um samkennd því leikritið segir sögu lítillar stelpu sem lifir af vegna þess að hún lærir að lesa. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að segja persónu­lega sögu sem andstæðu við kaldranalegar tölur sem birtast í blöðum. Við viljum gefa þessum tölum andlit og endur­heimta nöfn þeirra sem er verið að fela bak við heitið fórnar­lömb.“

Leik­hópurinn hefur sýnt leikritið í nokkrum löndum og verið tekið afar vel. Þau munu meira  að segja sýna leikritið í Úkraínu.

„Við höfum flutt leikritið í litlum bæjum á Spáni og í Þýska­landi og tókum þátt í Fringe lista­hátíðinni í Prag. Við munum flytja leikritið einu sinni eftir tvo til þrjá mánuði í Úkraínu.“

En hvernig er að stíga á svið og leika leikrit sem fjallar óbeint um eitthvað sem enn er í gangi í heima­landinu?

„Það er frekar súrrealísk reynsla vegna allra hörmungar- og grimmdar­verka sem eru framin á degi hverjum. Og verst af öllu er það að þessu öllu er ekki nærri því lokið. Sárs­aukinn er stöðugur. Þegar ég stíg á sviðið er það samt ekki markmið mitt sem leikari að endur­upplifa þjáningarnar mínar og ég erum ekki heldur að sækjast eftir andlegri lækningu með því að láta heyra í mér og vera heyrð. Leikritið er miklu meira en það. Og þess vegna er það mjög ábyrgt fyrir mig að halda jafnvægi á milli þess sem truflar mig í raun og veru og þess sem er skáld­skapur til að gera leikritið að listformi en ekki yfir­lýsingu um skap mitt. Samt frekar súrrealískt.“

Leikritið verður sýnt klukkan 12 að hádegi í Mengi á morgun, laugardag. Hægt er að panta miða hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt