Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Baráttan gegn hlýnun jarðar – hvað getur þú gert?

Í nýlegri skýrslu loftlags­nefndar Sameinuðu þjóðanna er varað við því að tíminn til að bregðast við hlýnun jarðar sé á þrotum og að byltingar­kenndra breytinga sé þörf ef hlýnunin eigi ekki endanlega að fara úr böndunum. Bent er á það séu ekki bara ríkis­stjórnir sem verði að grípa í taumana, heldur þurfa allir að leggjast á plóg. Hinn venjulegi Íslend­ingur er þar ekki undan­skilinn. Internetið er uppfullt af visku um hvernig hinn venjulegi maður getur með tiltölu­lega einföldum og öfga­lausum hætti lagt sitt af mörkum í barátt­unni og jafnvel sparað peninga um leið.

|||||
|||||
Mat­ar­sóun er hluti af kolefn­is­fótspori heim­ila.

Matvæli
Neysla matvæla hefur marg­háttuð áhrif á losun gróðurhúsa­lofttegunda. Fram­leiðslu á kjöti og mjólkur­afurðum fylgir almennt meiri orku­notkun og losun gróðurhúsa­lofttegunda en ræktun á grænmeti, til að mynda. Þetta á sérstak­lega við um fram­leiðslu á rauðu kjöti en fram­leiðsla á því er talið valda nær 20% af losun gróðurhúsa­lofttegunda. Þannig að meira grænt, minna rautt. Flutningar á matvælum standa oft fyrir stórum hluta losunar og á þetta sérstak­lega við um innflutt matvæli sem koma ýmist með skipum eða flugvélum til landsins. Kauptu þess vegna frekar innlendar vörur og stilltu kaupum á innfluttum vörum í hóf. Einnig er um að gera að spara bílferðir og fara sjaldnar í búðina en kaupa þá lengra fram í tímann.

Matarsóun er sömuleiðis hluti af kolefnis­fótspori heimila og töluverður hluti af losun gróðurhúsa­lofttegunda á Íslandi kemur frá urðun á lífrænum úrgangi, meðal annars matvælum. Hvert heimili getur sömuleiðis sparað tugi þúsunda á ári hverju með því að draga markvisst úr matarsóun.

Forðastu plast og sér í lagi einnota plast­um­búðir.

Neyslan
Hafðu í huga að flestallt sem þú kaupir úti í búð hefur áhrif á jörðina. Þetta á meðal annars við um skó, fatnað og raftæki. Bæði tekur fram­leiðslan sinn toll af jörðinni sem og flutningar heims­horna á milli. Hægt er að spyrja sig hvort þú þurfir virkilega á þessum hlutum að halda og/eða hvort þú getir endur­unnið það sem þú átt fyrir eða keypt notað. Kannski á nágranni þinn eða vinur eitthvað á lager. Ef þú þarft að kaupa hlutinn, spáðu í gæðin og vertu viss um að varan endist og athugaðu hvort varan sé ekki örugglega umhverfis­vottuð. Forðastu plast og sér í lagi einnota plast­umbúðir. Ekki bara eru höfin að fyllast af plasti heldur eru megin­uppistaða fram­leiðslu þess olía og jarðgas.

Sparperur nota 80% minna raf­magn og eru end­ing­ar­meiri.

Heimilið
Blessunar­lega eru íslensk heimili umhverfisvæn í alþjóð­legum saman­burði þar sem þau hafa aðgang að hreinu vatni, jarðvarma­hitaveitu og endurnýjanlegum auðlindum til rafmagns­framleiðslu. En það þýðir ekki að það eigi að spreða, það er gott fyrir veskið og náttúruna að spara orku. Ef öll heimili bættu orkunýtni sína mætti spara orku sem samsvarar fram­leiðslu 40MW vatnsafls­virkjunar á ári, sem er um það bil jafnmikið og afl Ljósafoss- og Steingríms­stöðvar í Soginu til samans. Þess vegna er góð regla að slökkva alltaf á raftækjum og ljósum í þeim herbergjum sem ekki er verið að nota. Sparperur nota 80% minna rafmagn og eru endingar­meiri. Svo eru ákveðin rafmagns­tæki orku­þjófar, til dæmis þurrk­arinn og þess vegna er oft betra að hengja þvottinn til þerris. Ekki er verra ef efnin sem notuð eru umhverfis­vottuð eða, enn betra, heima­tilbúin úr náttúru­legum efnum. Það sama gildir um snyrti­vörur.

Samgöngur
Það segir sig sjálft að hjól­reiðar og almennings­samgöngur draga mjög losun gróðurhúsa­lofttegunda. Því færri bílar á ferðinni því minni losun. Vitaskuld geta ekki allir án bílsins verið en þar er einnig hægt að velja vistvænni kosti, til að mynda rafmagns- og metanbíla. Þess utan er hægt að keyra minna, til að mynda með betri skipulagningu, sleppa ónauðsynlegum ferðum og/eða nota hjól eða tvo jafn­fljóta í skreppitúra.

Einnig er hægt að draga úr eldsneytis­notkun bíla með öðrum einföldum ráðum. Lágur loft­þrýstingur í dekkjum eykur til að mynda eldsneytis­notkun sem og öll viðbótar­þyngd. Til að mynda getur farangurs­grind á toppnum, sem ekki er í notkun, aukið eldsneytis­eyðslu um allt að 20%. Notaðu loft­kælinguna sparlega og ekki nagladekk nema brýna nauðsyn beri til.

Flug­samgöngur eiga sífellt meiri þátt í losun gróðurhúsa­lofttegunda og sem dæmi má nefna að ein flugferð til og frá Kaupmanna­höfn losar um 360 kíló af koltvísýringi á hvern farþega. Það jafn­gildir 2.600 kílómetra akstri meðal fólksbíls. Farðu færri og styttri flug­ferðir og notaðu aðra samgöngu­máta, svo sem lestar­ferðir, þegar þess er kostur.

Best er að snið­ganga einnota plast eins og mögu­legt er og það sem eftir stendur skal fara í grænu tunn­una.

Flokkun og endur­vinnsla
Íslendingar eru orðnir meðvitaðri um mikilvægi þess að flokka úrgang og endur­vinna en betur má ef duga skal. Best er að sniðganga einnota plast eins og mögulegt er og það sem eftir stendur skal fara í grænu tunnuna. Ekki gleyma að taka fjölnota poka með í búðina. Allt sem endar í rusla­tunnunni okkar endar á einn eða annan hátt í nátt­úrunni, ýmist er úrgangurinn brenndur eða brotnar niður á löngum tíma á urðunar­stöðum. Blessunar­lega er hægt að flokka nánast allt sem fellur til á heimilinu og vanþekking er engin afsökun lengur því á vefnum flokkid.sorpa.is er ekki bara hægt að finna ítarlegar leið­beiningar um flokkun heldur geturðu líka séð hvað verður um úrganginn eftir að honum er skilað. Mikið af húsgögnum og fatnaði má endurnýta með því að skila þeim í nytjagáma eða selja á Facebook.

Í takti við gjöf­ina skal þessu pakkað inn í end­ur­vinn­an­legan pappír eða dag­blöð.

Jól og áramót
Hátíðirnar fram undan eru akkúrat tíminn til að sýna hversu umhverfis­lega meðvitaður og ónæmur fyrir neyslu­hyggjunni þú ert. Í stað þess að gefa enn eitt dótið eða rafmagns­tækið getur þú gefið gjöf sem mengar lítið sem ekkert. Þetta getur verið eitthvað heimagert eða upplifun eins og miði í leikhús eða námskeið. Þeir allra hörðustu gefa til góðgerða­mála í nafni viðtak­andans. Í takti við gjöfina skal þessu pakkað inn í endur­vinnanlegan pappír eða dagblöð. Eða pappírinn sem þú tókst utan af jóla­gjöfunum í fyrra. Umhverfisvænast er að kaupa tré sem ræktað hefur verið í íslenskum skógum.

Vart þarf að taka fram að flug­eldarnir sem skotið er upp um áramótin innihalda fjölmörg efni sem skaðleg eru nátt­úrunni og heilsu mannsins. Þess vegna er best að kaupa annaðhvort minna eða ekki neitt af flugeldum og þá eingöngu flugelda sem uppfylla kröfur um efna­innihald. Settu svo áramóta­skrautið ofan í poka og notaðu aftur á næsta ári.

Vertu meðvitaður
Á vefnum orkusetur.is er að finna fjölmörg góð ráð um möguleika til orku­sparnaðar. Þar er einnig að finna fjölda reikni­véla þar sem meðal annars er hægt að reikna út eldsneytis- og umhverfis­kostnað við akstur, rekstrar­kostnað bifreiða, hversu mikið hægt er að spara með því að hjóla í stað þess að aka og hversu mikið af íslenskum skógi þarf til að binda það magn koltvísýrings sem bifreið blæs út á ári. Svo fátt eitt sé nefnt. Á vefnum kolvidur.is er sömuleiðis að finna reiknivél sem reiknar út þitt eigið kolefnis­fótspor og er þá tekið tillit bæði til aksturs og flugferða.

*Heimildir:
Vefur Umhverfis­stofnunar
Orkusetur.is
Matarsoun.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá