Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Berglind Hilmarsdóttir, miðill og heilari: Að geta verið þetta millistykki er mér heiður

Berglind Hilmarsdóttir
Berglind Hilm­ars­dóttir

„Tilgangur námskeiðsins er að fræða fólk um erki­englana og englana, að þau kynnist þeim og taki þá inn í daglegt líf sitt, læri að tengjast þeim og geti kallað þá til sín,“ segir Berglind Hilmars­dóttir, miðill og heilari, sem heldur bráðlega námskeið í engla­fræði. Samkvæmt lýsingu munu þátt­takendur fræðast um erki­englana 15, störf þeirra og hvað þeir geta hjálpað fólki með, kristallana sem hægt er að nota í samvinnu með englunum og fólk mun tengja sig inn á hvern þeirra.

Berglind Hilm­ars­dóttir

Fyrir mér eru englarnir ljósverur sem aðstoða að öllu leyti í lífinu í ljósi og kærleika, umhyggju og heilun. Englarnir birtast okkur oft í þeirri mynd sem við þurfum. Ef það er til dæmis styrkur, hugrekki, heilun, von, þraut­segja, gleði og hamingja fáum við það ef við erum tilbúin til þess að taka á móti því því þeir mega ekki taka fram fyrir okkar frjálsa vilja. En ef við viljum hjálpina fáum við hana margfalt.“

Ég sé þá skýrt og greini­lega.

Berglind segist vinna mikið með englunum, miðla frá englunum skila­boðum og heila fólk með englunum. „Ég sé þá skýrt og greini­lega. Og eitt af því sem ég kenni öllum mínum nemendum er hversu auðvelt er að tengjast og finna fyrir þeim.“

Margir heimar

Berglind segist hafa verið mjög ung þegar hún fór að sjá og upplifa ýmislegt í kringum sig og að hún hafi haft vit á að þau sem hún sá og skynjaði vildu hjálpa.

„Hins vegar á einhverjum tíma­punkti lét móðir mín heitin „loka á þetta hjá mér“ þar sem hún hefur eflaust talið að þetta væri orðið of mikið fyrir barns­sálina í mér. Horfandi til baka lokaðist aldrei alveg á þetta og fyrir mér var mjög auðvelt að opna á þetta „aftur“.“

Ég sé þá sem eru farnir, ég sé aðrir víddir svo sem englana.

Berglind segir að þessi hæfileiki fylgi sér í sínu daglega lífi. „Dóttir mín hefur hins vegar alltaf talað um að mamma vissi ALLTAF ALLT. Ég vissi alltaf hvort kynið bræður mínir áttu von á þegar von var á barni. Ég var mjög berdreymin en verð að viðurkenna að það gat verið heldur óþægilegt. Að sjá þá að handan er mitt daglega líf en ég að sjálfsögðu hef fulla stjórn á hvenær og hvort ég vilji sjá þá. Ég sé þá sem eru farnir, ég sé aðrir víddir svo sem englana og ég sé, skynja og nem náttúru­verur.“

Hún segist sem barn hafa séð konu í ruggustól sem hræddi sig en að annars hræði sig lítið.

„Það sem gefur mér mest er að tengja aðra við ljósið, englana og verndara sína. Og það að gefa fólki svör sem það hefur jafnvel leitast eftir lengi, von eða vissu. Það gefur mér mest. Að geta verið þetta milli­stykki er mér heiður sem ég tek ekki sem sjálfsögðum hlut og met mikils.“

Hefur þessi hæfileiki tekið eitthvað frá Berglindi? „Ég myndi ekki segja að þetta hafi tekið neitt frá mér nema stundum orku.“

Dauðinn fyrir mér eru enda­lok eins kafla.

Hún segir að fyrir sér séu þetta margir heimar, margar víddir, og fari það eftir aðstæðum í hvert og eitt skipti inn á hvað hún stilli sig. „Og það er eins og að það séu engin takmörk hvað við getum fengið að sjá, skynja og nema ef við viljum og erum  tilbúin til.“

Hvað er dauðinn í huga Berg­lindar?

„Dauðinn fyrir mér eru endalok eins kafla, þessarar jarð­vistar, og við tekur ljósið, kærleikurinn og allt þetta fallega.“

Yfirþyrmandi sorg

Hvað hefur mótað Berglindi mest í lífinu ótengt þessum hæfileika?

„Það var þegar ég eignaðist dóttur mína og síðar þegar að ég gerðist þreföld amma. Það er fátt sem mótar mann jafnmikið á jafn­fallegan hátt og þegar nýtt líf kviknar og hvað þá þegar það veitir manni nýtt hlutverk.

Ástvina­missir hefur svo að sjálfsögðu sett sín spor og er það eitthvað sem mótar mann og maður tekur með sér áfram í lífið. En þá getur líka verið kostur að geta tengst þeim, séð og fundið hvað þau eru á fallegum stað og hvað þeim líður vel.“

Hins vegar hefur það hjálpað mér alveg gríð­ar­lega að vita af þeim á góðum stað.

Berglind segir að erfiðasta lífs­reynsla sem hún hefur gengið í gegnum sé þegar hún missti foreldra sína og tvö systkini. „Það er erfitt með orðum að lýsa hvernig það hefur haft áhrif á mig og líf mitt, enda yfir­þyrmandi sorg sem ekki er hægt að lýsa. Hins vegar hefur það hjálpað mér alveg gríðar­lega að vita af þeim á góðum stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá