Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Grímuklæddur þjófur rændi verslun – Sextán ára stúlka missti meðvitund eftir rafhlaupahjólaslys

Lögreglan að störfum.
Lög­reglan að störfum. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Eitt og annað gekk á í gærkvöldi og í nótt samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu. Þjófnaður og rafhjóla­slys stóðu upp úr.

Grímu­klæddur maður réðist inn í verslun í hverfi 108 og tók peninga úr sjóðsvél og hljóp út. Lögreglan leitar mannsins.

Fingra­langur einstaklingur stal yfirhöfn frá veitinga­staði í Miðborginni en í yfir­höfninni var nýlegur farsími frá gesti veitinga­staðarins. Verðmætin eru sögð vera rúmlega 400.000 kr.

Þá hlaut sextán ára stúlka höfuðhögg er hún féll af rafhlaupahjóli í gærkvöldi. Missti hún meðvitund um stund en var vöknuð þegar lögreglu bar að. Eftir aðhlynningu frá sjúkra­liða fékk hún að fara heim.

Tvær tilkynningar til viðbótar bárust lögreglu um rafhlaupahjóla­slys en ölvaður maður féll af slíku hjóli í hverfi 108 en hlaut minni­háttar meiðsl. Þá datt kona af rafhlaupahjóli í miðbæ Reykja­víkur og hlaut skurð á höfði. Sjúkra­bíll kom á vettvang og gerði að sárum hennar.

Maður hringdi dyra­bjöllu í íbúð í hverfi 103 og er húsráð­andi opnaði dyrnar, réðist maðurinn á hann. Var hann farinn af vettvangi er lögreglan mætti á svæðið en lögreglan veit nafn mannsins.

Tilkynnt var um líkams­árás í hverfi 104.  Árásar­aðili var hand­tekinn og vistaður fyrir rannsókn máls í fanga­geymslu lögreglu.  Áverkar árásar­þola eru í dagbókinni sagðir minni­háttar.

Aukreitis barst lögreglu tilkynning um líkams­árás í miðbæ Reykja­víkur en árásar­aðilinn var hand­tekinn skömmu síðar og vistaður í fanga­klefa lögreglu, í þágu rann­sóknar málsins. Ekki er vitað um áverka árásar­þola.

 Að lokum voru afskipti höfð af manni á veitinga­stað í miðbæ Reykja­víkur í nótt. Maðurinn var í tökum dyravarða er lögregla kom á vettvang. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var með ógnandi tilburði við lögreglu og var því hand­tekinn. Fór hann ekki að fyrir­mælum lögreglu og neitaði aðspurður af gefa upp nafn eða kennitölu. Var maðurinn vistaður fyrir rannsókn máls í fanga­geymslu lögreglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis