Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sveppirnir hjálpa Gústa kokki í daglegu lífi: „Ég sat bara með þennan sársauka í fjóra klukkutíma“

Gústi
Gústi Mynd: Svavar Burgundy

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs í hlaðvarps­þættinum Þvotta­húsinu er enginn annar en kokkurinn, lífskúnstnerinn, alkinn og fyrrum áhrifa­valdstvít­arinn Gústi „Chef“ Eyrúnarson. Hér er brot úr viðtalinu.

Enginn vímaður af míkróskömmtum

Það verður að vera skýrt þegar fólk er að taka míkró­skammta af sveppum að það sé þannig að fólk finni engin áhrif. Gústi komst að því að 0.2 grömm er hans skammtur því í um leið og hann fór upp fyrir hann þá fór hann að finna fyrir kitli og að tauga­kerfið væri tekið við. Í fyrsta skiptið sem hann tók stóran skammt gerði hann það einn og þá eitt gramm. Í því ferðalagi segist hann hafa farið inn í sárs­aukann sem knúði hann í þetta ferðalag. Þar fékk hann að upplifa þennan nístandi ótta við höfnun og sárs­aukann sem hlýst af því að vera dæmdur. Í kjölfarið segist hann vera farinn að upplifa sársauka á allt annan hátt en hann hefur áður gert, með meira hlutleysi, sjálfbærni og næmni.

„Það kom eitthvað sem olli mér mjög miklum sársauka og ég fór að hugsa „af hverju er þetta að meiða mig svona mikið? Einhver segir eitthvað og ég er bara miður mín“,“ útskýrði Gústi og hélt áfram: „Þannig að ég fór heim og tók eitt gramm af sveppum og svo sat ég bara með þennan sársauka í fjóra klukku­tíma.“ Gunnar spurði hann hvað hefði komið út úr því. „Sko, ég hef verið mikill aðdáandi Trent Reznor síðan ég var 17 ára, sérstak­lega eitt lag með honum. Og ég fór bara í þann ungling sem er svona ofboðs­lega sann­færður um að sárs­aukinn sé bla dí bla og höfnunin sé endalaus. Þá var ég að sannfæra mig um að ekkert skipti máli en núna, hérna meginn er ég alveg jafn sann­færður um að ekkert skipti máli af því að allt skiptir máli, eða svona, já,“ sagði Gústi og brosti en hann er þarna að tala um hið ódauðlega lag Hurt með Nine Inch Nail en Johnny Cash gerði lagið að sínu seinna meir. „Það skiptir engu máli hvað fólki finnst um þig og skiptir engu máli hvað þú ert að gera og hver þú ert. Og það skiptir engu máli þegar einhver sé reiður við þig ef þú gerðir ekkert af þér, skilurðu.“

Sambandið við pabba betra

Hann segist svo síðan þetta fengið að prófa nokkur efni og svona serómóníur tengdar þeim og upplifir mikið þakklæti tengt því. Í einni athöfninni drakk hann katkus en fann í raun aldrei neitt nema að heila fimm daga á eftir fann hann á maga­svæðinu, svona frá hjartanu og niður í maga, tilfinningar­svið sitt vakna. Hann fór að upplifa þenna ólýsanlega kærleik í garð pabba síns sem hann hafði haft í erfiðum samskiptum við lengi vel. Upp frá þessu fór viss heilun af stað í samskiptum hans við pabba hans sem varð til þess að þau fóru batnandi.

Gústi segist hafa upplifað alveg stórkostlegar upplifarnir í þessum ferða­lögum sínum. Hann segir að í augna­blikinu sem hann fær þær sé hann alveg berg­numinn en samtímis séu þær sjálf­sagðar og eðlilegar og ekkert merkilegar án þess að hann sé til í að gera lítið úr þeim. Gunnar spyr hann hvort honum finnist að hafi verið á þessum slóðum áður og Gústi svarar því játandi hiklaust.

Alveg sama um álit annarra

Mamma Gústa hefur fengið að sjá og upplifa breytingarnar á Gústa og hann segir að hún einfald­lega geti ekki annað en grátið yfir breytingunum sem hann hefur orðið fyrir síðan hann fór að nota sveppinn. Gústi segist upplifa mikið þakklæti og að hann hafi ekkert að fela, foreldrar hans vita hvað sé í gangi sem og barns­mæður hans. Gunnar spyr hann hvort hann óttist ekki að verða dæmdur fyrir þessi ferðalög hans á hugvíkkakandi efnum og hlæjandi svarar Gústi því þannig að hann haldi að hann hafi verið dæmdur fyrir miklu verra hluti en þetta fram að þessu. „Ég sat fyrir á klámblaði um aldar­mótin, skilurðu. Mér er alveg sama. Það kemur stundum svona „ætti ég að vera að pæla í því?“ en svo bara nei, mér er alveg sama.“

Hvað varðar síendurtekin ferðalög á mismun­andi efnum ólíkt kannski hvernig þetta fer fram í afmörkuðum sellum víðsvegar um heiminn segist Gústi vera afar þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í hinum og þessum athöfnum með ýmsum efnum en haldi að sveppurinn sé komin til að vera lífi sínu.

Þennan ljúfa og upplýsandi þátt má sjá í heild sinni hér á spil­aranum fyrir neðan sem og að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning