Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Stærsta jarðarför Gaza-borgar haldin innan um rústirnar

Hundrað og tólf einstak­lingar jarð­settir, þar af 44 börn.

Frá jarðarförinni
Frá jarð­ar­för­inni Yfir hund­rað Palest­ínu­menn voru jarð­settir í dag Mynd: OMAR AL-QATTAA / AFP

Palestínu­menn komu saman í dag til að jarðsetja meira en 100 fórnar­lömb sem nýlega fundust í rústum eftir mannskæða loftárás Ísraels­hers í Gaza-borg árið 2023. Um er að ræða fjölmennustu jarðarför sem haldin hefur verið á Gaza.

Árásin var gerð 22. nóvember 2023, aðeins nokkrum vikum eftir að stríðið hófst, þegar íbúða­blokk í Sabra-hverfinu var jöfnuð við jörðu. Talið er að meira en 300 manns hafi farist í árásinni.

Fljótlega eftir árásina tókst björgunar­fólki að ná um 40 líkum úr rústunum með einföldum verkfærum og berum höndum. Meirihluti fórnar­lambanna lá þó áfram grafinn undir húsa­rústunum.

Um síðustu helgi tókst viðbragðs­aðilum að grafa upp líkams­leifar 112 fórnar­lamba, þar á meðal 44 barna, 38 kvenna og sjö fatlaðra einstaklinga, að sögn Almanna­varna á Gaza. Talið er að 157 lík séu enn undir rústunum.

„Eini „glæpur“ þessara píslar­vætta var að þeir ákváðu að vera áfram á heimilum sínum í þeirri trú að þau myndu vernda þá,“ sagði Taysir al-Hassayna, sem missti ættingja í árásinni, í samtali við Associated Press.

Hann sagði að um hina látnu sem enn hefðu ekki fundist væri „eins og líkamar þeirra hefðu gufað upp sporlaust.“

Vopnahlé hefur gert leitina mögulega

Það er fyrst núna, tæpum tveimur árum síðar, sem unnt hefur verið að hefja markvissa leit að fólki sem lést á fyrstu mánuðum stríðsins. Viðkvæmt vopnahlé, sem tók gildi í október, hefur gert björgunar­sveitum kleift að komast að eyði­lögðum svæðum þar sem áður var ómögulegt að vinna.

Samkvæmt heilbrigðis­yfirvöldum á Gaza hafa yfir 73.377 Palestínu­menn fallið í hernaðar­aðgerðum Ísraels frá upphafi stríðsins, þar á meðal fleiri en þúsund manns frá því að hið svokallaða vopnahlé tók gildi.

Yfirmaður skráningar­deildar heilbrigðis­ráðuneytisins á Gaza, Zaher al-Waheidi, sagði að aðstand­endur hefðu tilkynnt um að minnsta kosti 7.400 einstaklinga sem enn væru taldir liggja undir rústum. Hann telur raun­verulegan fjölda vera mun hærri þar sem í sumum tilvikum hafi heilar fjöl­skyldur farist og enginn verið eftir til að tilkynna um saknað fólk.

Hundruð syrgjenda við útförina

Fórnar­lömbin sem voru jarðsett í dag tilheyrðu að mestu Hassayna- og Abu Sharia-fjöl­skyldunum og voru mörg þeirra náskyld.

Líkams­leifarnar voru lagðar í röðum, vafðar palestínskum fánum. Á mörgum þeirra voru ljós­myndir og blóma­blöðum hafði verið dreift yfir svæðið.

Hundruð syrgjenda tóku þátt í útfarar­bænum, sumir stóðu ofan á rústunum í nágrenninu. Að athöfn lokinni voru líkin borin á börum um eyði­lagðar götur og jarðsett í kirkju­garði skammt frá.

Gaza enn í rústum

Þrátt fyrir vopna­hléið hefur ástandið á Gaza lítið batnað. Heilbrigðis­yfirvöld segja að 1.252 manns hafi látið lífið frá því að vopna­hléið tók gildi og bæði Ísrael og Hamas saka hvort annað um að brjóta samkomu­lagið en daglega berast fréttir af sprengju­árásum Ísraels­hers á Gaza.

Meirihluti um tveggja milljóna íbúa Gaza hefur verið hrakinn frá heimilum sínum og býr nú víða í tjalda­búðum þar sem þrengsli, meindýr og smit­sjúkdómar hafa orðið að vaxandi vandamáli.

Viðræður um næstu skref í friðar­ferlinu hafa að mestu stöðvast. Hamas hefur ekki afvopnast þrátt fyrir fyrri samkomulög og Ísraelsher hefur enn ekki dregið sig út af stórum hluta Gaza-svæðisins.

Á mánudag fundaði Nikolay Mladenov, sem fer fyrir friðar­nefnd sem hefur umsjón með umbreytingu Gaza eftir stríðið, með Benjamin Netanyahu, forsætis­ráðherra Ísraels. Þar var meðal annars rætt um nýtt samkomulag um afvopnun Hamas.

Donald Trump Bandaríkja­forseti kynnti í síðustu viku samkomulag sem felur í sér að Ísrael hætti hernaðar­aðgerðum sínum á Gaza og að Hamas og bandamenn samtak­anna leggi niður alla vopnaða starfsemi. Ísrael hefur hins vegar lýst yfir „alvarlegum öryggis­áhyggjum“ vegna efnis samkomu­lagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár