Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ína Berglind frá Fellabæ sigraði söngkeppni Samfés: „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en syngjandi“

Ína Berglind Guðmundsdóttir
Ína Berglind Guð­munds­dóttir Mynd: Gunnar Gunnarsson

Hin Fellbæska Ína Berglind Guðmunds­dóttir sigraði á dögunum söng­keppni Samfés, samtaka félags­miðstöðva á Íslandi með frumsömdu lagi.

Austur­frétt tók viðtal við hina ungu og efnilegu söngkonu. Fram kemur í viðtalinu að í söng­keppni Samfés syngi unglingar á aldrinum 14 til 16 ára en Ína Berglind var annar tveggja fulltrúa Austur­lands í keppninni í ár. Þó að flestir keppendur syngi lög eftir þekkt tónlistar­fólk, leynast oft á milli frumsamið efni.

Ína Berglind keppti fyrir félags­miðstöðina Nýung á Egils­stöðum en hún flutti lagið sitt „Tilgangs­lausar setningar.“ Enn sem komið er hefur Ína Berglind ekki gefið neitt út opinber­lega en hefur síðustu mánuði verið duglega að koma fram víðsvegar um Austur­land. Mun hún meðal annars koma fram á Skógar­deginum mikla sem haldinn verður í Hall­orms­staðarskógi á morgun. Setur hún stefnuna á uptökur í Stúdíó Síló.

„Ég samdi lagið fyrir nokkru síðan. Ég er búin að semja lengi og á töluvert af lögum en ég hef reyndar aðallega verið að gera það fyrir mig en ekki spilað mikið af því fyrir aðra. „Tilgangs­lausar setningar“ fjallar um komment sem festast stundum dálítið inni í manni og maður losnar ekki við. Þetta er byggt á persónulegri reynslu minni en ég vil samt ekki fara neitt nánar út í hvað það merkir,“ sagði Ína Berglind í viðtalinu við Austur­frétt.

„Annars eru langflest lögin mín byggð á einhverri reynslu því maður er að reyna að koma hugsunum sínum á blað. Persónulegustu lögin eru yfirleitt alltaf í rólegri kantinum.“

Lengi hefur tónlistin átt hug og hjarta Ínu. „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en syngjandi og ég hef verið í tónlistar­skóla líka frá því ég byrjaði í skóla. Ég er að æfa á gítar í Tónlistar­skólanum í Fellabæ og söng í Tónlistar­skólanum á Egils­stöðum um þessar mundir.

En svo spila ég á fullt af öðrum hljóð­færum líka eins og píanó, ukelele og ég kann eitthvað fyrir mér á bassa þó ég sé kannski ekki mjög góð á hann ennþá. Önnur áhugamál eru ekki mikið til staðar. Ég hafði um tíma áhuga á íþróttum líka en tónlistin átti bara meira í mér og þar fékk ég miklu meiri útrás en í íþróttunum og fæ enn þann dag í dag.“

Þegar Ína Berglind er spurð að því hvaðan tónlistar­áhuginn komi og hvort hann komi frá foreldrunum skellir hún upp úr: „Nei, áhuginn kemur ekki frá þeim og ég satt best að segja veit ekki hvaðan ég hef þennan áhuga. Ég veit til þess að langafi minn var mikið í tónlist á sínum tíma en hvernig minn áhugi kviknaði veit ég bara ekki.“

Ekki er Ína Berglind fyrsti Austfirðingurinn sem vinnur söng­keppni Samfés en hún Anya Hrund Shaddock frá Fáskrúðs­firði varst fyrst til þess árið 2017.

Lengri útgáfa birtist í Austur­glugganum. Hægt er að panta áskrift hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp