Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Þingnefnd í Bandaríkjunum yfirheyrði þrjá fyrrum hermenn: Líkamsleifarnar voru ekki mennskar

Bandaríska þingið veitti í gær þremur vitnum áheyrn í gær vegna vitnis­burðar þeirra vegna fljúgandi furðu­hluta eða UAP sem stendur fyrir Unidentified Aerial Phenomena en þetta er í fyrsta sinn sem þingið gerir slíkt í yfir 50 ár.

Undir­nefnd sem fer með málefni gegn hryðju­verkum, gereyðingar­vopnum og gagn­njósnum yfir­heyrði Ryan Graves sem er fyrrum flugmaður Bandaríska sjóhersins, David Fravor sem er hættur störfum sem yfirmaður í sjóhernum og David Grusch sem var vikið úr starfi sínu hjá flugher Banda­ríkjanna fyrir uppljóstranir en yfirheyrslurnar snerust um upplýsingar eða upplifanir í tengslum við fljúgandi furðu­hluti.

Þinghald þetta kemur í kjölfar stofn­unnar starfs­hóps á vegum Varnarmála­ráðuneytis Banda­ríkjanna sem settur var á laggirnar eftir að US Intelligence Community, sem er hópur fólks úr ýmsum ríkis­stofnunum með það m.a. að leiðar­ljósi að tryggja þjóðar­öryggi þar í landi, birti frum­greiningu sína á 144 tilkynningum um fljúgandi furðu­hluti þar sem aðeins var hægt að útskýra eina þeirra.

Á einum tíma­punkti yfirheyrslunnar var David Grusch spurður að því hvort hann sjálfur eða fólk sem hann hafði talað við byggi yfir beinni vitneskju um loftför sem ekki væru af mennskum uppruna sem hann svaraði játandi þar sem hann hafði tekið viðtöl við fólk sem gat lýst því sem fram fór þar sem slík för höfðu hrapað og staðhæfði að slík för hefðu verið færð til geymslu.

Í kjölfarið var hann inntur eftir því hvort að líkams­leifar flugmanna þessara fara hefðu fundist sem hann svaraði að lífrænar leifar hafi fundist og að það væri mat fólks með beina þekkingu á málum að ekki væri um mannverur að ræða.

Yfirheyrslurnar má sjá hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár