Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Dómsmálaráðuneytið um fund Brynjars og Namibíumanna: „Umfjöllunarefnið er í eðli sínu viðkvæmt“

Myndin er samsett.
Myndin er sam­sett.

Dómsmála­ráðuneytið svaraði kæru blaða­manns Mannlífs vegna synjunar ráðuneytisins á gögnum og upplýsingum er vörðuðu fund embættis­manna ríkis­stjórnar Namibíu og Brynjars Níels­sonar, aðstoðar­manns Dómsmála­ráðherra í sumar. Brynjari sagði á Facebook að embættis­mennirnir hafi viljað ræða Samherja­málið en fékkst ekki til að segja meira.

Fimm spurningar, þrjú svör

Mannlíf sendi uppruna­lega fimm spurningar og bað um að fá að sjá minnis­blað frá leyni­fundinum. Spurningarnar voru eftir­farandi:

1. Hver var tilgangur fundarins?
2. Bar mál gegn Samherja á góma á fundinum?
3. Hverjir voru nákvæmlega viðstaddir fundinn?
4. Hvernig stóð á að fundurinn var haldin? Hver bað um fundinn?
5. Hversu lengi stóð hann yfir?

Svarið sem loksins barst 13 dögum eftir beiðni um svör, var eftir­farandi:

Dómsmála­ráðuneytinu barst ósk í gegnum forsætis­ráðuneytið með litlum fyrirvara, frá embættis­mönnum frá Namibíu, um að hitta dómsmála­ráðherra. Ráðherra var ekki viðlátinn þennan dag og því mættu tveir skrif­stofu­stjórar ráðuneytisins og einn stað­gengill skrif­stofustjóra, ásamt aðstoðar­manni ráðherra á fundinn.  Fundurinn stóð yfir í rúma klukku­stund.
Hvað varðar innihald fundarins og minnis­blöð af honum er vísað í 10 gr. laga um upplýsingamál nr. 140/2012
10. gr. Takmarkanir á upplýsinga­rétti vegna almannahags­muna.
Heimilt er að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikil­vægir almannahags­munir krefjast, enda hafi þau að geyma upplýsingar um: […]    2. samskipti við önnur ríki eða fjölþjóða­stofnanir.

Svar við kærunni

Lítur Dómsmála­ráðuneytið svo á að það hafi svarað spurningum 3, 4 og 5. Í svarinu segir ráðuneytið að mála­tilbúnaður kæranda sé ekki umfangs­mikill en telji þó „skýrt af honum að kærandi telji það kjarna þessa máls hvort áskilnaði 10. gr. upplýsinga­laga nr. 40/2021 um mikilvæga almannahags­muni sé fullnægt.“ Segist ráðuneytið sammála þessu en „vísar jafnframt til trúnaðar­gagna sem umsögn þessari fylgja og umfjöllunar um þau.“

Ennfremur segir í svari dómsmála­ráðuneytisins að í greinar­gerð með frumvarpi til upplýsinga­laga er í skýringum með ákvæði 10. gr. sé að finna eftir­farandi texta: Með orða­laginu „þegar mikil­vægir almannahags­munir krefjast“ er vísað til þess að beiðni um upplýsingar verður ekki synjað, hvorki í heild né að hluta, nema aðgangur almennings að upplýsingum muni skaða einhverja af þeim almannahags­munum sem tilgreindir eru í ákvæðinu. Þessir hagsmunir eru tæmandi taldir, en hver töluliður sætir sjálf­stæðri skýringu með tilliti til eðlis þeirra upplýsinga sem um ræðir.

Segist ráðuneytið hafa haft samráð við Utan­ríkis­ráðuneytið vegna málsins og aflað þaðan upplýsinga um hvernig almennt sé háttað upplýsinga­gjöf um fundi með sendi­mönnum erlendra ríkja. Samkvæmt Dómsmála­ráðuneytinu leggst Utan­ríkis­ráðuneytið „afdráttar­laust gegn því að upplýst sé um efni funda með sendi­mönnum erlendra ríkja.“

Í niðurlagi svarsins færir ráðuneytið rök fyrir ákvörðun sinni að svara ekki öllum spurningum Mannlífs:

„Synjuninni til rökstuðnings vísast til ákvæðis 2. töluliðar 10. gr. upplýsinga­laga. Af ákvæðinu leiðir að heimilt er að takmarka upplýsinga­rétt almennings þegar mikil­vægir almannahags­munir krefjast, enda hafi gögn að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóða­stofnanir. Gögnin sem um ræðir í þessu máli varða samskipti stjórn­valda við erlent ríki og umfjöllunar­efnið er í eðli sínu viðkvæmt, ekki síst frá sjónar­hóli hins erlenda stjórn­valds. Geti erlendir sendimenn ekki treyst því að trúnaður um samskiptin sé undan­tekningar­laust virtur, stefnir það nauðsyn­legu trúnaðar­trausti í hættu. Þar með gætu stjórn­völd ekki átt í árangurs­ríkum samskiptum við erlend ríki til að sinna lögmæltum hlut­verkum sínum í þágu í íslenska ríkisins með þeim afleiðingum að brýnir almannahags­munir yrðu fyrir borð bornir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning