Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ótrúleg nótt fyrir norðan: Sauð upp úr á Sjallanum: Hnífamaður á Siglufirði: Ungur drengur stal bíl

Lögreglan á Norðurlandi eystra.
Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra. Mynd: Facebook.

Lögreglan á Norður­landi virðist hafa átt talsvert verri nótt en lögreglan í Reykjavík. Í það minnsta ef dagbækur umdæmanna eru bornar saman. Auk þess hefur lögreglan á Norður­landi ekki lagt í vana sinn að birta dagbækur opinber­lega, þar til nú.

Það er áberandi að lögreglan fyrir norðan skrifar í öðrum stíl en sú í Reykjavík. Sú norð­lenska er talsvert ítarlegri og sagt frá atvikum á mannamáli. Ólíkt í Reykjavík þar fáorður, knappur og nánast vélrænn stíll virðist ríkjandi.

Málin sem lögregla fyrir norðan tókst á við í nótt og í gærkvöldi voru fjöl­breytt og krefjandi. Fyrsta dæmið um það hljóðar svo:

„Um kl. 20:30 í gærkvöldi fékk lögregla tilkynningu um mögulega vímaðan ökumann á ferðinni þar sem maðurinn hafði einnig veist að konu og síðan ekið í burtu eftir það. Lögreglu­menn sáu bifreiðina, gáfu stöðvunar­merki sem ökumaður sinnti ekki og ók áfram á miklum hraða og skapaði með aksturs­lagi sínu mikla hættu og viðhafði víta­verðan akstur mót einstefnu og yfir umferðar­eyjar. Eftir nokkurra mínútna eftirför sem endaði við iðnaðarbíl í bænum, stökk maðurinn út úr bifreiðinni en náðist skömmu síðar og var hand­tekinn og færður á lögreglustöð og síðan vistaður í fanga­geymslum v. rann­sóknar málsins.“

Rétt fyrir miðnætti barst svo tilkynning um alvarlegt slys í Fjalla­byggð. „Lögreglan í Fjalla­byggð fékk tilkynningu um kl. 23:30 í gærkvöldi um slys þar sem kona hafði fallið um fjóra metra af bakka og niður í fjöru við Hauganes. Betur fór en á horfðist og konan lítið slösuð. Björgunar­sveitir voru kallaðar út vegna slyssins en afboðaðar stuttu síðar þegar ljóst þótti að hægt var að koma konunni til aðstoðar frá landi en mögulega var talið að sækja þyrfti hana í fjöruna, frá sjó,“ lýstir norð­lenska lögreglan.

Á sama tíma á Siglu­firði þurfti að handtaka óðan mann með hníf. „Rétt eftir miðnætti var maður hand­tekinn á Siglu­firði en hann hafði verið tilkynntur með ógnandi tilburði og sagðist vera vopnaður hnífi. Sérsveit RLS á Akureyri var kölluð út vegna mannsins og hélt af stað á vettvang en stuttu síðar náðu lögreglu­menn á Siglu­firði að handtaka hann án vandkvæða og var hann færður á lögreglu­stöðina á Akureyri og vistaður þar.“

Svo voru margir ofurölvi á Akureyri og til vandræða. „Lögregla á Akureyri fékk tilkynningu um ölvun og ágreining á tjald­svæðinu við Hamra, um kl. 02:30 og fóru á vettvang og náðist að leysa þann ágreining milli aðila án þess að fjarlægja þyrfti fólk eða setja í fanga­geymslur,“ segir í dagbókinni.

Klukkan þrjú sauð svo upp úr á Sjallanum. „Um kl. 03:00 var tilkynnt um ógnandi framkomu gestar í Sjallanum gegn dyraverði. Það mál leystist á staðnum. Lögregla ók nokkrum ofurölvi einstaklingum heim á leið sem höfðu fengið sér heldur mikið ,,neðan í því“ og voru orðnir frekar lasnir af þeim sökum,“ lýsir lögregla.

Stuttu síðar þurfti að róa sauðdrukkinn mann á sjúkra­húsinu. „Lögregla fékk um kl. 04:00 beiðni frá bráða­móttöku sjúkra­hússins á Akureyri vegna manns sem þar var óstýrilátur. Sá hafði verið fluttur þangað af lögreglu stuttu áður vegna ástands. Það leystist með samvinnu lögreglu og heilbrigðis­starfsmanna.“

Einnig réðust margir menn á einn við Götu­barinn. Heppnin var þó með honum og slapp hann vel miðað við aðstæður. „Einhver hiti var í mönnum við Götu­barinn í Hafnar­stræti um kl. 04:00 og veittust þar nokkrir menn að einum sem tókst að koma sér í skjól á veitinga­staðnum og biðja um aðstoð. Maðurinn var fluttur á bráða­móttöku SAk.“

Síðasta verkefni næturnar var svo að eiga við ungan óþekktarorm. „Tilkynnt var um ungan dreng á ferðinni á bifreið sem hann hafði tekið í óleyfi snemma í morgun en þegar lögregla kom á staðinn hafði hann skilað bifreiðinni til eiganda síns óskemmdri. Verður háttalag hans tilkynnt barna­verndar­yfirvöldum.“

Hér fyrir neðan má svo til saman­burðar lesa lýsingu Lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu á því sem gerðist í miðbænum í nótt.

„Tveir ökumenn stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur. Hefð­bundið ferli hjá lögreglu.

Ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hefð­bundið ferli hjá lögreglu.

Tilkynnt um að maður hafði dottið á rafskútu í hverfi 104. Minni­háttar meiðsl en maðurinn mjög ölvaður.

Tilkynnt um vopnað rán í hverfi 105 en þarf hafði maður rænt síma af konu og ógnað henni með hníf. Hann hand­tekinn og vistaður fangageymsu lögreglu í þágu rann­sóknar máls.

Ökumaður stöðvaður í akstri án gildra ökuréttinda. Sektaður.

Tilkynnt um ölvaðan ógnandi mann á tjald­svæðinu í Laugardal. Lögregla á vettvang og fannst maðurinn ekki.

Tilkynnt um hóps­lagsmál í miðbænum. Einn gisti fanga­geymslu lögreglu.

Tilkynnt um aðila í floga­kasti í miðbænum. Fluttur á slysa­deild til aðhlynningar.

Tilkynnt um ofurölvi aðila í miðbænum. Honum ekið heim til sín en hann gat ekki gengið sjálfur vegna ölvunar og hafði kastað upp yfir sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið