Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Skákmenn sýna Hrafni þakklæti sitt á ögurstundu hans: „Við erum ein fjölskylda!“

Hrafn Jökulsson
Hrafn Jök­uls­son

„Hrafn hefur lengi verið sem heil stofnun góðgerðar- og þjóðþrifa­mála. Skákmenn eru vel meðvitaðir um hans stóra þátt og eru honum þakklátir. Vonandi skilar það sér í fjár­stuðningi við Hrafn sem hefur lengi bókstaf­lega lapið dauðann úr skel.“

Þetta segir Árni H. Kristjánsson í samtali við Mannlíf en hann heldur utan um söfnun sem skákmenn hafa komið á fót fyrir Hrafn Jökulsson, rithöfund, baráttu­mann og skák­frömuð. Hann berst nú fyrir lífi sínu en hann greindist nýverið með krabba­mein á lokastigi. Batalíkur eru hverfandi en Hrafn hefur þó lýst því yfir að hann muni berjast fram í rauðan dauðann.

Skákmenn vita mikilvægi einbeitingar og ef menn tefla við dauðann sjálfan þá má ekkert þvælast fyrir. Peninga­áhyggjur bæta ekki úr skák. Innan Facebook-hóps skákmanna á Íslandi skrifar Árni: „Kæru skákmenn! Sem kunnugt er þá er félagi okkar Hrafn Jökulsson að glíma við mjög alvarleg veikindi. Hann hefur lengi verið þjónn skák­gyðjunnar og lyft grettis­tökum á þeim vettvangi. Hrafn hefur um langa hríð búið við þröngan kost og útgjöld vegna veikindanna hafa þrengt hann enn frekar. Við getum létt undir með Hrafni með því styrkja hann og þar gerir margt smátt eitt stórt.“

Árni segir allmarga skákmenn hafa svarað kallinu nú þegar og lagt sitt að mörkum. Hér fyrir neðan má finna banka­upplýsingar Hrafns fyrir þá sem vilja senda honum baráttu­kveðjur.

Hrafn Jökulsson kt. 011165-3709, reiknings­númer 1161-05-400511.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið