Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Gífurlegur verðmunur á alþrifi og bóni – VERÐKÖNNUN – Allt að 132 prósenta munur

Allt að 132 prósenta verðmun er að finna á verði á alþrifum og bóni. Þetta kom í ljós í verð­könnun Mannlífs þar sem verð á 12 stöðvum var kannað. Munurinn reyndist vera á bilinu 67 til 132 prósent.

Í verð­könnun vikunnar skoðaði Mannlíf verð á alþrifum og bóni fyrir bifreiðar. Skoðuð voru verð á 12 stöðum sem bjóða upp á þjónustuna. 10 stöðvanna eru á höfuð­borgar­svæðinu, ein í Keflavík og ein á Akureyri. Upplýsingar voru fengnar að mestu leyti á vefsíðum fyrir­tækjanna en þar sem upplýsinga naut ekki við á netinu, var hringt. Þjónustan var mjög svipuð og í flestum tilfellum nákvæmlega eins. Uppgefinn tími sem tekur að framkvæma alþrif og bóna var svipaður. Ekki er innifalið í verðunum að bifreiðin sé sótt og henni skilað. Ein stöð tók fram að auka 1000 krónur væru teknar fyrir mjög skítuga bíla, það var Bílaspa.

Niðurstöður

Í flokknum litlir fólks­bílar var Buddy bíladekur í Keflavík með lægsta verðið en Bíladekur með það hæsta. Munurinn á verðinu var 67 prósent.

Í flokknum stórir fólks­bílar voru tvær stöðvar með lægstu verðin, Buddy bíladekur og Massabón. Hæsta verðið reyndist vera hjá Detail Reykjavík. Munurinn á verðinu var 70 prósent.

Í flokknum jepplingar var Höfðabón með lægsta verðið en Detail Reykjavík með það hæsta. Munurinn á verðinu var 92 prósent.

Í flokknum jeppar var Höfðabón með lægsta verðið en Detail Reykjavík með það hæsta. Munurinn á verðinu var 132 prósent.

Öll verð má sjá hér að neðan.

Staður Lítill fólks­bíll Stór fólks­bíll Jepp­lingur Jeppi
Dlux bón 16990 17990 19990 20990
OK bón 18000 18000 20000 23000
Bíla­dekur 19900 19900 19900 24900
Aðalbón 15900 16900 18900 22900
Höfðabón 12000 13000 14000 15500
Smartwax 17500 19500 22200 25000
Bílaspa 13000 14000 15000 17500
Bón og þvottur hjá Jobba 16000 17000 19000 22000
Massabón 12900 12900 14900 16900
Detail Reykja­vík 18900 21900 26900 35900
Buddy bíla­dekur Keflavík 11900 12900 14900 17900
Bón­stöðin Akureyri 17400 19900 22900 26900
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning