Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fyrstu íslensku náttúruverndarsinnarnir: bændurnir, stíflan og dýnamítið

Í fyrra voru komin fimmtíu ár frá því að stórt atvik átti sér stað í íslenskri umhverfis­verndar­sögu.

Að kvöldi dags þann 25. ágúst árið 1970 tóku nokkrir bændur í Suður-Þing­eyjarsýslu sig saman og sprengdu stíflu í Laxá í Aðaldal við Mývatn í loft upp. Alls lýstu 113 yfir ábyrgð á verknaðinum, en að endingu voru 65 þeirra ákærðir og sakfelldir. Þeir aðilar fengu þó ekki þunga dóma.

Í grein Björns Jónassonar úr Þjóðmálum segir meðal annars um atburðinn:

„Fólk er yfirleitt sammála um að bændur hafi forðað stórslysi. Að hefðu áform verk­fræðinga og virkjunar­sinna náð fram að ganga hefði tjónið verið óbætanlegt. Fremja átti hryðju­verk gegn Íslandi. Því var afstýrt með hjálp Dýnamits.“

Þetta var í fyrsta sinn í sögu Íslands sem mál er varðaði umhverfis­vernd varð að dómsmáli.

Yfirvofandi umhverfisslys en enginn hlustaði

Aðdragandi málsins er samþykkt þess efnis að byggja skyldi 60 mw stíflu í Laxá og er málið í heild kallað Laxár­deilan, en hún stóð í raun frá árinu 1968 til 1973.

Það var Laxár­virkjun sem stóð fyrir byggingu stíflunnar í Miðkvísl, en með tilkomu hennar yrðu miklir vatna­flutningar á svæðinu með tilheyrandi áhrifum á lífríkið. Bændurnir á svæðinu, sem best þekktu virkjana­kostinn, sögðu áformin stofna laxinum í ánni í hættu og að virkjunin myndi sömuleiðis skaða viðkvæmt lífríki Laxár og Mývatns. Auk þessa myndu vatnsborðs­hækkanir leggja Laxárdal í eyði.

Bændurnir lögðust því alfarið gegn áformum Laxár­virkjunar og mótmæltu gerð stíflunnar. Á þá var hinsvegar ekki hlustað. Þrátt fyrir mikla þekkingu þeirra á svæðinu, hagsmuni og skilning á hinu mikla lífríki voru sjónarmið bændanna algjör­lega hunsuð. Því hafðist Laxár­virkjun handa við að reisa stífluna, þvert á vilja land­eigenda.

Bændurnir leituðu allra leiða til þess að fá áformunum hnekkt. Ítrekað var reynt að fara lagalegu leiðina, bændur vildu fá lögbann á virkjunina út frá vel rökstuddu máli sínu, en allt kom fyrir ekki.

Það endaði því svo að bændurnir tóku sig saman og sprengdu stífluna í skjóli nætur. Sprenging stíflunnar í Miðkvísl við ósar Mývatns er afdrifa­ríkasti atburðurinn í Laxár­deilunni og skipti sköpum í málinu.

Samstaða og leynd

Samstaða bændanna 113 brást aldrei. Enginn þeirra lét buga sig í vitna­leiðslum og því sagði aldrei nokkur þeirra frá því hver eða hverjir það voru sem höfðu sprengt stífluna. Þess í stað játuðu þeir allir sök. Það hvíldi ákveðin bannhelgi yfir málinu og í áratugi vissi jafnvel yngra fólkið í sveitinni ekki nákvæmlega hverjir það voru sem fíruðu upp í sprengjunni.

Í gegnum árin hefur málið stundum verið kallað „eina íslenska hryðju­verkið“, en með tíð og tíma, sem og aukinni náttúru­vernd og umhverfis­vitund, hefur málið fengið á sig annan blæ og atvikið frekar verið talið hetjudáð þeirra bænda sem þarna áttu í hlut. Atburðurinn er í dag talinn marka upphaf náttúru­verndar á Íslandi.

Þrátt fyrir að merkileg atvik sem tengja má náttúru­vernd hafi fyrr átt sér stað, eins og barátta Sigríðar í Brattholti, þá var þessi atburður algjör vendi­punktur í sögunni og íslenskri náttúru­vernd. Eftir þetta fór sannarlega að verða einhver hugarfars­breyting í þjóð­félaginu og mál af þessum toga voru rædd á nýjan hátt. Umhverfis­vernd varð raun­verulegra fyrirbæri sem fleiri skildu að væri mikilvægt.

Freklega gengið á rétt bænda

Það er um margt merkilegt að virkjunar­sinnar hafi fengið að ganga jafn langt á sínum tíma og raun ber vitni. Með virkjuninni hefðu margar jarðir í einkaeigu farið undir vatn og þarna var að öllu leyti gengið mjög harkalega fram gagnvart bændunum og eignar­rétti þeirra.

Auk þessa kom virkjunin aldrei til með að þjóna bændunum á nokkurn hátt, þar sem nýta átti orkuna á Akureyri.

Sömuleiðis átti að reisa virkjunina sjálfa á landi í einkaeigu. Auk ofan­greinds er svo auðvitað skaðsemi virkjunarinnar gagnvart lífríkinu, en það var bændunum mikið hitamál og reyndu þeir að benda á það hvað eftir annað, en töluðu fyrir daufum eyrum.

Út frá þessu máli hafa margir haldið því fram að besta náttúru­verndin felist í eignar­rétti á landsvæðum. Að hagsmunum nátt­úrunnar sé best borgið þegar hún eigi sér eigendur og verndara, sína eigin landvætti ef svo má að orði komast.

Aðrir eru ósammála því og telja einungis þurfa betri regluverk utan um náttúru­vernd og virkjana­kosti.

Hvellur

Í heimildar­myndinni „Hvellur“, sem frumsýnd var árið 2013 var loks hulunni svipt af leyndar­málinu sem bændurnir höfðu varðveitt í öll þessi ár: hverjir það voru í raun sem sprengdu stífluna; tóku í gikkinn, ef svo má að orði komast. Það voru þeir Guðmundur Jónsson á Hofs­stöðum, Sigurgeir Pétursson á Gaut­löndum og Arngrímur Geirsson í Álfta­gerði. Þeir Guðmundur og Sigurgeir voru báðir látnir þegar myndin kom út, en Arngrímur á lífi. Arngrímur lést svo í júní í fyrra.

Til þess að safna liði bænda á svæðinu voru boð látin ganga út í jarðarför á Skútu­stöðum sama dag og stíflan í Miðkvísl var sprengd. Í heimilda­myndinni kemur fram að dýnamítið sem notað var til að sprengja stífluna var í eigu framkvæmda­aðila stíflu­gerðarinnar, Laxár­virkjunar.

Samstaða Mývetninga einstök

Það má um margt segja að virkjunar­sinnar hafi þarna valið sér ranga sveit til að abbast upp á. Andinn og samstaðan í Mývatns­sveit hefur löngum verið sterk og þar var alla tíð mikil samfélagsleg meðvitund. Þarna bjó líka mikið af víðlesnu fólki, sem jafnvel kunni töluvert fyrir sér í lögfræði.

Þessari byltingu Mývetninganna hefur stundum verið líkt við Kára­hnjúkamálið, en Grímur Hákonarson, leik­stjóri Hvells, sagði sömuleiðis að honum þætti stemningin í kringum Laxár­deiluna og sprenginguna árið 1970 um margt líkjast byltingar­andanum í búsáhalda­byltingunni. Það má vel skilja þá líkingu. Fólkið, almúginn, tekur vald sitt til baka. Stendur uppi í hárinu á ráðandi öflum, stendur hnarreistur augliti til auglitis við auðvaldið og segir: hingað og ekki lengra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Hvetur fólk til að eiga reiðufé.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto