Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Guðlaug fékk rauða spjaldið og varð kúabóndi: „Ég var búin að vera í megrun allt mitt líf“

Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir. Mynd af Facebook.
Guðlaug Elísabet Ólafs­dóttir. Mynd af Facebook.

„Ég var búin að vera í megrun allt mitt líf og var orðin hundleið á þvi,“ segir Guðlaug Elísabet Ólafsdótir leikkona. Þetta kom fram í þættinum Segðu mér í morgun með Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur.

Sigurlaug Margrét vakti athygli á því að Guðlaug hefði breyst mikið í útliti.  „Ég fékk rauða spjaldið hjá mínum lækni “ segir hún og vísar til þess að hafa verið í reglulbundnu eftirliti vegna fjölskyldu­sögu um hjarta­sjúkdóma. Hún reyndi fyrst að ná tökum á  vandanum sjálf en varð svo að játa sig sigraða og fékk aðstoð og fór í aðgerð sem gerði það að verkum að lífs­stíllinn breyttist til muna. Í dag borðar hún  1/5 af því sem hún gerði áður og hún hætti líka að reykja.

Faðir Guðlaugar lést þegar hann var einungis 46 ára og hún  14 ára. Hann glímdi við hjarta­sjúkdóm og lifði óheil­brigðu lífi.  Hún átti mjög erfitt eftir föður­missinn og náði ekki að vinna úr því fyrr en hún var orðin fullorðin kona. Guðlaug fékk aðstoð hjá sérfræðingi og grét fyrstu tímana hjá honum. Hún náði að losa um uppsafnaða reiði, sorg og söknuð. En árið 1983 þegar faðir hennar lést var engin aðstoð í boði.

Guðlaug tekur reglulega U beygjur í lífinu. Fyrir tíu árum síðan var hún stödd fyrir tilviljun á balli austur í Öræfum. Sætasti strákurinn á ballinu bauð henni upp og þau eru enn að dansa saman í dag.  Hún var þá nýhætt sem verkefna­stjóri í Viðey og hafði gengið með barn fyrir frænda sinn og hans mann. Það voru ýmsir erfið­leikar í kringum það mál „Sem hefur ekki verið neitt leyndarmál“ segir Guðlaug.   Hún fékk ekki að umgangast barnið eftir að það fæddist eins og hún hafði óskað eftir  en í dag horfir allt til betri vegar og allir eru bullandi hamingju­samir.

Í dag er hún kúabóndi austur í Öræfum ásamt manni sínum og hefur búið þar síðastliðin tíu ár. Segist vera mjög ánægð og gleðst á hverjum degi yfir útsýninu sem hún hefur út um eldhús­gluggann. Þau hjónakorn eru í fjarbúð eins og er þar sem henni bauðst að leika í nýju verki í Borgar­leikhúsinu sem heitir Hvíta tígrís­dýrið og standa æfingar yfir á fullu sem stendur. Hún gleðst yfir því að hafa fengið tækifæri til að starfa með þessu unga frábæra fólki sem stendur að verkinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt