Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Vignir Vatnar sigraði stórmeistarann Magnus Carlsen í netskák

„Ég er helvíti ánægður“

Magnus og Vignir Vatnar
Magnus og Vignir Vatnar Vignir hafði betur gegn Magnusi. Mynd: Samsett

Íslenski stór­meistarinn Vignir Vatnar Stef­ánsson hafði betur gegn hinum norska stór­meistara Magnusi Carlsen á skákmóti á netinu í gærkvöldi. Skákin fór fram í Titled Tuesday, vikulegu skákmóti sem Chess.com heldur utan um. RÚV segir frá sigrinum.

Með þessum sigri varð Vignir fyrsti Íslend­ingurinn til að vinna Carlsen frá árinu 2011. Carlsen, sem varð heims­meistari í fyrsta sinn árið 2013 og hefur alls fimm sinnum hampað titlinum, er víða talinn einn fremsti skákmaður heims.

Vignir Vatnar, fæddur árið 2003, er yngsti stór­meistari Íslands en hann varð stór­meistari árið 2023. Hann er einn af sautján Íslendingum sem hlotið hafa þann titil.

Í viðtali við Vísi lýsti Vignir ánægju sinni með sigurinn: „Ég vann hann og í þokkabót er þetta fyrsta skipti sem ég tefli við hann þannig ég er helvíti ánægður með 1-0 skorið mitt á móti honum!“

Skák þeirra þótti óvenjuleg þar sem staðan var ekki Vigni Vatnari í hag snemma í taflinu. Hann benti einnig á að Carlsen hefði áður tapað gegn Íslendingum í netskák, en ekki síðan 2011.

Carlsen trónir enn á toppi ELO-styrkleika­listans með 2837 stig, en Hikaru Nakamura fylgir fast á eftir með 2804 stig. Vignir er með 2536 ELO stig og er í 398. sæti á heimsvísu.

Vignir endaði í 50. sæti í mótinu að þessu sinni, en besti árangur hans hingað til er 10. sæti. Heildar­verðlaun í mótinu nema 635.000 krónum, þar af fær sigurveg­arinn 127.000 krónur.

Japanski stór­meistarinn Hikaru Nakamura hefur unnið Titled Tuesday oftast eða 70 sinnum, með Carlsen næstan á eftir með 29 sigra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Sport

Nærmynd

Hver er Theodór Elmar?

Tíu árum eftir árangur Íslands á EM 2016 rifjar Mannlíf upp feril Theodórs Elmars Bjarnasonar, eins af leikmönnum liðsins.

Kristian Nökkvi kemur inn í landsliðs­hópinn

Átján ára knattspyrnu­maður lést eftir höfuðhögg í miðjum leik

Brasilísk knattspyrnu­félög leita til lögreglu eftir slagsmál í leik U20-liða kvenna

Helga Margrét vill breyta heiminum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Mark­vörðurinn í áfalli eftir dauðsfallið