María Klara Jónsdóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Athygli og mun þar sinna verkefnum á sviði samskipta, stefnumála og stjórnendaráðgjafar.
Hún kemur til Athygli frá Attentus, þar sem hún starfaði undanfarin fimm ár við ráðgjöf á sviði mannauðsmála og vinnuréttar. Áður starfaði María Klara meðal annars sem héraðsdómslögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni, lögfræðingur endurupptökunefndar og mannauðsstjóri flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair.
María Klara lauk BA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012 og meistaragráðu tveimur árum síðar. Hún hefur jafnframt málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi.
Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli, segir reynslu hennar styrkja ráðgjafarteymi fyrirtækisins verulega.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir