Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Cleveland – græna stálborgin

Á dög­unum ferð­að­ist ég til borg­ar­innar Cleveland og átti ekki von á að þessi gamla iðn­að­ar­borg í mið­ríkjum Banda­ríkj­anna myndi heilla mig upp úr skónum.

Cleveland – græna stálborgin

Cleveland er borg í Norður-Ohio-ríki og liggur við strönd stöðu­vatns­ins Erie sem þó er svo víð­femt að horfi maður út á það væri auð­velt að ímynda sér það sem opið haf. Hinum megin við vatnið er Kanada og á vorin fyll­ast græn svæði borg­ar­innar af far­fuglum sem nýta sér þau sem áning­ar­stað áður en þeir fljúga langa og strembna ferð yfir Erie á sum­ar­varp­stöðvar sínar í norðri. Borgin er byggð með fram hlykkj­óttri á sem nefn­ist Cuyahoga en talið er að nafnið sé komið frá móhík­önum og þýði snúið fljót. Cuyahoga-áin var for­senda þess að borgin þró­að­ist úr litlu sveita­þorpi þar sem hún tengd­ist með mann­gerðum skurðum og fljótum við Atl­ants­hafið og Mexík­óflóa, með því móti var þetta litla svæði í Banda­ríkj­unum orðið að ákjós­an­legum stað fyrir við­skipti og vöru­flutn­inga sem stækk­aði enn frekar með til­komu járn­braut­ar­lest­ar­innar.

Borgin státar af skemmti­legum hverfum, fjöl­breyttri þjón­ustu og söfnum, íþrótta­liðum í úrvals­flokki, úti­svæðum, leik­húsum og nán­ast enda­lausum við­burðum allt árið um kring.

Cleveland verður borg iðn­aðar
Árið 1870 stofn­aði John D. Rockefeller iðn­að­ar­veldi sitt undir nafn­inu Standard Oil í Cleveland og lagði þar með grunn­inn að ótrú­legri auð­legð Rockefeller-fjöl­skyld­unnar. Hann flutti seinna höf­uð­stöðvar sínar til New York-borgar sem þá var orðin þunga­miðja við­skipta í land­inu. Í byrjun 20. aldar flykkt­ust þó fleiri fyr­ir­tæki að borg­inni og Cleveland varð þekkt fyrir stál­iðnað sem og bíla­fram­leiðslu. Sumir bíla­fram­leið­end­urnir voru mjög fram­úr­stefnu­legir og voru á þessum tíma að reyna að þróa bíla sem gengu fyrir gufu eða raf­magni. Þessi mikli upp­gangur lað­aði að sér fólk sem sett­ist að í borg­inni og vann iðn­að­ar­störf og gætir menn­ing­ar­á­hrifa þess enn í dag. Þetta voru aðal­lega inn­flytj­endur frá Suður- og Austur-Evrópu ásamt fólki af öðrum upp­runa frá Suð­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna í leit að atvinnu og betra lífi.

Cleveland er borg í Norður-Ohio-ríki og liggur við strönd stöðu­vatns­ins Erie sem þó er svo víð­femt að horfi maður út á það væri auð­velt að ímynda sér það sem opið haf.

Blómlegt lista­líf
Borgin þand­ist út á þessum tíma og var í byrjun 20. aldar fimmta stærsta borg Banda­ríkj­anna. Hluti af nýjum íbúum Cleveland voru lista­menn og tón­list­ar­fólk. Stór hópur inn­fluttra var frá New Orleans og færði með sér líf­lega djass­senu, djass­klúb­b­arnir þóttu á tíma­bili svo góðir að frægir tón­list­ar­menn, eins og Miles Davis og Duke Ell­ington, lögðu reglu­lega leið sína þangað. Upp­gang­ur­inn í iðn­að­inum og ofgnótt verka­manna gerði það einnig að verkum að byggðar voru til­komu­miklar bygg­ingar í mið­borg­inni og rík­ari stétt sam­fé­lags­ins gerð­ist bak­hjarlar lista­manna. Þetta tíma­bil lista er þekkt sem Cleveland-skól­inn og er sér­stak­lega þekkt fyrir fal­legar vatns­lita­myndir ásamt prent­verkum og skúlp­t­úrum. Sum þess­ara verka má finna á lista­safni borg­ar­innar sem fjallað er um hér til hliðar.

Meng­un­ar­slys veldur bylt­ingu í umhverf­is­vernd
Allur þessi upp­gangur, þensla í iðn­aði og sístækk­andi hópur inn­flytj­enda hafði þó einnig nei­kvæð áhrif. Mengun frá iðn­aði borg­ar­innar, skor­dýra­eitur og áburður flæddi óáreitt út í Cuyahoga-ána og stöðu­vatnið Erie ásamt skólpi og rusli íbú­anna. Þetta hafði þau áhrif að reglu­lega var strand­lengja vatns­ins full af dauðum fiskum sem lifðu ekki af meng­un­ina í vatn­inu. Áin var oft þakin olíu­brák og það gerð­ist oftar en einu sinni að eldur geis­aði í ánni. Straum­hvörf urðu árið 1969 þegar áin stóð í ljósum logum og olli tölu­verðum spjöllum. Í kjöl­farið var sett fræg lög­gjöf (the clean water ini­ti­ative) sem á við um öll ríki Banda­ríkj­ana og setur tak­mark­anir á úrgangslosun í vötn og ár. Í krafti lög­gjaf­ar­innar var ráð­ist í hreins­un­ar­starf í ánni og stöðu­vatn­inu sem tek­ist hefur ein­stak­lega vel. Fallegir og grænir almenn­ings­garðar liggja nú með fram ánni og laða að sér unga sem aldna í ýmis konar úti­vist, fugla­skoðun og fisk­veiðar. Ferskvatns­upp­spretta borg­ar­búa er nú í stöðu­vatn­inu og á því má sjá fiski­báta, kajakræð­ara og fjöl­breytt dýra­líf.

Frjáls­lynd borg í upp­sveiflu
Breyt­ingar á iðn­að­ar­háttum og verk­smiðju­fram­leiðslu hefur breytt Cleveland á und­an­förnum ára­tugum. Borgin býr nú við mun bland­aðra hag­kerfi en var áður og öllu hefur verið kapp­kostað til að styrkja inn­viði borg­ar­innar bæði fyrir íbúa hennar og þá sem hana heim­sækja, en margir brott­fluttir Cleveland-búar eru farnir að sækja aftur í heima­hag­ana. Í dag eru flestir sem sækja borg­ina heim aðrir Banda­ríkja­menn eða Kana­da­búar en borgin er í mik­illi sókn og úr ótal­mörgu að velja fyrir ver­ald­ar­vana ferða­langa. Borgin státar af skemmti­legum hverfum, fjöl­breyttri þjón­ustu og söfnum, íþrótta­liðum í úrvals­flokki, úti­svæðum, leik­húsum og nán­ast enda­lausum við­burðum allt árið um kring. Gestir borg­ar­innar geta hlaðið niður Destination Cleveland-smá­forrit­inu í sím­ann sinn til að skipu­leggja ferða­lag sitt og fylgj­ast með því sem er á döf­inni.

________________________________________________________________

Fjölbreytt afþreying í Cleveland

Rock and Roll Hall of Fame
Eitt aðal­að­drátt­ar­afl ferða­manna til Cleveland er rokksafnið Rock and Roll Hall of Fame. Safnið er við strönd vatns­ins Erie og var teiknað af sama arki­tekt og hann­aði pýramídana við Louvre-safnið í París. Safnið er mjög stórt með bæði föstum sýn­ingum og breyti­legum sem spanna sögu rokktón­list­ar­innar í gegnum marg­miðl­un­ar­sýn­ingar, bún­inga og hljóð­færi tón­list­ar­manna og texta. Auðvelt er að verja heilum degi á safn­inu en þar má einnig finna veit­inga­stað og bar til að fylla á tank­inn milli þess sem skoðað er. Vefsíða: https://www.rockhall.com

Cleveland Museum of Art
Lista­safn Cleveland er stað­sett í hinu sjar­mer­andi Uni­versity Circle-hverfi en þar má einnig finna dýra­garð, grasa­garð, tón­leika­hús og nútíma­lista­safn. Ókeypis aðgangur er að safn­inu og þar kennir ýmissa grasa. Það á gott safn verka impressjónist­anna ásamt skemmti­legum nútíma­verkum eftir banda­ríska lista­menn en þó er safnið þekkt fyrir stórt safn egypskra og suð­austur-asíska verka. Safnið er í gull­fal­legri bygg­ingu með yfir­byggðu torgi í miðju safns­ins og á fyrstu hæð­inni má finna afþrey­ing­ar­her­bergi með gagn­virku efni fyrir yngstu kyn­slóð­ina. Vefsíða: http://www.clevelandart.org/

The Cleveland Orchestra
For­fallnir aðdá­endur klass­ískrar tón­listar vilja margir meina að sin­fón­íu­hljóm­sveit Cleveland sé sú besta í Banda­ríkj­unum. Hljóm­sveitin ferð­ast mikið bæði um Banda­ríkin og önnur lönd en á þó heim­ili sitt í Severance Hall, fal­legri bygg­ingu frá árinu 1931 sem ber eft­ir­nafn vel­unn­ara síns, John Severance, en hann lét reisa tón­list­ar­húsið í minn­ingu heittelskaðrar eig­in­konu sinnar. Finna má dag­skrá og fréttir hljóm­sveit­ar­innar á heima­síðu hennar. Vefsíða: https://www.clevelandorchestra.com

Cleveland Cavaliers og Cleveland Indians
Óhætt er að segja að Cleveland-búar séu for­fallnir áhuga­menn um körfu­bolta enda er lið þeirra, Cavaliers, með þeim bestu í NBA-deild­inni og keppir nú um meist­ara­tit­ill deild­ar­innar. Frægasti leik­maður liðs­ins, LeBron James, er frá svæð­inu og nýtur mik­illar hylli. Þegar heima­leikir eru fyllist mið­borgin af stuðn­ings­mönnum liðs­ins og barir eru þétt­setnir af þeim sem ekki náðu miða á leik­inn sjálfan. Borgin er einnig þekkt fyrir hafna­boltalið sitt, Indians, sem einnig nær ávallt langt í sinni leikja­tíð og laðar að sér stóran hóp áhan­genda. Gaman er að vera hluti af stemn­ing­unni sem mynd­ast í mið­bænum þegar leikir eru en einnig er hægt að kynna sér leikja­tíð­ina og kaupa sér miða til að upp­lifa hug­hrifin og spenn­una í beinni. Vefsíða Cavaliers.
Vefsíða Indians: https://www.mlb.com/indians

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni